158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

málaflokkur útlendingamála.

[13:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr mig um aðgerðir hvað varðar dvalarleyfi. Því er fljótsvarað: Á þingmálaskrá haustsins er frumvarp til heildarendurskoðunar á dvalarleyfiskerfinu. Þar verða stigin markviss skref í þá átt að ná stjórn á þeim málaflokki. Á síðasta þingi fórum við í aðgerðir þar sem við vorum að horfa á alþjóðlega vernd. Næst á dagskrá er dvalarleyfiskerfið og í þriðja fasa verður endurskoðun á reglum um ríkisborgararétt. Þessi ríkisstjórn er að ná fram árangri í málaflokknum og ég myndi segja að leiðarstefið sé að við séum loksins að komast á þann stað að vinna út frá stefnu í stað þess stefnuleysis sem hér hefur ríkt árum saman með því einmitt að gera kröfur sem þingmaðurinn nefnir og ég er honum hjartanlega sammála. Auðvitað eiga að fylgja því kröfur að koma til landsins og það eiga að fylgja því kröfur til okkar líka, t.d. hvað varðar fólk sem kemur hingað á forsendum alþjóðlegrar verndar, að fólk fái sómasamlegar móttökur. Við erum að ná stjórn á málaflokknum. Ég held hins vegar að það sé ákveðinn misskilningur hjá þingmanninum þegar hann spyr mig um hvernig bótagreiðslum sé háttað. Það er málaflokkur sem heyrir undir annan ráðherra. En ég get þó sagt þetta: Vinnumálastofnun hefur aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysisbóta og annarra bóta og það er aðgerð sem kom fram með nýrri stjórn. Við erum að vinna þennan málaflokk skref frá skrefi; byrjum á alþjóðlegri vernd. Núna eru það dvalarleyfi, næst er það ríkisborgararétturinn. En af því að hv. þingmaður nefnir að við höfum ekki stutt einstakar tillögur hans þá vil ég minna hann á að hans flokkur studdi ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um brottfararstöð, sem er mikilvægt verkfæri við að koma því fólki úr landi sem á að fara úr landi og fer ekki úr landi. Hans flokkur studdi okkur heldur ekki í þeim aðgerðum þegar við erum að flytja erlenda sakamenn úr landi.