endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar. Ég þakka honum einnig fyrir að með spurningu sinni minnti hann mig á að ég gleymdi að geta þess í framsögu minni að grunnurinn að þessu frumvarpi kemur frá þáverandi hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Ég veit að hann fór yfir þessar tillögur sem einmitt voru mjög góðar. Við ræddum þetta á dögunum og nálgunin í þessu frumvarpi er það sem var okkar mat að væri raunhæfast og aðgengilegast og myndi skila mestum árangri hvað þetta varðar, svona á sem auðveldastan hátt.
Ég vil líka nefna að Óli Björn Kárason, vinur minn, vildi að sjálfsögðu afnema styrkina til einkareknu fjölmiðlanna út af því að hann er mikill prinsippmaður og sér auðvitað hversu ofboðslega bagalegt það er að öll fjölmiðlun á Íslandi sé háð náðarsamlegri gjafmildi valdhafa hverju sinni. (Forseti hringir.) En hann sættist á að í þessum hryllilegu aðstæðum sem við erum í núna fyrir einkarekna miðla væri ekki hægt að kippa því alveg út, heldur frekar að reyna smám saman að rétta af stöðuna og síðan vonandi leggja þá af.