158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[14:38]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu, hún var afar góð, og taka undir margt sem fram kom í henni, sérstaklega það sem snýr að því að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi og einfaldlega bara lýðræðið í landinu. Sterkir fjölmiðlar eru í lykilhlutverki í því að veita t.d. stjórnvöldum aðhald þegar kemur að ákvörðunum og fjalla um gjörðir þeirra og vera sjálfstæðir frá stjórnmálamönnum. Ég er hjartanlega sammála öllum þeim gildum. Ég tel líka sérstaklega mikilvægt að við skoðum stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Í ljósi þess hvernig erlendir samfélagsmiðlar hafa í rauninni gleypt allt auglýsingafjármagn frá fjölmiðlunum er staða RÚV á auglýsingamarkaði sérstaklega viðkvæm. Ég fagna því að ráðherra hefur þegar boðað frumvarp sem á að endurskoða þetta, eftir að hafa lagt fram frumvarp síðastliðið vor um að auka stuðning við einkarekna fjölmiðla. Ég held að þetta sé svo mikilvægt.

Það sem ég skil þá ekki með þessu markmiði að vilja standa vörð um sjálfstæða fjölmiðlun, öfluga fjölmiðla í lýðræðissamfélagi á Íslandi, af hverju eru svona margar greinar í þessu frumvarpi sem snúa einfaldlega að því að veikja RÚV og veikja sjálfstæði þess? Í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins þegar RÚV var sett í ohf. var það gert til að standa vörð um sjálfstæðið, til að fjarlægja RÚV frá ákvarðanatökum stjórnmálamanna. Útvarpsgjaldið, að fella það frá og setja á fjárlög. Eigum við að prófa að spyrja sveitarfélögin? Myndu þau vilja afnema sína sjálfstæðu tekjustofna og koma á fjárlög ríkisins, þannig að stjórnmálamenn sem væru ósáttir við sveitarfélög gætu einfaldlega bara lækkað framlög til sveitarfélaganna eða þá Ríkisútvarpsins ef það væri þeirra skoðun? Þetta veikir sjálfstæði fjölmiðilsins RÚV í því aðhaldshlutverki sem það hefur á okkur stjórnmálamennina.

Svo er hér gengið í rauninni alla leið. Það er sagt að orðin „í almannaþágu“ megi ekki heyrast í þessu frumvarpi, að Ríkisútvarpið eigi ekki að starfa í almannaþágu. Það á að vera stofnun ríkisins, á fjárlögum ríkisins, með stjórn sem er kosin af alþingismönnum og heyra undir boðvald ríkisins. Þetta tel ég ekki vera góða þróun og mig langar að spyrja hv. þingmann hver hennar sjónarmið eru varðandi þetta. Þurfum við ekki að standa vörð um sjálfstæði fjölmiðla á Íslandi?