endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir framsögu sína í þessu mikilvæga máli sem varðar ekki eingöngu fjölmiðla, heldur í raun og veru lýðræði í landinu. Staða fjölmiðlunar á Íslandi krefst róttækra breytinga á allri lagaumgjörðinni. Það er óumdeilt að vandi einkarekinna fjölmiðla felst einkum og sér í lagi í því að tekjur þeirra, áskriftartekjur og auglýsingatekjur, hafa dregist saman á meðan kostnaður, þá einkum er varðar starfsmannahald, fer hækkandi. Þá felst rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla einnig í skakkri samkeppnisstöðu við Ríkisútvarpið sem nýtur bæði opinberra fjárframlaga og keppir við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á Norðurlöndunum og gerir það að verkum að frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti hérlendis. Þessu frumvarpi er ætlað að greiða úr þeirri stöðu.
Svo eru einnig aðrir þættir í rekstrarumhverfi fjölmiðla sem krefjast endurskoðunar og þá er ég að tala um bara fjölmiðlalögin sjálf. Þeim var ætlað að efla tjáningarfrelsi og sjálfstæði fjölbreyttra fjölmiðla en eru svo íþyngjandi með alls konar kvöðum að þau verka fremur sem myllusteinn um háls þeirra. Þá er ég að tala um litla hluti eins og til að mynda ákvæði um vatnaskil í línulegri dagskrá, sem kveða á um það til að mynda að það má ekki sýna þætti bannaða börnum innan 12 ára fyrir kl. 22 á föstudögum. En það er auðvitað látið átölulaust að börn á hvaða aldri sem er geti nálgast þetta í ólínulegri dagskrá, RÚV-sarpinum eða hvað hann nú heitir, á hverjum tíma. Það er líka atriði er varðar skráningarskyldu fjölmiðla. Við búum í frjálsu samfélagi þar sem atvinnufrelsi og tjáningarfrelsi er virt, en ef þú ætlar að hefja svona atvinnurekstur þá þarftu að skrá þig hjá hinu opinbera. Og svo eru hinu opinbera færðar miklar valdheimildir til þess að sekta fjölmiðla ef þeir fara einhvers staðar út af sporinu, hvort heldur er varðar þessi vatnaskil sem ég nefndi hér fyrr í ræðu minni eða hluti er varða til að mynda áfengis- og tóbaksauglýsingar sem eru bannaðar í núgildandi lögum. Þetta er auðvitað svolítið skrítið þegar þessir fjölmiðlar eru að keppa um auglýsingatekjur við erlenda samfélagsmiðla sem lúta ekki sömu lögmálum. Það er látið átölulaust líka. Áfengissöluaðilar og tóbaks- og nikótínsöluaðilar geta keypt auglýsingar og birt þær Íslendingum á samfélagsmiðlum þeirra en ekki hjá fjölmiðlum, einkareknum fjölmiðlum, sama á hvaða tíma sólarhringsins það er.
Þetta er svona heildarmyndin og þessi vandi er gríðarstór. Í því sambandi vísa ég í úttekt Viðskiptaráðs frá mars 2024 en þar kemur m.a. fram að þeim sem starfa hjá einkareknum fjölmiðlum hefur fækkað um 69% frá árinu 2008. Það eru tæplega 70% færri starfsmenn hjá einkareknum fjölmiðlum í dag en var árið 2008. Á sama tíma hefur þeim fækkað um 16% hjá Ríkisútvarpinu. Þá hefur hlutdeild innlendra einkarekinna fjölmiðla í auglýsingatekjum minnkað um 39 prósentustig, farið úr 81% árið 2009 niður í 42% árið 2023. Þetta er að meginstefnu vegna tekjuaukningar erlendra miðla og þá er ég að tala um samfélagsmiðlana sem hafa farið úr 4% upp í 49% á þessu tímabili. En það vekur athygli hvað varðar heildartekjur að Ríkisútvarpið hefur nokkurn veginn haldið sinni hlutdeild þrátt fyrir þetta.
Staðan er grafalvarleg og nú er búið að leggja niður sjónvarpsfréttir Sýnar sem er áfall fyrir, ég segi bara, stjórnmálin og lýðræðið í landinu. Hæstv. menningarráðherra kynnti aðgerðaáætlun í desember 2025 sem er ætlað að leysa þessa stöðu en hvað skal segja, ég tel að uppleggið þar sé ekki vænlegt til árangurs og í raun og veru býsna skrýtið að mörgu leyti. Þarna er hugmynd til að mynda um að auglýsingafé, auglýsingatekjum RÚV verði veitt til annarra fjölmiðla, það sé einhver auglýsinga- eða sölustjóri hjá Ríkisútvarpinu sem hringir í fyrirtækin í landinu og biður þau um að auglýsa hjá sér, kannski magninnkaup eða hvað það nú er, og svo á 12% af því fé að renna til einkarekinna fjölmiðla. Þetta er einhvern veginn týpísk kerfislausn. Það er svona vinstri fnykur jafnvel af henni. Ég sé ekki að þetta geti nokkru breytt. Þá er þarna í raun og veru farið í öfuga átt við það sem er lagt til í því frumvarpi sem við ræðum hér í dag, þ.e. að felldar verði út kvaðir um fjölda rása þannig að Ríkisútvarpið geti breitt enn frekar úr sér. Þá vil ég einmitt í þessu sambandi segja að ég er fylgjandi Ríkisútvarpinu. Ég tel að það sé mjög mikilvægt gagnvart íslensku samfélagi, íslenskri menningu og íslenskri tungu. Ríkisútvarpið hefur mjög mikilvægu hlutverki að gegna þannig að því sé haldið til haga. En það er nákvæmlega ekkert fengið með því að Ríkisútvarpið sé að bjóða í, í samkeppni við innlenda fjölmiðla, bandaríska afþreyingarþætti. Það skilar engu nema því að verðið til íslenskra fjölmiðla verður hærra.
Svo eru þarna aðrir þættir sem ég sé ekki ástæðu til að fjalla um í löngu máli. Auðvitað er þetta ekkert alslæmt. Það eru þarna aðgerðir til að stöðva hugverkaþjófnað á fjölmiðlaefni í sjónvarpi og margt fleira. En þetta tekur ekki á vandanum sem er einmitt bara sá að samkeppnisstaðan, hvort heldur sem er gagnvart Ríkisútvarpinu eða erlendum samkeppnisaðilum, er svo skökk að íslenskir fjölmiðlar berjast í bökkum.
Þá komum við að efni þessa frumvarps sem er ætlað að tækla þessa stöðu að einhverju leyti. Það tekur reyndar ekki á því, og það er kannski bara næsta mál á dagskrá, sem ég nefndi hér fyrr, að fella út eftir því sem frekast er unnt íþyngjandi kvaðir í núgildandi fjölmiðlalögum. Ég hef sjálfur kynnt mér efni þeirra og eitthvað af reglunum þar er auðvitað komið úr Evrópuréttinum sem okkur ber skylda til að innleiða. En við athugun mína kemur í ljós að þar er um fullkomna blýhúðun að ræða oft á tíðum, þar sem svigrúm EES-réttarins er ekki nýtt heldur gengið jafn langt og kostur er, akkúrat til þess að setja kvaðir á fjölmiðlun.
Þarna er verið að búa þannig um hnútana að Ríkisútvarpið sinni því hlutverki sem það á og þarf að gegna. Það er mælt fyrir um brotthvarf Ríkisútvarpsins af auglýsingamarkaði, sem er nauðsynlegt skref að mínu viti. Það er mælt fyrir um það að Ríkisútvarpið verði þá sjálfstæð, mér finnst rétt að það komi líka fram, ríkisstofnun sem lýtur stjórn útvarpsráðs og heyrir ekki undir boðvald ráðherra líkt og kannski mátti skilja af umræðum hér aðeins fyrr í dag. Þetta skiptir máli. Þá er þarna mælt fyrir um það að í staðinn fyrir útvarpsgjald fari Ríkisútvarpið einfaldlega á fjárlög. Ég tel að það fari betur á því af mörgum ástæðum. Það er eðlilegra og eins og kemur svo sem fram, út af því að útvarpsgjaldið er nefskattur, þá hefur gjaldið mismikil áhrif á, á fjárhag heimilanna. Það er sem sagt ekki háð tekjum viðkomandi heimilis. Þannig að þetta horfir til einföldunar og meiri sanngirni að mínu viti.
Þá er mælt fyrir um ívilnanir til einkarekinna fjölmiðla í stað styrkja. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hlutverk okkar, stjórnmálanna, löggjafans að búa þannig um hnútana að setja almennar reglur sem einkamarkaðurinn getur svo spilað eftir og blómstrað. Styrkjakerfið er einhvers konar neyðarlausn, kannski besta hugmyndin sem stjórnmálin gátu sammælst um á þeim tíma, en hún býður heim þeim freistnivanda sem við höfum fjallað um hér í dag, sem sagt að stjórnmálin fari að ákveða hvaða fjölmiðlar fái styrki og hverjir ekki. Og það er bara svo vandasamt í lýðræðisþjóðfélagi að ég vil forðast það eftir fremsta megni, einmitt til þess að bjóða ekki heim þeirri hættu eins og birtist hér í fyrra, að stjórnmálamönnum, jafnvel stjórnarþingmönnum, sem mislíkar aðhald, lýðræðislegt aðhald fjölmiðla í landinu fari svona að leitast við að hefna sín. Það gengur auðvitað ekki. Þess í stað er farin hérna þessi almenna leið um ívilnanir til einkarekinna fjölmiðla í stað styrkja.
Þar má nefna tvennt. Það er í fyrsta lagi undanþága frá greiðslu tryggingagjalds af launum. Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu. Ég þekki það nú bara sjálfur sem sjálfstæður atvinnurekandi, kannski með 12 starfsmenn á launaskrá, og tryggingagjaldið munar því bara hvort þeir væru 13 þannig að tryggingagjaldið getur verið býsna stór biti í svona rekstri. Hitt atriðið er sú breyting að búa þannig um hnútana að virðisaukaskattur leggist ekki á áskriftir innlendra fjölmiðla. Virðisaukaskatturinn hér á landi er hærri en annars staðar. Í Danmörku er enginn virðisaukaskattur og í Noregi er hvorki innheimtur virðisaukaskattur af prentmiðlum né netmiðlum. Ég held að þetta sé skynsamlegt mál, að uppleggið sé skynsamlegt.
Að lokum, ég sé nú að tími minn fer að klárast, vil ég vekja athygli, frú forseti, á umsögn Blaðamannafélags Íslands frá síðasta hausti um frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Þar kemur Blaðamannafélagið einmitt inn á þessi tvö seinni atriði sem ég var að nefna. Blaðamannafélagið kemur hér með tíu tillögur um aðgerðir til að bæta stöðu íslenskra fjölmiðla og efla blaðamennsku. Og þar er liður nr. 2 að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Blaðamannafélagið leggur til að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Svo er fjallað um hagfelldara skattumhverfi fyrir fjölmiðla og það er þá einmitt akkúrat þetta sem ég var að ræða hér, annars vegar að fella niður virðisaukaskattinn og hins vegar tryggingagjaldið. Blaðamannafélagið talar fyrir þessu.
Svo að lokum það sem ég tel rétt að nefna og mætti kannski skoða nánar, þ.e. einhvers konar heildarstefnumótun í málaflokki fjölmiðla sem er kannski heila málið, er grundvöllur árangurs. Annars förum við af leið eins og ég tel að hafi gerst með fjölmiðlalögin þar sem uppleggið var að efla tjáningarfrelsi, styrkja blaðamennsku í landinu og efla fjölmiðlana, en þess í stað sitjum við uppi með þá stöðu að ríkisvaldið krefst þess að hlaðvörp séu skráð hjá hinu opinbera og að ef venjulegt sjónvarpsefni sem er þó bannað börnum innan 12 ára (Forseti hringir.) birtist fyrir kl. 22 á föstudögum þá þarf að greiða sekt fyrir það. — Ég hef lokið máli mínu, forseti.