endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Virðulegi forseti. Þetta mál snýst um hlutverk ríkisins á fjölmiðlamarkaði. Það snýst um það hvort eðlilegt sé að ríkið sé stærsti einstaki aðilinn á markaði sem á sama tíma á að byggja á fjölbreytni, samkeppni og ólíkum sjónarmiðum. Við þurfum reglulega að endurmeta gamlar forsendur með samfélagslegum breytingum. Það er nauðsynlegt. Ef það færi fram þarfagreining í dag, myndi einhver leggja til að eitt af mikilvægustu hlutverkum ríkisins væri að reka stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins? Ég tel að fæstir myndu komast að þeirri niðurstöðu. Líklegt er að áherslan yrði frekar lögð á heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, öryggi og innviði, svo eitthvað sé nefnt. Til þess að komast að annarri niðurstöðu þarf sérstaka sýn, þá sýn að ríkið sé talið best til þess fallið að vera alls staðar fyrirferðarmikið. Væri einhver sérstök ástæða fyrir því að ríkið ræki ríkisdagblað og dreifði því inn á hvert heimili á kostnað skattgreiðenda? Ég held að flestir myndu telja það óeðlilegt. Samt eru rökin í grunninn þau sömu. Ef ríkið á að vera ráðandi á einum hluta fjölmiðlamarkaðarins þarf að útskýra hvers vegna sömu rök eiga ekki við annars staðar. Fjölmiðlaheimur dagsins í dag er allt annar en hann var fyrir nokkrum áratugum. Þá voru fáar leiðir til miðlunar upplýsinga. Nú búa landsmenn við nánast ótakmarkað aðgengi að efni frá innlendum og erlendum miðlum. Hlaðvörp, streymisveitur, netmiðlar og samfélagsmiðlar hafa gjörbreytt stöðunni. Það sem kann að hafa verið réttlætanlegt á sínum tíma fyrir mörgum áratugum er ekki réttlætanlegt í dag.
Undirritaður var fyrsti yfirmaður auglýsingadeildar Stöðvar 2 og ég man vel eftir því fyrstu árin þegar sjálfstæðir ljósvakamiðlar reyndu að hasla sér völl. Markaðurinn var vanur að auglýsa í sjónvarpi ríkisins eða í Morgunblaðinu. Það þurfti að hugsa út fyrir boxið, koma með nýjungar í framleiðslu sjónvarpsauglýsinga, opna þá leið fyrir fleirum, efla kostun og fjölmargar aðrar nýjungar sem þykja sjálfsagðar í dag. Það tók tíma að sannfæra auglýsendur um að nýr valkostur væri til staðar. Þetta var hörð barátta og það var aldrei auðvelt að keppa við aðila sem naut yfirburðastöðu og beitti henni grímulaust. Auglýsingamarkaðurinn hefur tekið miklum breytingum á 40 árum eða frá því að sjálfstæðir ljósvakamiðlar fóru í loftið. Áður stóð valið á milli örfárra miðla. Í dag sækja alþjóðlegir tæknirisar stóran hluta auglýsingatekna. Innlendir fjölmiðlar glíma við meiri samkeppni en nokkru sinni fyrr. Við þær aðstæður þarf sérstaklega að huga að því að ríkið skapi ekki frekara ójafnvægi á þessum markaði.
Þegar litið er yfir stöðuna í dag er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að RÚV sé í raun fíllinn í kristalsbúðinni. Það ber höfuð og herðar yfir aðra fjölmiðla þegar kemur að umfangi, fjárhagslegum styrk og möguleikum til dagskrárgerðar. Það er ekki gagnrýni á starfsfólk RÚV heldur á kerfið sjálft. Þegar einn aðili er orðinn svo sterkur hefur það óhjákvæmilega áhrif á allt í kringum sig, allt það umhverfi sem þessi fjölmiðill starfar í. Smærri fjölmiðlar þurfa síðan sífellt að laga sig að nýjum veruleika sem þeir hafa ekki mótað sjálfir og hafa takmarkaða möguleika á að bregðast við. Þegar ríkið leggur milljarða króna árlega til eins aðila skapast ruðningsáhrif. Einkareknir fjölmiðlar þurfa að afla allra sinna tekna á markaði en keppa við aðila sem nýtur gríðarlegs stuðnings. Afleiðingin er minni fjölbreytni, minni fjárfesting og færri sjálfstæðar raddir. Það er því þversagnarkennt þegar slíkt fyrirkomulag er réttlætt með vísan til fjölbreytni.
Farin hefur verið sú leið að gefa hér ölmusu úr hnefa ríkissjóðs með pólitísku inngripi eins og dæmin sanna. En það var auðvitað alveg sérlega ósmekklegt og sýnir innrætið í þeim hv. þingmönnum sem þannig töluðu þegar þessi mál voru til umræðu hér á síðasta þingi og menn fóru að tala um að það ætti að draga úr framlögum til ákveðinna miðla af því að þeir þóknuðust ekki málflutningi ríkisstjórnarflokkanna. Þetta sýnir í raun að hin pólitíska staða er alvarleg þegar kemur að þessu, þegar viðhorf ákveðinna þingmanna innan ríkisstjórnarflokkanna eru opinberuð með slíkum hætti. Þessi ölmusa úr hnefa ríkissjóðs er hættuleg. Hún er óskynsamleg nálgun. Það sem þarf að gera er að breyta umhverfinu með þeim hætti að sjálfstæðir fjölmiðlar geti þrifist í öflugri samkeppni við ríkisfjölmiðil sem er sjálfsagt að draga úr umfangi á starfseminni hjá.
Lýðræði krefst fjölbreytni í umræðu. Við þurfum raddir. Það þarf samkeppni hugmynda. Það þarf ólíka ritstjórnarstefnu. Það þarf sterka miðla sem geta veitt stjórnvöldum aðhald. Ríkisfjölmiðill getur mögulega verið hluti af þeirri mynd en hann getur aldrei komið í staðinn fyrir fjölbreytt fjölmiðlaumhverfi. Það er alvarlegt þegar forystumenn ríkisstjórnar velja sér að hentugleika vettvang til umræðu í fjölmiðlum. Þegar ráðherrar neita að koma í samtalsþætti hjá samkeppnisaðilum ríkisfjölmiðilsins, eins og hjá Morgunblaðinu eða öðrum miðlum þar sem þeir eiga von á krefjandi spurningum og harðri gagnrýni. Þeir kjósa að fara frekar í viðtöl þar sem minna reynir á málstað þeirra, gjarnan í svokölluð drottningarviðtöl. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál og veikir opna umræðu. Valdhafar eiga að vera reiðubúnir að mæta gagnrýnum spurningum og þeir eiga að hafa þá skyldu að mæta þar sem þeim er boðið. Þetta er auðvitað enn mikilvægara í ljósi þeirrar þróunar sem hefur orðið í fjölmiðlaumhverfinu. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar kom hér í pontu áðan í andsvari og hafði orð á mikilvægi frjálsra fjölmiðla, því aðhaldi sem þeir veittu stjórnmálum og stjórnmálamönnum. Framferði forystumanna ríkisstjórnarinnar, ráðherra ríkisstjórnarinnar, þar sem þeir neita að mæta hjá ákveðnum fjölmiðlamönnum eða í ákveðnum fjölmiðlum til umræðu, er ein leið líka til að veikja þetta umhverfi, til að draga úr mætti frjálsrar fjölmiðlunar og eflingu umræðunnar. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál, virðulegur forseti, og algjörlega ómöguleg staða. Hvort þetta er merki um lítið sjálfstraust eða hreinlega það að markmiðið sé að veikja svo gagnrýna fjölmiðlaumræðu á hverjum tíma að það sé með skipulögðum hætti gert. Hvort tveggja eða hvað sem veldur þessu er alvarleg staða og það er ástæða til að hvetja hæstv. ráðherra til að láta af þessari vitleysu.
Virðulegur forseti. Ríkið á að tryggja ákveðna almannaþjónustu. Það á að tryggja að fjölmiðlar séu þátttakendur í öryggi borgaranna, að hugað sé að framleiðslu á öflugu menningarefni, að dreifingu öflugrar fjölmiðlunar um allt land og að sinna verkefnum sem markaðurinn hefur kannski ekki nægileg tækifæri til að sinna. En það á ekki að vera með þeim hætti að ríkið reki stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins á mörgum sviðum. Það er hægt að gera með mörgum öðrum leiðum, til að mynda að bjóða út fjármagn til slíkrar dagskrár- eða fjölmiðlaútgáfu. Það er hægt að skilgreina verkefnið betur og kaupa þjónustuna með gagnsæjum hætti. Um þetta höfum við fjöldamörg önnur dæmi í okkar samfélagi þar sem við höfum kosið að fara með miklu opnari hætti út á markaðinn. Vegagerðin rekur ekki fyrirtæki sem byggir vegi eða grefur göng. Þannig eru auðvitað fjölmörg verkefni rekin í okkar samfélagi þar sem við reynum að fara sem best með og fá sem mest fyrir skattfé borgaranna.
Virðulegur forseti. Ég er sannfærður um að ef óháð þarfagreining færi fram á íslenskum fjölmiðlamarkaði í dag yrðu lykilorðin fjölbreytni, samkeppni, hagkvæmni og öflug samfélagsleg þjónusta. Frumvarpið er varlegt skref í þá átt. Það er ekki endapunktur. Það er upphaf að nauðsynlegri umræðu um framtíð fjölmiðlunar og hlutverk ríkisins á þeim vettvangi.