endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Í fyrsta lagi er það að segja, já, það eru væntingar um að endurskilgreina þetta almannaþjónustuhlutverk. Að mínu viti er hlaðvarpsgerðin svona eitt besta dæmið um hvernig Ríkisútvarpinu vex fiskur um hrygg og hvað það er þá stutt í, og hversu ofboðslega viðkvæmt þetta hagkerfi er allt saman, úr því að RÚV hefur svo ótrúlega mikið bolmagn. Það er svo auðvelt fyrir RÚV að í rauninni éta alla hina litlu aðilana á markaðnum sem eru bara að reyna að gera sitt besta. Ég leyfi mér oft að nefna eitt dæmi í þessu samhengi og ég vil ítreka að við erum ekki bara að minnka auglýsingarnar, við verðum að taka RÚV af auglýsingamarkaði til að gefa einkaaðilunum séns. Mig langar að nefna í þessu samhengi að þegar ruv.is byrjaði mátti ekki setja auglýsingar þar. Getur fólk ímyndað sér hvort mbl.is og vísir.is væru til ef alltaf hefði mátt setja auglýsingar þangað? Þetta skiptir svo ofboðslega miklu máli og ríkið er í svo mikilli yfirburðastöðu hvað þetta varðar, þannig að við höfum trú á að með þessum aðgerðum muni staðan jafnast.