málaflokkur útlendingamála.
Frú forseti. Atvinnuleysisbætur fara að meiri hluta til til erlendra ríkisborgara, 13 milljarðar kr. komnir bara á fyrstu sjö mánuðum þessa árs. Örorku- og endurhæfingarlífeyrir frá Tryggingastofnun til erlendra ríkisborgara hefur farið úr 1,3 milljörðum árið 2010 í 16,6 milljarða árið 2025, þ.e. 13-faldast. Ofan á þetta eykst sífellt beinn mánaðarlegur fjárhagsstyrkur frá sveitarfélögum til erlendra ríkisborgara. Þeir eru orðnir um 70% reikningsins hjá Reykjavíkurborg sem telur nú fleiri milljarða á ári. Maður hefði haldið að slíkur styrkur ætti að vera eins konar neyðarráðstöfun fyrir borgarbúa sem eiga ekki önnur úrræði en annað kemur á daginn. Morgunblaðið hefur gert grein fyrir því sem virðist vera augljós misnotkun að undanförnu þar sem menn hafa komið hingað til lands, aldrei verið á vinnumarkaði, þegið þennan styrk árum saman, jafnvel fimm eða sex ár, og almenningur fréttir fyrst af málinu þegar flett er ofan af því að einn slíkur, sem hafði komið sér svo makindalega fyrir á kostnað skattgreiðenda, reyndist vera sakborningur í manndrápstilraun í bílakjallara.
Virðulegur forseti. Hvað erum við að gera? Er ekki eitthvað bogið við það að í sömu viku og maður les um svona nokkuð í fjölmiðlum mæti ráðherra innflytjendamála í viðtöl og lýsi því að stjórnvöld séu búin að ná tökum á innflytjendamálum á Íslandi? Það rökstyður ráðherra með því að nú hægi á EES-aðflutningi vegna frosts í hagkerfinu, EES-aðflutningi sem sami hæstv. ráðherra hefur vel að merkja sagt að hann hafi ekki minnstu áhyggjur af. Það eru vonbrigði, virðulegur forseti, að ríkisstjórnin hafi ekki verið tilbúin til þess hér fyrir þinglok í júní að styðja tillögu okkar í Miðflokknum um takmörkun á dvalarleyfisveitingum þar sem þeim bauðst að sýna í verki að þau hefðu eitthvað annað í hyggju en óbreytt ástand. En fyrst stjórnvöld eru ekki tilbúin til að breyta lögunum er þó það minnsta sem við getum gert að tryggja að þeim sé framfylgt. Samkvæmt lögum á ekki að vera hægt að fá hér dvalarleyfi án þess að hafa trygga framfærslu upp á eigin spýtur. Hvernig stendur þá á því að menn haldi hérna dvalarleyfum árum saman lifandi á styrk frá hinu opinbera?
Ætlar hæstv. ráðherra, spyr ég, að láta þessa lögleysu viðgangast? Telur hún þetta sanngjarnt gagnvart skattgreiðendum (Forseti hringir.) eða er hún tilbúin til að stíga nauðsynleg skref, stórherða þessi skilyrði, hætta að gefa út þessi dvalarleyfi og afturkalla þau sem hafa verið fengin ólöglega?