endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Frjáls fjölmiðlun er gríðarlega mikilvæg og öll ríkisafskipti af fjölmiðlum eiga að vera varfærnisleg. Staðan sem er uppi í fjölmiðlum í dag er grafalvarleg. Eini fréttatíminn í línulegri dagskrá er frá Ríkisútvarpinu, annars er miðlun frétta búin að færast yfir á internetið. Fjölmiðlun af hendi Sýnar er nú rekin undir formerkjum Bylgjunnar og Vísis. 40 ára sjónvarpsfréttaflutningi frá Stöð 2, og nú í seinni tíð Sýn, lauk núna nýverið. Við viljum hafa fjölbreytta flóru af sjálfstæðum fjölmiðlum sem hafa fjárhagslega burði til þess að veita stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, fyrirtækjum og öðrum valdhöfum aðhald. Aðeins ein sjónvarpsfréttastofa er starfandi í landinu og það er ríkisrekin fréttastofa — aðeins ein ríkisrekin sjónvarpsfréttastofa. Þetta er grafalvarlegt mál. Í löndum eins og Norður-Kóreu og Túrkmenistan er sama staða uppi: Aðeins ein ríkisrekin sjónvarpsfréttastofa. Þetta eru lönd sem við berum okkur alls ekki saman við og viljum aldrei vera stödd á sama stað og þau.
Ríkisútvarpið vex og tekur til sín auglýsingatekjur. Hérna er frumvarp sem mælir fyrir um það að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði. Það myndi auka samkeppni annarra einkarekinna fjölmiðla til muna og hefði mögulega verið líflína fyrir fjölmiðla sem nú eru ekki lengur til. Við sjáum rándýr auglýsingapláss, eins og t.d. fyrir áramótaskaupið, Söngvakeppnina og Eurovision. Það má meira að segja halda því fram að eftir að RÚV tók þá ákvörðun að taka ekki þátt í Eurovision sé búið að selja þau auglýsingapláss, t.d. fyrir Söngvakeppnina, og þess vegna hafi verið búinn til þáttur svo hægt væri að nýta þessi pláss og fá þessa peninga. Þetta er einungis getgáta en ég held að það sé ansi nærri sannleikanum. Við eigum að stefna að markaði þar sem einkareknir fjölmiðlar hafa raunverulegt svigrúm til að vaxa, fjárfesta í blaðamennsku og standa á eigin fótum. Þess vegna er umræðan um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði miklu stærri en spurningin um auglýsingar.
Það væri heillaskref að setja RÚV á fjárlög. Báknið þenst út eftir því sem Íslendingum fjölgar og RÚV tekur til sín tekjur sem verða alltaf hærri og hærri. Með því að RÚV verði sett á fjárlög myndi það hafa skilgreint fjármagn til þess að eyða. Manni sýnist á öllu hjá Ríkisútvarpinu að úr nógu sé að moða: TikTok, fjöldamörg hlaðvörp og fleiri og fleiri starfsmenn. Fjárframlög ríkissjóðs til Ríkisútvarpsins eru núna t.d. 7 milljarðar að undanskildum auglýsingatekjum. Svo koma 3 milljarðar inn af auglýsingatekjum. Þessir 3 milljarðar hefðu t.d. verið ansi góð innspýting fyrir aðra fjölmiðla í landinu. Ef RÚV hefði ekki verið á auglýsingamarkaði þá værum við kannski með fleiri starfandi sjónvarpsfréttastofur. Hver veit?
Almannavarnahlutverk Ríkisútvarpsins er ekki eins mikilvægt og það var hér áður fyrr. RÚV hefur meira að segja verið síðast til að flytja fréttir um náttúruvá, eins og sýndi sig ítrekað hvað varðar Reykjaneselda. Einkareknir fjölmiðlar fengu nýverið aukafjárframlag frá ríkissjóði vegna þess að þeir sýndu vissulega fram á að þeir sinna líka almannavarnahlutverki. Þetta átti að vera líflínan sem hið opinbera kastaði til einkarekinna fjölmiðla. Og hvert erum við komin núna þremur mánuðum seinna? Alls ekki á betri stað. Við eigum að hleypa súrefni inn í þennan geira og byggja undir þær stoðir þannig að hérna verði frjáls fjölmiðlun í hávegum höfð, en ekki gera fjölmiðla að þiggjendum frá ríkinu og beita þeim á ríkisjötuna.
Svo göngum við svo langt að fjölmiðlanefnd sendir hlaðvarpsstjórnendum ítrekað bréf og skipar þeim að skrá sig sem fjölmiðil þegar þetta eru stundum bara vinir að ræða málefni líðandi stundar. Og ef þau skrá sig ekki sem fjölmiðil þá skulu þau sko borga háa sekt, allt að 10 millj. kr. Hvert erum við eiginlega komin? Inngrip ríkisins í frjálsa fjölmiðlun er hættulegt. Við höfum séð stjórnarliða og ráðherra ítrekað reyna að höggva í einn ákveðinn fjölmiðil. Þeir neita að koma þangað og það hefur gengið svo langt og því haldið fram að þessi miðill eigi sko ekki að fá jafn mikinn pening og hinir. Þetta er grafalvarlegt. Fjölmiðlar eiga að veita okkur stjórnmálamönnum aðhald með því að spyrja spurninga, oft erfiðra spurninga, en til þess eru fjölmiðlar. RÚV hefur verið ríkjandi á markaðnum í allt of langan tíma og er með gríðarlegt forskot á aðra fjölmiðla. Ég tel að þetta frumvarp, ef það nær fram að ganga, yrði frjálsri fjölmiðlun til heilla.
Hv. þingmaður og framsögumaður, Hildur Sverrisdóttir, fór yfir þetta hérna í afar góðri ræðu. Við þurfum að íhuga verulega hvernig umhverfi við viljum skapa frjálsum fjölmiðlum í þessu landi. Við sem sitjum í þessum sal sköpum þetta umhverfi; hvort við viljum reyna að hafa margar raddir í staðinn fyrir fáar, hvort þetta á að vera áfram í núverandi ástandi eða ekki o.s.frv. Við þurfum að gera eitthvað a.m.k. því að núverandi staða er óboðleg og grafalvarleg.
Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál heils hugar og vona að það nái fram að ganga, íslensku fjölmiðlaumhverfi til heilla. — Ég hef lokið máli mínu.