158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

bann við hvalveiðum.

[13:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég sagði aldrei að hvert einasta dýr sem væri skotið væri í löngu dauðastríði, alls ekki. En miðað við nýjustu upplýsingar sem hafa fengist um það hvernig í rauninni þessi vertíð hefur gengið til skipta þau samt sem áður tugum af þessum á annað hundrað skepnum sem hefur verið slátrað. Það er bara aðeins of mikið. Hvert dýr sem þarf að ganga í gegnum langt dauðastríð er einu dýri of mikið. Ef hv. þingmaður heldur að það verði einhver stökkbreyting á því að skepnurnar verði drepnar í fyrsta skoti núna fram að þeim tíma sem hæstv. atvinnuvegaráðherra leggur fram sitt frumvarp þá held ég að það sé byggt á misskilningi. Og svo það sé hafið yfir allan vafa: Þessi ríkisstjórn er samhent. Hvort sem við deilum heilum um öll mál eða ekki, þá styðjum við hvert annað, við nálgumst hvert annað og við reynum að virða áhugamál hvert annars og skoðanir. (Forseti hringir.) Ég mun standa með atvinnuvegaráðherra fram í rauðan dauðann í öllum þeim málum sem við höfum ákveðið að leggja hér fyrir þingið.