158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[13:44]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn og frábið mér það að ég hafi ekki verið nógu skýr í mínum svörum þótt ég hafi nefnt annað mál sem heyrir undir mennta- og barnamálaráðherra sem er uppbygging Tækniskólans og stuðningur við hann. Nei, það er ekki verið að breyta neinu kerfi. Það er ekki verið að ganga á svig að einu eða neinu leyti við það samkomulag sem var gert í mars á síðasta ári, engan veginn. Hins vegar er ég að benda hv. þingmanni á það að þörfin á þessari þjónustu, þriðja stigs þjónustu, þyngstu þjónustu, er fyrir 34 einstaklinga, 34 börn. Meginniðurstaðan af öllu þessu er að megnið af þeim hafa þegar fengið jákvætt svar við þessari þjónustu. Níu þeirra eru að bíða eftir að fá svar sem þau munu fá innan skamms þannig að þau sem eftir standa, miðað við þá 4,5 milljarða kr. sem við erum að setja í stuðning við þyngstu þriðja stigs þjónustuna utan heimilis — því það er nákvæmlega það sem þjónustan felur í sér, ekki NPA eða neina aðra þjónustu sem er viðkvæm þjónusta fyrir börnin sem eru inni á heimilunum. En við munum standa við okkar skuldbindingar, það er rétt. Það að ég sé að tvista einhverju eða lofa einhverju (Forseti hringir.) — ég er bara að standa við gerða samninga, hv. þingmaður.