158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum.

[13:55]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka þetta mál hér upp í þessum sal. Þetta eru ábendingar frá Skipulagsstofnun, sem nú heitir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sem komu fram í október 2024. Ég var upplýstur um þetta minnisblað í febrúar 2025 og setti af stað vinnu við að fylgja þessu eftir, vinnu sem byrjaði í rauninni á samtali milli ráðuneyta um það hvort ástæða væri til þess að fara í sérstakar reglugerðarbreytingar til að tryggja betur vernd þegar kemur að atvinnustarfsemi á svæðum þar sem ofanflóðahætta er fyrir hendi. Þessi skoðun hefur staðið yfir og þessi vinna við breytingar á reglugerð um umhverfismat stendur enn yfir. Þetta er áherslumál. Ég tel gríðarlega mikilvægt að koma þessum málum í betra horf. Þetta er auðvitað sett að einhverju leyti fram í samhengi við Seyðisfjörð. Þar hefur verið deilt mjög harkalega um sjókvíaeldi. Það er mikið hitamál. Þar er þetta sem lýtur að ofanflóðahættunni eitthvað sem ég hef haft áhyggjur af og beint því til minnar stofnunar að skoða sérstaklega.