endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég mun hér mæla fyrir máli sem getur skipt að mínu viti mjög miklu máli varðandi þá grafalvarlegu stöðu sem er nú á fjölmiðlamarkaði í okkar annars ágæta lýðræðisríki. Það hefur lengi verið alvarleg staða á þessum markaði en nú ber svo við að það eru hreint út sagt öll ljós rauðblikkandi. Við höfum vitað lengi að samkeppnisstaða allra á þessum markaði er mjög erfið í samkeppni við Ríkisútvarpið. Það er bara staðreynd sem hefur fengið að grassera mjög lengi og er bara ákveðin staðreynd varðandi almennan samkeppnisrekstur við ríkið en að samkeppnisstaðan versni ár frá ári er eitthvað sem er algerlega óásættanlegt. Um of langt skeið hefur pólitíkin ekki getað tekið á þeim grunnvanda og frekar horft til ýmissa plástra sem eðli máls samkvæmt gera lítið gagnvart því svöðusári sem þessi staða er og versnar með hverjum deginum. Til að mynda voru sett ný lög hér í vor sem að sögn stjórnarmeirihlutans áttu að bjarga málum og bjarga einkareknu miðlunum þótt það væri mörgum augljóst, t.d. þeirri sem hér stendur, að það myndi ekki skila tilætluðum árangri. Hvað gerðist svo, frú forseti? 80 dögum eftir lögfestingu nýrra laga um stuðning við einkarekna fjölmiðla sem áttu að sögn að bjarga þeim þurfti farsæl sjónvarpsfréttastöð til 40 ára að pakka saman. 80 dögum eftir að svokölluð líflína var lögfest þurfti eina óopinbera sjónvarpsfréttastöðin að loka. Líflínan reyndist kannski hengingaról eftir allt saman. Því miður var þessi staða um margt fyrirsjáanleg, frú forseti, hefur fengið að malla lengi og verður æ erfiðari.
Þá er ónefnt, sem ég ætla þó aðeins að tæpa á, að það er ákveðið prinsipp í lýðræðisríkjum að fjölmiðlar séu sem allra minnst háðir opinberu fé. Af hverju? Því það er bara mannlegt í raunheimum að það er erfiðara og oft jafnvel óskynsamlegt að gagnrýna þann sem heldur þér á lífi. Við höfum vitað þetta lengi með Ríkisútvarpið. Við höfum vitað lengi að það nýtur auðvitað ríkulega af opinberu fé. En þegar allir einkareknir miðlar eru líka komnir á, hvað eigum við að segja, að hanga í þeirri líflínu, eins veikburða og hún þó er, þá erum við komin á hættulegan stað. Það er bara ákveðið prinsipp í því að það séu sem allra fæst huglæg áhrif gagnvart slíkum stuðningi. Það er óheppilegt að t.d. í þeim lögum sem voru lögfest í vor þá er ákveðin úthlutunarnefnd sem á að taka fyrir sérstaklega hverjir séu, nú man ég ekki alveg hvernig það er orðað, einhvern veginn alvörufjölmiðlar umfram einhverja aðra sem eru ekki almennir fjölmiðlar eða alvörufjölmiðlar eða hvernig svo sem það var nú orðað. Þetta eitt og sér er ekki nógu gott því hérna ertu kominn með huglægar skoðanir hins opinbera inn í ákvarðanir um hverjir fái fé til að flytja fréttir og hverjir ekki.
Frú forseti. Skemmst er að minnast, því miður, að það var bara í fyrra sem ég man eftir alla vega tveimur ef ekki fleirum úr hv. stjórnarmeirihluta sem sögðu upphátt og opinberlega að ákveðinn einkarekinn fjölmiðill ætti að fá minna af opinberu fé þegar viðkomandi ráðamönnum hugnaðist ekki fréttaflutningurinn. Bara það að þessum ágætu hv. stjórnarliðum hafi dottið í hug að það sé yfirhöfuð í lagi að segja svona hluti upphátt er áhyggjuefni og segir sitthvað um stöðuna sem við erum í. Þetta er nefnilega ekki í lagi og ég undirstrika að það er ekkert minna en grafalvarlegt að svo gott sem öll fjölmiðlun á Íslandi er háð hinu opinbera hverju sinni, duttlungum þess, skoðunum og völdum.
Ef ég vind mér kannski að því frumvarpi sem ég mæli fyrir þá er það að taka á þessari samkeppnisstöðu RÚV. Ég vil byrja á að taka fram, frú forseti — svo það sé nú sagt alveg skýrt, ég veit að sitt sýnist hverjum um þá ágætu stofnun — að mér þykir um margt vænt um RÚV og tel að RÚV sinni ákveðnu mikilvægu hlutverki. Ég held reyndar að það hlutverk sé of víðfeðmt. Alla vega ef við horfum á hvernig nútíminn hefur kannski þróast þá held ég reyndar að það sé hægt að segja að það sé allt of umfangsmikið. En ég ætla ekki að gera lítið úr því að það er ákveðið hlutverk RÚV sem skiptir máli. Ég leyfi mér t.d. góðfúslega að segja hérna, og hef nú stundum sagt í kannski meira gríni en alvöru en samt ekki, að ég myndi helst vilja geta friðað dánarfregnir og jarðarfarir og öll þau börn, barnabörn og barnabarnabörn sem fá að senda sínum látna ástvini kveðju með þeim hætti.
Það breytir því hins vegar ekki að það er með öllu óeðlilegt hvernig er staðið að rekstri RÚV, sérstaklega þegar við sjáum hvaða áhrif það hefur á aðra miðla í landinu. Ég er því að leggja til ákveðnar breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem felast í formbreytingu á rekstri þess og fjármögnun starfseminnar og takmörkunum á fyrirkomulagi auglýsinga Ríkisútvarpsins.
Markmið frumvarpsins er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla og gera rekstrarumhverfi allra fjölmiðla heilbrigðara og einfalda rekstur og einfalda líka alla lagaumgjörð í kringum Ríkisútvarpið sem ég fer hér nánar yfir. Reksturinn, eins og við þekkjum, byggist fyrst og síðast á skatttekjum, útvarpsgjaldi síðan þar ofan á og auglýsingatekjum. Þá hefur fyrirtækið nokkrar tekjur af kostun. Frumvarpið felur í sér einföldun á þessum tekjustofnum og er markmið þess að færa starfsemi þess í samræmi við hlutverk opinberra stofnana sem starfa í almannaþágu fremur en að Ríkisútvarpið taki að sér ákveðið hlutverk einkaaðila eins og hefur í raun gerst undanfarin ár.
Með lögum frá árinu 2007 var Ríkisútvarpið gert að opinberu hlutafélagi sem tók við rekstri, eignum og skuldum. Við leggjum hér til sem stöndum að þessu frumvarpi að það verði gerð ný breyting á rekstrarformi Ríkisútvarpsins og það verði að ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn; útvarpsráð. Fjármögnun rekstrar verður þá fyrst og fremst með beinum framlögum úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hvers árs í samræmi við þjónustusamning sem ráðherra er skylt að gera við Ríkisútvarpið. Þá hefur stofnunin einnig tekjur af auglýsingum en settar eru verulegar skorður við umfangi og eðli þeirra og verður stofnuninni ekki heimilt að afla tekna með auglýsingasölu. Bara til að nefna það strax af hverju við orðum það að séu settar verulegar skorður þá höldum við t.d. hlífiskildi yfir jólakveðjum Ríkisútvarpsins sem mætti skilgreina sem einhvers konar auglýsingu.
Um starfsemina almennt vil ég nefna að Ríkisútvarpinu ber skylda samkvæmt lögum til að starfrækja að lágmarki eina sjónvarpsrás og tvær hljóðvarpsrásir. Við teljum að sömu kröfur um nýtingu fjármuna verði að gera til Ríkisútvarpsins og annarra opinberra stofnana og er því í frumvarpi þessu leitast við að koma í veg fyrir óþarfakostnað stofnunarinnar. Því er lagt til að Ríkisútvarpinu sé almennt skylt að óska eftir heimild ráðherra fyrir nýrri fjölmiðlaþjónustu en skilyrði um lágmarkskostnað slíkrar fjölmiðlaþjónustu verði á hinn bóginn fellt brott. Felur breytingin í sér að stofnunin geti ekki upp á sitt eindæmi útvíkkað starfsemi sína og þar með aukið rekstrarkostnað sinn.
Með breytingum á lögum um Ríkisútvarpið er leitast við að tryggja að rekstur ríkisfyrirtækis á fjölmiðlamarkaði hafi sem minnst áhrif á rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi fjölmiðla. Umsvif ríkisvaldsins á samkeppnismarkaði þrengja eðli málsins samkvæmt að einkareknum fyrirtækjum og gildir það jafnt um fjölmiðla og aðrar starfsgreinar. Þegar ákvörðun er tekin um að ríkið skuli stunda ákveðna atvinnustarfsemi sem að hluta eða öllu leyti er í samkeppni við einkaaðila er um leið verið að taka ákvörðun um að draga úr möguleikum annarra á markaði. Flutningsmenn líta svo á að það sé skylda löggjafans að stuðla að heilbrigðu samkeppnisumhverfi á fjölmiðlamarkaði en því verður ekki náð ef Ríkisútvarpið stendur í beinni samkeppni við einkarekna fjölmiðla á auglýsingamarkaði. Um það verður ekki deilt, frú forseti, að umsvif ríkisins á innlendum fjölmiðlamarkaði gera sjálfstæðum fjölmiðlum mjög erfitt fyrir og kippa rekstrargrundvelli undan sumum miðlum og veikja möguleika annarra. Strandhögg erlendra samfélagsmiðla á íslenskum auglýsingamarkaði gerir stöðuna enn erfiðari. Lögbundin forréttindi Ríkisútvarpsins hafa komið í veg fyrir heilbrigða samkeppni á jafnvægisgrunni, til að mynda með því að bjóða auglýsendum upp á afslátt og/eða tilboð sem öðrum fjölmiðlum sem ekki njóta niðurgreiðslu frá hinu opinbera er að sjálfsögðu ómögulegt að keppa við. Afleiðingin er veikburða fjölmiðlun. Frjálsir fjölmiðlar berjast í bökkum en fjárhagslegur hagur Ríkisútvarpsins styrkist fremur en hitt.
Erfitt rekstrarumhverfi og áralangur taprekstur flestra einkarekinna fjölmiðla hefur verið til skoðunar undanfarin misseri. Í skýrslu fjölmiðlanefndar frá janúar 2018 til mennta- og menningarmálaráðherra var bent á hvaða ástæður byggju að baki þessu erfiða rekstrarumhverfi, nánar tiltekið samkeppni einkarekinna fjölmiðla við Ríkisútvarpið, samkeppni við erlenda fjölmiðla og flutningur auglýsinga úr hefðbundnum fjölmiðlum á veraldarvefinn, svo sem til Google og Facebook. Er þar m.a. varað við því að áframhaldandi veiking fjölmiðla hér á landi hafi neikvæð lýðræðisleg og menningarleg áhrif í samfélaginu. Af þessu leiðir að nú er svo komið að fjölmiðlar hafa hvorki fjárhagslegt bolmagn til að sinna hlutverki sínu sem varðhundar almennings, svo notuð séu orð Mannréttindadómstóls Evrópu, né til að framleiða og miðla íslensku efni.
Þá er rétt að líta til þess að í áliti Samkeppniseftirlitsins frá 2008, um samkeppnishömlur sem stafa af stöðu og háttsemi Ríkisútvarpsins á markaði fyrir sölu auglýsinga í ljósvakamiðlum, bendir stofnunin á þá samkeppnislegu mismunun sem leiðir af stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Í ályktuninni vísar Samkeppniseftirlitið til þess að tekjur Ríkisútvarpsins af sérstöku gjaldi sem skatturinn leggur á skattskylda einstaklinga og lögaðila teljist til ríkisaðstoðar í skilningi samkeppnislaga sem sé til þess fallin að skekkja stöðuna á samkeppnismarkaði. Nauðsynlegt er að bregðast við þessum alvarlegu ábendingum Samkeppniseftirlitsins og er í frumvarpinu því lagt til að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði að öllu leyti, nema við skulum hlífa jólakveðjunum.
Flutningsmenn vara við því að beinir ríkisstyrkir til að styðja við bakið á einstökum fyrirtækjum eða atvinnugreinum festist í sessi, enda er reynslan af því slæm. Þá er ákveðin þversögn fólgin í því að reyna að styðja við frjálsa og opna fjölmiðlun með beinum ríkisstyrkjum og millifærslum. Frjálsri fjölmiðlun er fátt hættulegra en að vera háð opinberum styrkjum og nefndum á vegum hins opinbera sem skammta fjármuni til að standa undir einstökum þáttum í ríkisrekstrinum. Fjölmiðlun sem er háð hinu opinbera með beinum hætti verður aldrei frjáls nema í orði.
Núverandi fyrirkomulag hefur sætt mikilli gagnrýni, bæði frá einkareknum fjölmiðlum sjálfum og almenningi. Í óbreyttu fjölmiðlaumhverfi eru ríkisstyrkir til einkarekinna fjölmiðla til nauðsynjar og er það mat frumvarpshöfunda að rétt sé að leggja þá af þegar skekkjan á fjölmiðlamarkaði hefur verið löguð. Það á að vera langtímamarkmið að tryggja einkareknum fjölmiðlum ásættanlegt rekstrarumhverfi, m.a. með undanþágu frá opinberum gjöldum og eðlilegum samkeppnismarkaði. Þetta frumvarp er að okkar mati nauðsynlegt upphafsskref í því ferli. Verði frumvarpið að lögum mun staða einkarekinna fjölmiðla án efa styrkjast en erfitt er að meta nákvæmlega hversu mikið rekstrarskilyrði þeirra muni batna. Því er í frumvarpi þessu ekki mælt fyrir um afnám styrkja til fjölmiðla en ekki er tímabært að ráðast í slíkar aðgerðir, því miður, áður en tryggt er að einkareknir fjölmiðlar geti starfað án þeirra. Það er því ábyrgðarhluti að halda þessum styrkjum enn sem komið er. Aftur á móti má ætla að unnt verði að lækka og jafnvel afnema að fullu styrki hins opinbera til fjölmiðla verði frumvarpið að lögum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir tvenns konar breytingum á skattumhverfi sjálfstæðra fjölmiðla í staðinn, annars vegar með undanþágu frá greiðslu tryggingagjalds upp að vissu marki og hins vegar með því að fella niður virðisaukaskatt af áskriftum innlendra fjölmiðla, prentmiðlum, netmiðlum og ljósvakamiðlum. Með breytingunum er leitast við að styrkja rekstur fjölmiðla. Hlutfallslega fæst sama lækkun á hvern fjölmiðil miðað við launakostnað og áskriftartekjur og er skattaívilnunin þannig byggð á rekstri einstakra fjölmiðla.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að sjálfstæðum fjölmiðlum verði veitt undanþága frá greiðslu tryggingagjalds af launum sem falla undir tvö lægri skattþrep tekjuskattsstofns. Tryggingagjald verði hins vegar greitt af þeim hluta launa sem eru umfram lægri skattþrepin. Þá má nefna að á árinu 2026 eru mánaðarlaun sem fara yfir 1.400.000 kr. skattlögð í efra skattþrepi. Ívilnunin skal ná til allra starfsmanna fjölmiðlafyrirtækis, ritstjórnar, þar með talið blaða- og fréttamanna, dagskrárgerðarmanna, ljósmyndara, prentsmiða og allra starfsmanna stoðdeilda, svo sem auglýsingadeilda og skrifstofu, þannig að þetta safnast saman þegar saman kemur.
Á Íslandi eru áskriftargjöld dagblaða og tímarita í neðra virðisaukaskattsþrepi og 2018 var virðisaukaskattur á rafrænar áskriftir að sömu fjölmiðlum lækkaður úr efra þrepi í það neðra. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að virðisaukaskattur leggist ekki á áskriftir innlendra fjölmiðla, með breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Er það í samræmi við fyrirkomulag margra annarra ríkja í Evrópu. Virðisaukaskattur á prentmiðla er til að mynda hærri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum.
Frumvarpinu er ætlað að skapa víðtækari sátt um starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla þar sem allir sitja við sama borð og fá hlutfallslega sömu ívilnun. Ég endurtek það sem ég kom inn á áðan að hér er lykilatriði að hið opinbera hefur engar huglægar skoðanir eða huglæg völd á því hverjir fái einhvers konar styrk eða ívilnanir eða einhvers konar fjármuni heldur er þetta bara átómatískt inni í kerfinu, burt séð frá skoðunum eða afstöðu ráðamanna hverju sinni, og þetta er lykilatriði í lýðræðisríki að mínu viti, að hafa hlutlæga mælikvarða og kerfislegan stuðning en ekki huglægan.
Ég ætla næst að fjalla um afnám útvarpsgjaldsins. Við mælum fyrir afnámi útvarpsgjaldsins en að mati okkar mæla knýjandi rök með slíkri breytingu. Núverandi fyrirkomulag felur í sér að Ríkisútvarpið fær ávallt fjárveitingu að lágmarki því sem nemur útvarpsgjaldi sem lagt er á alla skattskylda einstaklinga og lögaðila en í því felst að fjárveitingin tekur ekki mið af því hve mikla fjármuni Ríkisútvarpið þarf til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Hinu opinbera ber að fara vel með fjármuni ríkisins og nýta þá á skilvirkan og hagkvæman hátt, samanber lög um opinber fjármál. Það er örlítið undarlegt að þessi skattstofn, ef við getum orðað það svo, stækki í rauninni burt séð frá þörf Ríkisútvarpsins. Lögbundið lágmarksfjárframlag ríkisins til opinberra stofnana án nokkurs tillits til þess hver raunveruleg fjárþörf stofnunarinnar er er því að mínu viti bersýnilega ekki í samræmi við kröfuna um skilvirka og hagkvæma opinbera fjárstjórn samkvæmt lögum.
Útvarpsgjaldið er jafnframt flatur skattur sem leggst jafnt á alla skattgreiðendur líkt og ég hef farið yfir en ég vil undirstrika að skatturinn leggst því eðli máls samkvæmt þyngst á tekjulægstu hópana og getur numið næstum 1% af heildarárstekjum þess hóps. Afnám skattsins felur því í sér skattalækkun á mikinn meiri hluta landsmanna. Á hverju heimili er oftar en ekki fleiri en einn einstaklingur sem nú er skylt að greiða útvarpsgjald og því getur afnám gjaldsins falið í sér umtalsverða skattalækkun fyrir hvert heimili og haft umtalsverð áhrif á fjárhagsstöðu heimilanna.
Í frumvarpinu felst því að tekjuöflun Ríkisútvarpsins verður einfölduð með fækkun tekjustofna. Frumvarpið mælir ekkert sérstaklega fyrir um að tekjur Ríkisútvarpsins skuli lækka, svo það sé nú sagt, enda fjármögnunin hugsuð fyrst og fremst háð fjárlögum hverju sinni í samræmi við lög og gildandi þjónustusamning. Í því samhengi er rétt að líta til þess að Ríkisútvarpið hefur óneitanlega möguleika til hagræðingar miðað við rekstur þess undanfarin ár og hefur rekstrarkostnaður þess hækkað gríðarlega á síðustu árum og áratugum. Til samanburðar má líta til þess að launakostnaður Ríkisútvarpsins er hærri en heildarlaunakostnaður allra dómstóla á Íslandi til samans. Það skýtur alla vega að mínu viti, frú forseti, skökku við að kostnaður ríkisins við launagreiðslur eins fjölmiðils sé hærri en við dómskerfið í heild sinni og sýnir fram á þörf þess að endurmeta rekstur Ríkisútvarpsins.
Í því augnamiði tel ég einsýnt að almannaþjónustuhlutverk RÚV verði endurskoðað í takt við tímann. Eins og við getum sagt er sjálfsagt að vernda og undirstrika og hlúa að sérstöðu RÚV og því mikilvæga hlutverki sem það hefur í almannaþágu en það geta fáir, held ég, haldið því fram að allt hið mýmarga sem Ríkisútvarpið tekur sér á hendur þessa dagana, í mýmargri hlaðvarpsgerð og alls konar, falli undir nauðsynlega þjónustu og mun líklega ógna einkaaðilum á þeim markaði eins og við höfum séð dæmi um á liðnum árum.
Að þessu sögðu eru heildartekjur Ríkisútvarpsins, að auglýsingatekjum frátöldum, tæplega 7 milljarðar á hverju ári. Að okkar mati ætti Ríkisútvarpið hæglega að geta sinnt lögbundnum skyldum sínum fyrir talsvert lægri fjárhæð, til að mynda með því að nýta þá fjármuni sem til eru í þau verkefni sem lögbundin eru í stað þess að fjármagna starfsemi sem Ríkisútvarpið ætti ekki að sinna, svo sem hlaðvarpsgerð. Frumvarp þetta mælir þó ekki fyrir um hverjar tekjur Ríkisútvarpsins skuli vera, enda er gert ráð fyrir að fjármögnunin verði ákveðin í fjárlögum hverju sinni í samræmi við efni þjónustusamnings ráðherra við Ríkisútvarpið.
Framangreindar breytingar á fjármögnun Ríkisútvarpsins fela ekki í sér neina takmörkun á sjálfstæði stofnunarinnar sem tryggt er í 2. gr. frumvarpsins og fjármögnun Ríkisútvarpsins er nú þegar háð lagasetningu Alþingis og þjónustusamningi við ráðherra. Frumvarpið hefur þannig í för með sér breytt fyrirkomulag þar sem fjármögnun Ríkisútvarpsins með almannafé verði í samræmi við þann kostnað sem nauðsynlegt er að standa straum af svo stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Þá fela breytingarnar einnig í sér aukið gegnsæi er varðar meðferð opinberra fjármuna.
Frú forseti. Ég hef tæpt á því helsta sem frumvarpið felur í sér. Að okkar mati sem stöndum að þessu frumvarpi er það okkar einlæga trú að þessi nálgun sé farsælli en sú nálgun sem stjórnvöld hafa í of langan tíma sótt sér færi í, að koma með plástra og þessa stöku þúsundkalla til og frá til þessara einkareknu miðla í staðinn fyrir að taka á alvöru vandans, sem er staða Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði. Við vitum að hún er allt of sterk. Við vitum að það er eiginlega ekki hægt að keppa við þetta en við vitum líka að það er heldur ekki fullkomin staða að hið opinbera sé í sífellu að veita svona styrki á huglægum forsendum til annarra einkarekinna miðla þannig að við leggjum til að það verði bara byggt inn í kerfin að ákveðnar ívilnanir frá tryggingagjaldi og virðisauka og slíkt sem allir fjölmiðlar gætu sótt í algjörlega burt séð frá þeirra fréttaflutningi — sem við höfum því miður séð frá hv. stjórnarliðum að hefur verið hótað, að þeir myndu missa sína peninga nema þeir hagi sínum fréttaflutningi með öðrum hætti og það er alvarleg staða.
Við lítum samt svo á og það skiptir mig máli að taka það fram að við trúum því einlægt að með þessu frumvarpi séum við að ná betur utan um starfsemi Ríkisútvarpsins. Þetta frumvarp er ekki hugsað til að leggja stein í götu þess starfs en við erum þeirrar skoðunar að það megi straumlínulaga það starf, það megi vera gagnrýnni á fjárframlög sem starfsemin fær. Okkur finnst því eðlilegt að þetta verði aftur bara hefðbundin opinber stofnun sem sækir fé sitt eins og allar aðrar í fjárlög á hverju ári og þá hægt að taka tillit til fjárþarfarinnar hverju sinni en ekki bara að skattstofninn hækki þar sem hver einasti aðili á Íslandi er skyldugur til að borga til Ríkisútvarpsins algjörlega burt séð frá því reyndar hvort viðkomandi nýti sér þá þjónustu eða ekki. Það væri bara á allan hátt eðlilegra að hafa þetta aðeins gegnsærra, pólitískara að því leytinu til að þetta væri bara hefðbundin opinber þjónusta, fjármögnuð af ríkinu eins og allar aðrar.
Ég held að ég hafi svo sem drepið á því helsta en vil nota þessa lokamínútu til að endurtaka það að lokun frétta Stöðvar 2 eða Sýnar eins og það hét hérna undanfarna mánuði var algjört reiðarslag fyrir íslenskt samfélag og við verðum að taka það meira alvarlega hvernig staðan hefur verið að teiknast upp og hversu alvarleg hún verður og alvarlegri með hverjum degi. Það er ekki sjálfsagt að lýðræðisleg umræða sé öflug. Það er ekki sjálfsagt að það sé aðhald á ráðamenn. Þetta eru bara þeir veigamestu punktar sem öflug lýðræðisríki verða að hafa og ef við hér ætlum ekki að reyna að gera allt sem við getum til að passa þennan ofboðslega viðkvæma geira, ef ég get sagt sem svo, þá veit ég ekki alveg hver ætti að gera það. Ég trúi því einlægt að þetta frumvarp sé liður í því að jafna út þessa samkeppnisstöðu, gera umhverfið hérna eðlilegra, sanngjarnara og stuðla að lýðræðislegri umræðu og umfjöllun sem við viljum gjarnan geta státað af.
Að því sögðu legg ég til að málið fari til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til 2. umræðu.