158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[14:00]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég hlýt að vekja athygli forseta á því að hér fór fram undir þessum lið fyrirspurn til hæstv. ráðherra og mér finnst algerlega óásættanlegt, af því að þessi dagskrárliður er í rauninni eina leið okkar þingmanna til að eiga orðaskipti við ráðherra, að ráðherrar kjósi undir þeim lið að svara í engu þeim fyrirspurnum sem fyrir ráðherrunum liggja heldur haldi hér fram einhverju algjörlega óskyldu máli sem eingöngu virðist vera til þess fallið að koma höggstað á fyrirspyrjanda. Ég vil fá afstöðu forseta í þessu máli um það hvort hann telji þetta viðunandi, hvort það sé þá ekki rétt að halda ráðherrunum hreinlega við efnið í þessum málum.