atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum.
Virðulegur forseti. Ég tek sannarlega undir það að hraða þessari vinnu. Það er auðvitað mjög bagalegt að hér hafi ekki náðst að klára lagaumgjörð um sjókvíaeldið á síðasta löggjafarþingi. Þær aðgerðir sem farið var í eftir að minnisblaðið barst frá Skipulagsstofnun lúta að skoðun á reglugerðum, skýrari kröfum til atvinnustarfsemi á ofanflóðasvæðum og skerpingu á hættumati og þá með tilliti til þess hvort líkur séu á umhverfistjóni. En það sem ég gerði líka þarna strax um svipað leyti var að beina því til Umhverfis- og orkustofnunar að skoða hvort lög um umhverfisábyrgð ættu við um slysasleppingar. Sú vinna hefur verið í gangi síðan og þá með tilliti til mögulegra lagabreytinga til að hnykkja enn betur á því að sá lagabálkur komi til álita þegar kemur að sjókvíaeldi og slysasleppingum vegna þess að sá lagabálkur hefur að einhverju leyti verið svolítið óvirkur síðan lögin voru sett á sínum tíma. (Forseti hringir.) En þetta er eitt af þeim örfáu verkfærum sem ég hef sem umhverfisráðherra til þess að stíga inn þegar kemur að slysasleppingum og umhverfistjóni vegna sjókvíaeldis.