endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari. Ég er sammála því að við þurfum að vera með öfluga einkarekna fjölmiðla. Þess vegna lögðum við fram þetta frumvarp og samþykktum að auka styrkveitingar til þeirra. Þess vegna hefur ráðherra boðað að endurskoða hlutverk RÚV á auglýsingamarkaði í haust og ég tek undir þau sjónarmið. Það sem mér þykir áhugavert er þetta afturhvarf til fortíðar, þegar RÚV er þá meira undir pólitíkina komið. Auðvitað hefur það áhrif á fréttastofu, líkt og aðra miðlun RÚV, hvernig RÚV er fjármagnað og hvert boðvald stjórnvaldanna er yfir Ríkisútvarpinu. Það segir sig sjálft. Sama með sjálfstæði tekjustofna. Það er ástæða fyrir því að sveitarfélögin verja sjálfstæða tekjustofna með kjafti og klóm. Það er til að standa vörð um að þeir séu ekki undir ákvörðunum alþingismanna komin. Auðvitað er það þannig að í viku þar sem fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur verið að fjalla um hneykslismál Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, hefur verið að fjalla um milljónagreiðslur eins bæjarstjóra til fyrrverandi bæjarstjóra, þá mæta sögulega margir Sjálfstæðismenn í ræður um að veikja sjálfstæði RÚV. (Forseti hringir.) Auðvitað vekur þetta spurningar og það er eðlilegt að þingmaðurinn svari þessu, hvort það skipti ekki máli. Líkt og að standa vörð um einkarekna fjölmiðla (Forseti hringir.) þurfum við að standa vörð um fjárhagslegt sjálfstæði fjölmiðilsins í almannaþágu og að hann verði áfram í almannaþágu en ekki í þágu ráðandi stjórnvalda.
(Forseti (KÁB): Forseti vill biðja hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)