158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

14. mál
[15:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil fyrst þakka hv. flutningsmanni þessa máls, Hildi Sverrisdóttur, fyrir að leggja það fram í þriðja skipti og í fyrsta skipti kemst það hér til umræðu í þingsal. Í þessu máli er m.a. litið til með tillögum sem komu fram í skýrslu fjölmiðlanefndar sem Björgvin Guðmundsson fór fyrir árið 2017 þar sem gerðar voru ýmsar tillögur sem voru hugsaðar til að bæta rekstrarskilyrði einkarekinna miðla. Þau hafa verið með þeim hætti um langa hríð að skömm er að í öllu tilliti og okkur hér á Alþingi hefur einhvern veginn ekki tekist að ræða áhrif hins mikla umfangs Ríkisútvarpsins á markaði á einkareknu miðlana þannig að gagn sé að. Við sjáum hér árlega allt að því krampakennd viðbrögð stjórnvalda hvers tíma sem senda dúsu í átt til einkareknu miðlanna. Það eru einhverjar par 100 milljónir hér og par 100 milljónir þar við afgreiðslu fjárlaga hvers árs. Þetta er auðvitað algerlega óforsvaranlegt, að rekstrarumhverfi fjölmiðla sé svo vont, sé svo neikvætt og mótdrægt, að það sé raunverulega ekki hægt að reka einkarekinn miðil með forsvaranlegri fréttaþjónustu á Íslandi þannig að vit sé í og rekstrarforsendur séu til staðar. Ég hafði einhvern veginn séð fyrir mér að í þessu frumvarpi, með samþykkt máls eins og þessa sem hér liggur fyrir, yrði sömuleiðis tillaga um að þessir árlegu styrkir, sem voru tímabundnir einu sinni á ári en er núna búið að festa til nokkurra ára, féllu niður. En ég er sammála þeim rökum sem sett eru fram í greinargerð frumvarpsins um að það séu ekki forsendur til þess í dag. Svo lengi hafa menn heykst á því að laga rekstrarskilyrði einkareknu miðlanna að það er í raun ekki forsvaranlegt annað en að styðja við með þeim hætti sem hefur verið gert um ja, vonandi sem stystan tíma en þó einhvern. Svo slæm er staðan orðin og auðvitað bera bæði núverandi ríkisstjórn og sú sem á undan fór sína ábyrgð. Það er ömurlegt fyrir einkareknu miðlana að vera í þeirri stöðu að eiga rekstrarafkomu sína undir því að þingmannahópurinn hér í lok hvers árs samþykki ölmusu í þeirra átt. Ég bara vona að það upplegg sem hér er lagt til verði upptakturinn að því sem koma skal í þessum efnum. Það hvarflar ekki að mér, sérstaklega eftir andsvar hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar hér áðan, hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar, að það verði litið með neinni mildi, skynsemi eða jákvæðni til máls eins og þess sem hér liggur fyrir.

Sömu væntingar hef ég því miður um mál sem ég er sjálfur flutningsmaður að, sem snýr að því að almenningur fái heimild til að ráðstafa hluta nefskattsins, útvarpsgjaldsins, til þess miðils sem þjóðin kýs. Það er auðvitað þannig að ef þetta mál, eins og það er lagt fram, nær fram að ganga þegar það gerir það, því að einhvern tíma verða hér nýir herrar, þá verður sú nálgun sem ég legg til í raun óþörf og það er gott. Hún er auðvitað hugsuð til þess að gera þessa stöðu ívið skárri, sanngjarnari, draga úr yfirburðastöðu Ríkisútvarpsins á meðan málum í þessum efnum er hnikað til betri vegar. Ég held að það velkist enginn í vafa um það. Ég held að það sé bara ekki hægt að komast að þeirri niðurstöðu að staða Ríkisútvarpsins eins og hún er í dag hafi ekki alvarleg áhrif á rekstrarstöðu annarra miðla á Íslandi. Þær tillögur sem hér eru lagðar fram og varða það að Ríkisútvarpið verði gert að hefðbundinni stofnun, fært til þess vegar sem áður var fyrir ohf.-væðinguna, jafn óhönduglega og henni hefur undið fram, var innleidd hér upp úr aldamótunum. Ég held að það mæli allt með því að við förum í þá vegferð.

Staðan hefur verið svo ómöguleg hvað einkareknu miðlana varðar svo lengi að ég óttast það hreinlega að það sé orðið erfitt um vik að snúa við, að vinda ofan af þessari stöðu. En það er þó sem betur fer þannig að markaðurinn, einkaframkvæmdir, dugnaðurinn og driftin ýtir mönnum af stað og gefur mönnum styrk og kjark til að halda áfram þrátt fyrir erfið skilyrði nú um stundir. Ef menn telja sig sjá til lands, jafnvel þó að þetta mál nái ekki fram að ganga á þessu þingi, þá er hér verið að leggja ákveðna línu og menn geta þó í öllu falli horft til þess — mér þykir líklegt að meginhluti, ef ekki þorri stjórnarandstöðunnar, styðji í meginatriðum þá nálgun sem hér er viðhöfð, án þess að ég hafi gert formlega könnun á því — að það sér til lands, er óhætt að segja hvað einkareknu miðlana varðar. Einkareknu miðlarnir geta hugsað sem svo: Við sjáum þó til lands þótt staðan sé ömurleg nú um stundir.

En það kom til orðaskipta milli hv. framsögumanns málsins, Hildar Sverrisdóttur, og Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, áðan, sem er auðvitað í varaformannsslag í Samfylkingunni og þarf aðeins að ýfa fjaðrirnar nú um stundir. Það er auðvitað þannig að það var alveg ómögulegt, agalegt í öllu tilliti, að hlusta á hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson með hvaða hætti hann dylgjaði, ýjaði að hlutum og reyndi að leiða fram einhver óheilindi í þessu máli, sem nú er lagt fram í þriðja skipti en er að komast í fyrsta skipti til umræðu hér í sal, að það tengdist einhverjum fréttaflutningi eða ekki fréttaflutningi. Það dytti engum hér það í rauninni til hugar, held ég, að fara að tala hér nema af þessu tilefni um til að mynda trúnaðarmál og leka úr þingflokki Samfylkingarinnar sem nú er væntanlega til skoðunar hjá eftirlitsstofnun Seðlabankans, Fjármálaeftirlitinu og varðar upplýsingar um bankaskatt. Það er einn fjölmiðill sem ekki hefur flutt frétt af því máli. Vitið þið hver hann er? (Gripið fram í: RÚV.) Það nefnilega Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

Ég hvet hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson, sem er ekki hér í salnum núna en hann hlustar væntanlega á þetta einhvers staðar, til að huga aðeins að því hvernig hann gengur um gleðinnar dyr í þessum efnum. Því það sem liggur fyrir í þessu máli er að nái þetta fram að ganga mun það laga til mikilla muna stöðu einkareknu fjölmiðlanna. Um leið og það, eins og ég kom inn á í andsvari mínu við hv. framsögumann hér áðan, setur svona fram býsna miklar varnir fyrir ýmsum þeim hlutverkum sem Ríkisútvarpið sinnir í dag, annaðhvort lögbundnum eða hjartahlýjunni. Ég held einhvern veginn að staða fjölmiðla í landinu sé svo mikilvæg og þá er ég fyrst og fremst að hugsa til þeirra einkareknu því að hið opinbera apparat uppi í Efstaleiti hefur haft úr nægjanlegu að moða býsna lengi og það hefur verið vel fyrir því séð. Ég vil hvetja háttvirtan þingflokksformann Samfylkingarinnar til að nálgast þessi mál með öðrum og rismeiri hætti en gert var hér áðan.

En það eru atriði sem ég vil halda til haga og ég vil sérstaklega hrósa þeirri breytingu sem er nú ekki merkileg efnislega í raun en þó sendir ákveðin skilaboð. Mér hefur þótt óttalega undarlegt þetta nafn Ríkisútvarpsins undanfarið, frá því í síðustu stóru lagabreytingu, Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu. Þarf að segja það? Þetta er svona dálítið eins og þeir sem segjast vera uppfullir af réttlætiskennd. Það er ekki víst að þeir séu það en það að þeir telji sig þurfa að segja frá því dregur úr líkunum á að þeir séu það. (Gripið fram í: Rautt flagg. )Þetta er rautt flagg, nefnilega. Það að hafa þetta í nafni stofnunar er einhver sýndarmennska sem ég hef aldrei kunnað við og ég vil sérstaklega hrósa því. Þetta mun ekki draga úr hlutverki eða stöðu Ríkisútvarpsins að neinu marki nema því mögulega að eintök eins og ég hristi mikið lengur hausinn yfir þessu furðuviðbótarnafni Ríkisútvarpsins. Þetta er kannski einhver svona afleggjari af því þegar ráðherrar fóru að telja upp meira og minna allt sem þeir gera í starfstitli sínum, stórundarleg breyting sem varð hér fyrir nokkrum kjörtímabilum og verður vonandi undið ofan af á einhverjum tímapunkti.

Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir, framsögumaður málsins, nefndi það sérstaklega áðan í andsvari að hluti þessa máls væri byggður á grunni vinnu og hugmynda sem þáverandi hv. þm. Óli Björn Kárason, sem er einmitt að gefa út bók í dag og óska honum til hamingju með það, vann. Það hefur um árabil verið talað um að setja Ríkisútvarpið á fjárlög og ég man nú mest eftir því að hv. þm. þess tíma, Óli Björn Kárason, hafi talað um það, sem er partur af því sem hér er lagt til. Ég held að það sé til bóta. Þessi sjálfvirki tjakkur sem útvarpsgjaldið lýtur, eins og nú er, þar sem krónutalan er sífellt vísitölubætt en allir sem uppfylla skilyrðin, á milli 16 og 67 ára, með þeim fyrirvörum sem þar eru, og síðan öll skráð fyrirtæki, þurfa að greiða útvarpsgjaldið. Þarna þurfa allir að greiða útvarpsgjald, sama hvort þeir vilji nota þjónustuna eða yfir höfuð geti það. Ég held að það væri skynsamlegt að færa sig frá þeirri nálgun og fara í stað til þess að leggja mat á fjárþörf stofnunarinnar hverju sinni um leið og við stígum eitt skref til baka og hugsum: Heyrðu, hvað er það nú raunverulega sem Ríkisútvarpið ætti að vera að gera? Annars vegar hverjar eru lögboðnu skyldurnar og hins vegar hvað er forsvaranlegt að líta til með og verja þess utan? Dánarfregnir og jarðarfarir, þeim þætti útsendingar var lýst hér vel áðan og fleira mætti nefna.

Ég held að á sama tíma og við höfum Ríkisútvarpið í þeirri yfirburðastöðu sem það er, fjölmiðlanefnd í þeirri furðulegu vegferð sem hún er linnulaust í og þar fram eftir götunum, sé þetta til bóta. Þessi tillaga sem hér er lögð fram, að færa umhverfi og utanumhald Ríkisútvarpsins inn til þess gamla farsa, það væri ríkisstofnun með þeim, svo sem kostum og göllum sem því fylgir og þar með verði nefskatturinn, útvarpsgjaldið, aflagður með þeim hætti sem hann hefur verið innheimtur núna um langt árabil.

Það sem er sérstaklega gott í þessu, og ég held að ég komi inn á það í byrjun ræðu minnar, er að nálgast stuðninginn með ívilnunum. Þær hugmyndir sem hér eru lagðar fram varðandi tryggingagjald af launum starfsmanna, að fella niður virðisaukaskatt af áskriftarsölu og fleira mætti telja til úr þeirri skýrslu sem ég vísaði til í upphafi ræðu minnar, frá Björgvini Guðmundssyni og félögum 2017. Allt er þetta til bóta en þetta mun auðvitað, eins og framsögumaður kom inn á í framsögu sinni, taka tíma og þess vegna þykir mér, eftir að hafa glöggvað mig betur á, skynsamlegt að leggja ekki til í þessu máli strax að stuðningurinn verði sleginn af að fullu, sá sem viðhafður hefur verið þessi krampakenndi, heldur þurfi þetta með einhverjum hætti að fasa út, sá sem fær það verkefni að leggja mat á hvernig til hefur tekist.

Virðulegur forseti. Honum er u.þ.b. að ljúka, tímanum sem ég hef við þessa 1. umræðu. Ég vona að þetta mál vinnist áfram í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Það er mjög gott og ég held að það sé til lengri tíma litið gríðarlega mikilvægt að þessi skilaboð berist til einkareknu miðlanna, að þegar menn losna við núverandi stjórnvöld sé komin lausn, hvort sem hún verður önnur nýting útvarpsgjaldsins eða það sem hér er fyrir lagt (Forseti hringir.) þá sér til lands. Ég bara hvet þingmenn alla til að taka á þessu með jákvæðum hætti og tryggja að við fáum þetta mál (Forseti hringir.) til 2. umræðu og lokaafgreiðslu áður en þessu þingi lýkur.