158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[13:43]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil byrja á því að segja að það er gjörsamlega óviðeigandi að fara að tala um algerlega óskylt og allt annað mál hér úr ræðustóli Alþingis. Er verið að reyna að koma sér undan því að svara efnislega því sem hér var spurt að? Maður spyr sig. Ég vil ítreka þetta og tek þessi orð ráðherrans og spyr: Er þá verið að lofa því að þessu verði breytt til baka, að þessi þrengri skilgreining sem hefur verið gerð á þeim hópi sem ríkið ætlar að taka utan um — það verði þá lagað? Ég get ekki skilið yfirlýsingu ráðherrans öðruvísi en svo, nema hæstv. ráðherra telji að sveitarfélögin, Samband íslenskra sveitarfélaga, bæjarstjórar og aðrir sem hafa stigið fram séu hreinlega að fara með rangt mál. Hvort er rétt í því?