158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[15:43]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða og ég þakka framsögumanni Hildi Sverrisdóttur fyrir einkar góða framsögu og góð svör við andsvörum sem komu í kjölfar hennar framsögu. Það ber líka að þakka hv. fyrrverandi þingmanni, Óla Birni Kárasyni, fyrir að taka þetta mál saman og gera það svona vel því þarna liggur mikil vinna að baki. Þetta er ekki eitthvað sem er hent inn í gervigreindina og prentað út, einn, tveir og þrír. Þarna er mikil og góð vinna að baki enda málefnið brýnt og skiptir máli að það sé vandað til verka þegar við ræðum um Ríkisútvarpið, sem ég held að langflestum landsmönnum þyki afar vænt um.

Í þessari ræðu minni langar mig svolítið að setja þetta frumvarp, sem við í Sjálfstæðisflokknum erum að leggja fram, í almennt samhengi og almennan búning og reyna að taka dæmi sem gætu lýst stöðunni þannig að fólk fái vonandi gleggri mynd af því sem við viljum að gangi fram, þ.e. í þessu frumvarpi. Spyrjum okkur að því: Ef við værum að hanna íslenskan fjölmiðlamarkað frá grunni í dag, myndum við gera þetta svona eins og þetta er í dag? Ef við fengjum bara autt blað, myndum við gera þetta svona? Myndum við stofna stórt ríkisrekið fjölmiðlafyrirtæki og fjármagna með milljörðum úr sameiginlegum sjóðum landsmanna, senda það síðan út á markaðinn til að keppa um sömu auglýsingakrónurnar og fyrirtækin sem þurfa sjálf að afla hverrar krónu sem þau eyða? Við skulum átta okkur á því að einkareknir fjölmiðlar ganga ekki fyrir neinu öðru en auglýsingatekjum. Það er þeirra lífæð, það er þeirra sólarljós eins og grænu plöntunnar.

Annað dæmi: Segjum að okkur þætti mataræði landsmanna vera orðið vont og við myndum vilja tryggja að allir fengju heilnæmt og gott brauð. Við myndum stofna ríkisbakarí og ríkissjóður tryggði reksturinn og borgaði húsnæði, starfsfólk og grunnreksturinn. En eftir að við værum byrjuð að baka brauðið og myndum afhenda íbúum það, það væri svona grunnurinn í matarræðinu, þá færi þetta bakarí líka að baka snúða, kleinur og tertur og væri að keppa um veislurnar, fermingarnar og brúðkaupin, keppa við einkaaðila. Ég held að engum þætti þetta sanngjarn vígvöllur að keppa á, hvar sem er og hvort sem það er bifreiðaverkstæði ríkisins, bakarí ríkisins eða annað. Bakarinn hinum megin við götuna myndi líklega segja: Ég er ekkert að mótmæla því að ríkið tryggi fólki gott og hollt brauð ef það telur það nauðsynlegt en ef skattgreiðendur standa undir rekstri ríkisbakarís, hvers vegna þarf það þá líka að fara út í að baka snúða, kökur og tertur?

Þetta er svona grunnspurning sem þetta frumvarp fjallar um. Það er ekki hvort Ríkisútvarpið eigi að vera til eða hvort við viljum hafa öfluga fréttaþjónustu, það viljum við. Við viljum líka tryggja íslenska tungu, menningu og miðlun upplýsinga því að íslensk tunga á undir högg að sækja og það skiptir máli að það sé a.m.k. eitt sterkt akkeri sem sinnir því að viðhalda íslenskri tungu meðal okkar landsmanna. Spurningin er: Hvar endar hlutverk ríkisins og hvar eiga frjálsir fjölmiðlar að fá að starfa? Þetta frumvarp sem ég er flutningsmaður að ásamt fleiri Sjálfstæðismönnum gengur út frá því að Ríkisútvarpið verði áfram öflug stofnun. Við viljum ekki veikja RÚV, við viljum áfram hafa það öfluga stofnun. Það verði fjármagnað fyrst og fremst með fjárveitingum Alþingis og áfram verður lögbundið hlutverk þess til staðar. Það er ekkert verið að skerða það. En við viljum gera þessar leikreglur skýrari.

Við getum ímyndað okkur að tvö fyrirtæki séu að keppa um sama einstaklinginn, sama viðskiptavininn. Annað þeirra veit að óháð því hvernig því gengur þá fær það alltaf milljarða í vasann. En hitt veit að ef því ekki gengur vel þá er ekki hægt að borga launin næsta föstudag. Þetta eru ekki sömu rekstrarskilyrði. Við höfum bara séð það á íslenskum fjölmiðlamarkaði að fjölmiðlar leggja upp laupana í samkeppni við ríkið, einkafjölmiðlar. Þetta er ekki bara einhver pólitísk kenning okkar sem stöndum að þessu frumvarpi. Í greinargerð frumvarpsins sem við flytjum hér er rifjað upp álit Samkeppniseftirlitsins frá 2008, þar sem er bent á samkeppnislega mismunun vegna stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og að opinber fjármögnun þess sé til þess fallin að skekkja samkeppnisstöðu á markaði. Ríkisútvarpið er langstærst en nýtur samt verulegs stuðnings, milljarða á milljarða ofan, og er allsráðandi á auglýsingamarkaði, markaði sem hin fjölmiðlafyrirtækin þurfa til að lifa af.

Það hefur orðið gríðarleg breyting síðan 2008 á fjölmiðlamarkaði. Stór fyrirtæki á borð við Facebook og Google, alþjóðleg fyrirtæki, hafa komið af gríðarlegum krafti inn á markaðinn. Ríkisstjórnin sem ætlaði nú að auglýsa í íslenskum miðlum hefur samt sem áður verið að moka peningum í þessi stórfyrirtæki, sem er ekki gott. Staða íslenska einkamiðilsins er orðin ansi veik og menn berjast í bökkum. Þessi fyrirtæki á einkamarkaði eins og Sýn, Morgunblaðið og fleiri, eru að berjast við stærstu tæknifyrirtæki heims annars vegar og svo íslenskan ríkisfjölmiðil hins vegar sem hefur skattgreiðendur á bak við sig. Þetta er hálfvonlaus staða fyrir einkafjölmiðlana. Þetta er vond samloka að vera fastur í.

Í þessu frumvarpi hér sem ég mæli fyrir með félögum mínum í Sjálfstæðisflokknum er gert ráð fyrir því að Ríkisútvarpið hverfi í reynd af hinum viðskiptalega auglýsingamarkaði og láti einkamiðlunum þennan auglýsingamarkað eftir. RÚV verði óheimilt að afla tekna með kostun dagskrárefnis og auglýsingum settar mjög þröngar skorður. Áfram verður heimilt að birta endurgjaldslaust tilkynningar um opinbera þjónustu, hjálparbeiðnir líknarstofnana auk tilkynninga um eigin dagskrá og svo auðvitað tilkynningar frá almannavörnum eða hjálparbeiðnir frá líknarsamtökum. Það er augljóslega ekki það sama og að ríkisfyrirtæki keppi við einkafyrirtæki á auglýsingamarkaði. Þarna er skýr lína dregin. Ríkið fjármagnar opinbera hlutverkið en ríkisfjölmiðillinn er ekki í viðskiptalegri samkeppni við einkarekna fjölmiðla um auglýsingakrónur. Þetta á bara við um allt. Það er ekki hægt fyrir eitt einasta einkafyrirtæki að keppa við ríkið. Það skiptir engu máli hvernig reksturinn er, það er alltaf dælt inn peningum. En reksturinn hjá einkafyrirtæki skiptir máli, fyrirtæki fara bara á hausinn. Og hvað þá þegar uppspretta fjár eða uppspretta tekna er á auglýsingamarkaði og ríkið tekur stærstan hluta þess. Það er eitthvað mjög bogið við það.

Útvarpsgjaldið er sérstakt gjald. Árið 2026 greiðir einstaklingur sem uppfyllir tekjuskilyrðin 22.400 kr. á ári og það er flatt gjald, jafnt á alla. Hlutfallslega leggst þetta auðvitað langþyngst á þá sem lægstar hafa tekjurnar. Þeir sem eru með um milljón í laun á mánuði geta nú líklegast klofið þetta með einhverjum afborgunum en fyrir þá sem eru á lægstu laununum tekur þetta í. Fyrir hjón geta tæpar 45.000 krónur á ári skipt máli í heimilisbókhaldinu. Það er bara staðan. Og það sem er einkennilegt, og ég held að flestum þyki það nú, meira að segja stjórnarliðum, er að þetta gjald er tengt fjölda einstaklinga sem eru gjaldskyldir. Það vex sem sagt ekki vegna þess að verkefnum innan stofnunarinnar fjölgar eða það þarf að fara í dýpri einhvers konar fréttaskýringar heldur vex þetta gjald eftir því sem Íslendingum fjölgar. Því fleiri, því meiri peningur, óháð því hvað Ríkisútvarpið er að gera. Þetta er stórfurðulegt. Það sama yrði náttúrulega ef helmingurinn af landsmönnum flytti af landi brott, þá myndu tekjur ríkisins í gegnum útvarpsgjaldið skerðast um helming. Það væri þá líka erfitt. Þess vegna er sérstakt að festa þetta svona og við erum að leggja til að það verði ekki þannig. Það er kannski hægt að líkja þessu við að fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar færu eftir því hvað margir bílar væru til í landinu, eitthvað sem er algjörlega ótengt rekstri Landhelgisgæslunnar, það væri kannski þannig að því fleiri bílar, því meira fjármagn til Gæslunnar eða öfugt, því fleiri bílar, því minna fjármagn. Menn sjá að það er ekkert eðlilegt við þetta.

Ég vil bara nefna það hér líka, frú forseti, að þetta frumvarp snýst ekki bara um RÚV. Það snýst líka um hitt lungað í íslenskum fjölmiðlum, sjálfstæðu fjölmiðlana. Ég vil gera mikilvægan greinarmun á þessu tvennu. Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af því að frjáls fjölmiðlun eigi að vera háð því að stjórnmálamenn safni peningum í pott og dreifi síðan til fjölmiðla, úthluti styrkjum. Við höfum bara séð það hér á þinginu að menn hafa haft í hótunum við frjálsa fjölmiðla og síðan gerist það í frumvarpi hér að þær hótanir raungerast. Þetta mátti t.d. sjá þegar Morgunblaðið fékk lægri styrki og var hótað því. Það er eitthvað skrýtið þegar pólitíkin getur haft svona bein áhrif á fjölmiðla. Ég vil skapa rekstrarumhverfi þar sem frjálsir fjölmiðlar geta staðið á eigin fótum og það er sú hugsun sem birtist í frumvarpinu. Við erum ekki að afnema fjölmiðlastyrki á einni nóttu. Frumvarpið gerir það ekki. Við viljum halda þeim þangað til að rekstrarumhverfið hefur batnað en við viljum breyta hugsuninni.

Einkareknir skráningar- eða leyfisskyldir fjölmiðlar fá samkvæmt frumvarpinu undanþágu frá tryggingagjaldi af launum upp að ákveðnum mörkum og virðisaukaskattur á áskriftum innlendra fjölmiðla verður felldur niður. Þetta er til hagsbóta fyrir einkarekna fjölmiðla og mun vonandi fjölga áskrifendum og kannski fjölga blaðamönnum eða mönnum sem vinna í þessum geira og fyrir vikið eflast miðlarnir. Þetta er bara einföld hugmynd. Látum fjölmiðilinn halda meira eftir af þeim verðmætum sem hann skapar, því að einkareknir fjölmiðlar skapa fullt af verðmætum, í stað þess að taka af honum fyrst peningana og láta hann síðan sækja um hluta þeirra aftur frá ríkinu. Þetta er heilbrigðara samband á milli ríkisvalds og frjálsrar fjölmiðlunar.

Mig langar líka bara að nefna það svona í framhjáhlaupi að ef þú ert kominn á einhvers konar fjárveitingu þá er töluverð hætta á því að sjálfsbjargarviðleitni minnki. Þú veist að það er alltaf von á peningum til þín. Frumkvæðið minnkar og nýsköpun minnkar ef þú þarft ekki að stækka og þarft ekki að afla meiri tekna. Þetta er mikilvægur punktur sem er, held ég, innprentaður í öll okkar sem göngum á þessari jörð, við þurfum ákveðinn hvata til að standa okkur. Hér segjum við bara beint í þessu frumvarpi og það er kveðið á um það að a.m. k. 30% af framlagi ríkisins til RÚV fari til kaupa á efni frá sjálfstæðum framleiðendum. Hérna erum við þá að tala um að það þurfi ekki allt að vera framleitt á RÚV. RÚV er hvorki að framleiða bílana sem starfsmenn keyra á né tölvurnar, það þarf ekki alltaf að framleiða allt innan veggja RÚV.

Ég sé, frú forseti, að tíminn er eiginlega búinn þannig að ég lýk máli mínu að svo stöddu.