158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[14:33]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Fyrst að fyrri punktinum. Það að Ríkisútvarpið verði bara heiðarleg opinber stofnun á fjárlögum held ég að eigi ekki að þurfa að gera stöðuna erfiðari hvað það varðar. Ég sé það ekki, sérstaklega ekki þegar það hangir saman við að endurskoða almannaþjónustuhlutverk RÚV og þá mögulega sníða þar aðeins þrengri stakk. Þá er það bara hið pólitíska samtal um í hvað pólitíkin telur eðlilegt að opinberu fé sé veitt hverju sinni til að halda úti almannaþjónustuhlutverki RÚV. Við skrifum það sérstaklega inn í frumvarpið því það hefur aðeins borið á því að starfseminni vaxi fiskur um hrygg allt í einu og ekki ætla ég að gera lítið úr því að starfsmenn sem vinna þarna eru örugglega metnaðarfullir og fá alls konar skemmtilegar hugmyndir og vilja gjarnan gera það. En við, einmitt til þess að stemma stigu við þessu, skrifum inn að ef það er einhver vilji til þess að bæta í starfsemina eða bæta við verkefnum þá þarf sérstaklega heimild til þess frá pólitíkinni en ekki að það gerist einhvern veginn átómatískt. Mér finnst faktískt bara heiðarlegra og gagnsærra að þetta verði opinber stofnun með afmarkaðra almannahlutverk og þá með opinbera starfsmenn eins og gengur og starfsmennirnir þá í betri stöðu hvað það varðar að einhverju leyti. En væntingarnar eru um að starfsemin minnki sem því nemur og eigi þetta samtal við pólitíkina.

Varðandi seinni spurninguna. Mér finnst hugsunin í frumvarpi hv. þm. Bergþórs Ólasonar góð. Mér finnst (Forseti hringir.) að sú staða væri betri en staðan er í dag. En ég myndi halda að það væri farsælla að gera þessa róttæku breytingu sem við erum að leggja til.