158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[14:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í seinna andsvari langar mig til að fagna því sérstaklega að hér séu festar á blað í frumvarpi tillögur sem komu fram í fjölmiðlanefnd sem Björgvin Guðmundsson fór fyrir og skilaði niðurstöðu sinni, var það ekki 2017, eitthvað þar um bil? Og margt góðra tillagna þar og þær sem ég tek sérstaklega eftir hér eru þær sem varða tryggingagjaldið og virðisaukaskatt af áskriftum. Án þess að ég hafi rifjað upp texta tillögu eða skýrslu þess tíma held ég meira að segja að tryggingagjaldið sé ítarlegar útfært og jafnvel betur gagnvart fjölmiðlunum en þar var gert. En kannski voru fleiri atriði úr þeirri vinnu, ef hv. þingmaður skoðaði það að einhverju marki við vinnslu þessa máls, sem hefðu komið til greina (Forseti hringir.) og væru til bóta hvað rekstrarumhverfi einkareknu miðlanna varðar.