málaflokkur útlendingamála.
Fyrst aðeins um útlendingamálin aftur. Miðflokkurinn einkennist af orðum. Þessi ríkisstjórn vinnur út frá aðgerðum. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )Sú hefur verið framkvæmdin með allar breytingar á kosningalögum, sér í lagi þær sem eru stórar og stefnumarkandi, að erindi fer til þingsins frá ráðherra. Ég setti af stað hóp sérfræðinga til að vinna tillögur að því að jafna vægi atkvæða, og auðvitað kemur það mér ekki vitund á óvart að Miðflokkurinn sé á móti því réttlætismáli. En eðlileg vinna, öll venja, öll framkvæmd varðandi breytingar á kosningalögum er sú að forseti Alþingis fær erindi, ósk um það að þingmannanefnd verði sett á fót til að vinna úr þessum tillögum. Það er verkefni þingsins að forma kosningalög. Þannig hefur það verið og þannig tel ég að það sé eðlilegt. Þarna liggur fyrir skýrsla, það liggur fyrir greining og það liggja fyrir ákveðnar tillögur en það er Alþingi Íslendinga sem tekur skref hvað varðar breytingar á kosningalögum. Mín afstaða er sú að það sé bæði þarft og gott (Forseti hringir.) að fara í þær breytingar en það er gríðarlega mikilvægt að þær breytingar séu unnar af hálfu þingsins alls í sátt og fái vandaða og góða málsmeðferð.