þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Virðulegur forseti. Við áttum gott og ágætt samtal um málefni barna fyrir nokkrum dögum þegar hæstv. ráðherra lagði fram frumvörp um barnavernd og um fjölþættan vanda. En mig langaði að fara aðeins nánar í mál sem tengjast barnaverndinni, sem sagt samkomulagið um börn með fjölþættan vanda sem við ræddum aðeins seinna. Það var farið af stað í þá vegferð og gert samkomulag við sveitarfélögin, ekki síst til að skerpa á verklagi þjónustu við viðkvæmustu hópana, viðkvæmustu börnin í samfélaginu, sérfræðingateymi sem skilgreindi hvaða börn myndu falla þarna innan, börn sem þurfa svokallaða þriðja stigs þjónustu, börn með þyngstu og erfiðustu greiningarnar og þjónustuþörfina. Þessi börn myndu falla innan þessa hóps sem ríkið átti að sjá um framkvæmd og fjármögnun þjónustu fyrir. Það voru allir sammála um skilgreininguna og að um 30–40 börn væri að ræða hverju sinni en í sumar, u.þ.b. einu og hálfu ári eftir að samkomulagið var gert, var gefin út reglugerð án alls samráðs við sveitarfélögin sem breytir skilgreiningunni á þeim hópi barna sem ríkið mun taka að sér. Samkvæmt því sem sveitarfélögin lýsa er hópurinn þrengdur og þyngstu málin, viðkvæmustu börnin, eru nú skilin eftir hjá sveitarfélögunum. Algengt er að þjónusta til hvers barns nemi 100–200 millj. kr. á ári og munar því svo sannarlega um hvert barn í fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaganna. Nú ber svo við að fjármunir sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaga í ár verða minni vegna þess að þessi skilgreining var sett á í sumar án samráðs. Sveitarfélögin telja sig skiljanlega hafa verið svikin og mögulega mun þessi staða koma niður á börnunum sjálfum á einhverjum stöðum. (Forseti hringir.) En það sem ekki er síður varhugavert er að nú eru að verða til tvö kerfi, annað hjá ríkinu og hitt hjá sveitarfélögunum. (Forseti hringir.) Hvað segir ráðherra um þá stöðu sem komin er upp? Samkomulagið átti að bæta og skerpa þjónustu við börn í viðkvæmustu stöðunni. (Forseti hringir.) Það var markmiðið en nú eru kerfin orðin tvö að mati sveitarfélaganna.