158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[14:41]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir andsvarið. Í fyrsta lagi verð ég að segja að ég átta mig kannski ekki alveg á nálgun hans með þetta mál því að ég held að hann átti sig alveg á því að það er löggjafinn sem getur tekið ákvörðun um þennan nefskatt á morgun ef svo ber undir. Það prinsipp er nákvæmlega það sama. Það er hins vegar meira gagnsæi fólgið í því hvernig þú ferð með opinbert fé, að viðkomandi stofnun geti bæði fært rök fyrir því og að það sé einhver pólitísk aðkoma að því, eins og t.d. hvað felst í almannaþjónustuhlutverki RÚV, að halda úti sinni starfsemi. En mér fannst hv. þingmaður eilítið ýja að því að hérna væri fréttastofan komin í einhverja aðra stöðu en nú er. Það er auðvitað af og frá. Sú staða er bara nákvæmlega eins og það verður að horfa á Ríkisútvarpið núverandi ohf. með sína 7 milljarða og sínar auglýsingatekjur og með nefskattinn sem allir á Íslandi eru skyldugir til að borga og sem bara vex og vex eftir fjölgun Íslendinga, ekki vegna þarfar frá RÚV og ekki vegna þess að það er búið að ákveða hvaða stakk á að sníða RÚV. Mér finnst það óeðlilegt. Mér finnst að hitt væri eðlilegri pólitísk nálgun en það breytir engu um sjálfstæði fréttastofunnar frá því í dag eða á morgun, ekki í einu einasta og allir hinir fjölmiðlarnir sem eru að berjast í bökkum geta varla verið til út af samkeppninni við RÚV. Þeir eru líka mikilvægir í almannaþágu. Það er ekki bara RÚV sem er mikilvægt í almannaþágu þrátt fyrir að RÚV per se hafi ákveðið almannaþjónustuhlutverk þá erum við að ræða þetta núna út af því að hinir fjölmiðlarnir geta varla verið til út af RÚV (Forseti hringir.) og þeir skipta almenning líka mjög miklu máli.