endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið en ég bið hann náðarsamlegast um að vera ekki að gefa hv. stjórnarmeirihluta meiri eða fleiri hugmyndir að einhvers konar skattaleiðréttingum, meintum. Nóg er af þeim nú þegar. Þannig að þarna segi ég bara stopp nú, hv. þingmaður.
Varðandi seinni spurninguna þá held ég að það í rauninni bara blasi við — hlaðvörpin eru auðvitað alveg svona augljós — en það má líka spyrja. Nú er ég aðeins að hugsa, fyrir nokkrum árum starfaði ég fyrir einn einkamiðil í landinu og varð vitni að því, ef ég bara svona segi þá dæmisögu, þar sem var í rauninni svona útboðskeppni um hvor miðillinn myndi fá ákveðið vinsælt sjónvarpsefni og mér fannst algjörlega sjokkerandi að fylgjast með Ríkisútvarpinu, hinu opinbera fyrirtæki, koma bara og yfirbjóða með tugum milljóna ef ekki meira. Og einkamiðillinn gat ekkert gert í því. Einkamiðillinn sem á allt sitt undir því að bjóða upp á eitthvert sjónvarpsefni þar sem fólk kaupir áskriftir og fær þar með fjármagn til þess að halda úti fréttastofu sem núna er búið að loka. Mér þætti eðlilegt að við myndum spyrja okkur: Er eðlilegt að ríkissjónvarpið núna, og ég tala nú ekki um á tímum Netflix og fleiri, sé í þessu, að eyða stórum hluta af í rauninni opinberu fé, ef við ættum að orða það þannig, í þetta? Kannski er Barnaby bara alveg nóg. Ég ætla ekki að ákveða það, það er ekki mitt að ákveða það en mér finnst eðlilegt að við ræðum þetta aðeins á þessum forsendum.