158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

leikskólar.

80. mál
[17:12]
Horfa

Flm. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 80, en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla, nr. 90/2008. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þingmenn Kolbrún Baldursdóttir, Sandra Sigurðardóttir, Víðir Reynisson, Grímur Grímsson og Guðmundur Ari Sigurjónsson. Þess má geta að frumvarpið er lagt fram í sjötta sinn en það hefur áður verið lagt fram á 152., 154., 155., 156. og 157. löggjafarþingi. Ég vona heitt og innilega að ég þurfi ekki að leggja það fram aftur. En til þess að styðja þá niðurstöðu vil ég byrja á stuttri frásögn úr Reykjavík.

Í Laugardalnum í Reykjavík fer fjölskylda af stað út í sinn dag rúmlega sjö að morgni. Í bílnum sitja tvö ung börn í aftursætinu, annað í framvísandi bílstól og hitt í bakvísandi. Útifötin eru komin í tvær leikskólatöskur ásamt aukafötum. Svo hefst aksturinn. Annað barnið á að fara í leikskólann Hof sem er bara rétt hjá en litli bróðir fær hins vegar ekki að fylgja stóru systur sinni á leikskólann vegna þess að hann fékk ekki inni á sama leikskóla þó að hann sé orðinn tveggja ára gamall, hún á sínu síðasta ári. Hann er nefnilega hjá dagforeldri í Grafarholti. Það var ekki laust fyrir hann á Hofi en hann er á biðlista. Eins og staðan er núna gæti vel komið til þess að systir hans útskrifist áður en til þess kemur. Ferðalag fjölskyldunnar er því: Kjallaraíbúð í Laugardal, leikskólinn, Grafarholt og svo vinnustaður í vesturhluta Reykjavíkur. Sambærileg skemmtiferð er fyrir höndum að vinnudegi loknum, allt á móti umferð. Fjölskyldan þarf sennilega að kaupa annan bíl til þess að láta dæmið hreinlega ganga upp og líklega þarf annað foreldrið eitthvað að skoða að minnka við sig vinnu. Fyrir börnin verður þessi dagur mun lengri, meiri tíma varið í bíl og þetta eru heilt yfir ekki mjög miklar gæðastundir.

Þessi sviðsmynd er kunnugleg mörgum barnafjölskyldum sem hafa sett sig í samband við mig á undanförnum árum. Oft fékkst ég við það verkefni að aðstoða fólk í þessari stöðu í fyrra starfi mínu hjá Reykjavíkurborg þegar stóri úthlutunardagurinn í mars var afstaðinn eða hreinlega að koma. Það var hægt að stilla klukku. Alltaf var það svo að eftir sátu hópar fólks sem fengu pláss fyrir barnið sitt langt frá þeim leikskóla sem það bjó hjá þrátt fyrir val sitt og svo auðvitað þau sem hreinlega fengu ekki pláss. Þau þurfa mörg að bíða lengi, eins og ég segi, eftir því að fara með bæði börn eða jafnvel fleiri á sama leikskólann, hvort sem það var vegna þess að yngra barn fékk inni á öðrum leikskóla eða það stóð ekki til boða. Þetta er gömul saga og ný. Þess vegna legg ég til hér í sjötta sinn að það verði heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini, hvort sem þau hafa sama lögheimili eða ekki, eða börn sem hafa sama lögheimili, sem þá gætu verið stjúpsystkini eða halda saman heimili, geti sótt sama leikskóla. Jafnvel verði heimilt að taka mið af nálægð leikskóla við lögheimili barns og þar af leiðandi verði skrefið tekið aðeins lengra.

Núgildandi 26. gr. leikskólalaga veitir sveitarstjórnum almenna heimild til þess að setja reglur um innritun með tilliti til aðstæðna barna og foreldra og aðstæðna í leikskólum og þar við situr. Þetta er allt mjög opið. Þetta verkefni fékk embætti borgarlögmanns í fangið á sínum tíma þegar upp kom vafi um það hvort hreinlega væri hægt að forgangsraða í þágu systkina eins og var gert um árabil. Á grundvelli þess að þau eigi eldri systkini hafa yngri systkini oft staðið í lögmætri trú um að þetta sé einfaldlega eitthvað sem sé hægt að láta ganga upp. Þegar álitaefnið kom upp vil ég geta þess að það var já, vissulega í borgarstjórnartíð fyrri meiri hluta Sjálfstæðisflokksins á árunum 2006 til 2010. En þetta mál var ekki leyst út frá pólitískum áskorunum. Þetta var leyst út frá lögfræðinni og jafnræðisreglunni. Ég ætla nefnilega ekki að kenna pólitískri forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins um þessa niðurstöðu. Nei, hana eigum við lögfræðingarnir skuldlaust. Mjög þröng túlkun í boði lögfræðinga borgarinnar, því miður. Þetta er mín slekt, ég skal bera ábyrgð á þessu, þarna bar mögulega kappið fegurðina ofurliði við iðkun þeirrar lögfræði sem felst í túlkun jafnræðisreglu stjórnsýslulaganna, þó að ég hafi nú ekki persónulega komið að þessari ákvörðun. En sem fyrrverandi starfsmaður og lögfræðingur í stjórnsýslu okkar ágætu höfuðborgar er ég hreinlega ekkert endilega sammála þessari niðurstöðu. Ég er hins vegar í aðstöðu til þess að laga þetta. Ég tel nefnilega að núgildandi löggjöf geti rúmað forgangsröðunina sem hér um ræðir með lögmæt og málefnaleg sjónarmið að leiðarljósi. En óvissan er engu að síður orðin staðreynd.

Hér stendur okkur sem löggjafa til boða að eyða þessu, þ.e. búa bara til skýra lagaheimild fyrir sveitarfélög þessa lands til að forgangsraða. Ég og meðflutningsmenn mínir gefum meira að segja í og leggjum einmitt til að búseta verði líka tekin með í reikninginn. Það er nefnilega mikilvægt að það komi fram hér að það leggur enga skyldu á sveitarfélögin að notfæra sér þessar lagaheimildir, ekki neina skyldu. Þessi forgangur viðgengst reyndar í einhverri mynd í nokkrum sveitarfélögum en mesta óvissan ríkir í Reykjavíkurborg og vandinn gæti heimfærst á önnur sveitarfélög eftir því sem íbúum kann að fjölga og þau stækka að umfangi.

Virðulegi forseti. Ég vil stuttlega gera grein fyrir nýlegum úrskurði mennta- og barnamálaráðuneytisins frá því í febrúar síðastliðnum sem varpar að mínu mati nokkuð mikilvægu ljósi á stöðuna. Niðurstaðan var í stuttu máli sú að borgin hefði ekki beitt eigin reglum rétt um systkinatillit. Þar hafði ung fjölskylda verið í, eins og ég hef lýst hér, algengri aðstöðu. Eldra barn var á einum leikskóla en yngra systkini þess fékk ekki inni á þeim leikskóla og lenti á biðlista. Athugum að önnur börn innrituðust þó í þann leikskóla sem eldra barnið var í þannig að það var ekki því um að kenna að það væri hreinlega ekki pláss. Ráðuneytið féllst ekki á skýringar borgarinnar um að þetta yrði bara að vera svona. Ég veit að það hefur verið skerpt á úthlutunarreglum borgarinnar í kjölfar þessarar niðurstöðu, en getum við ekki sem löggjafi hreinlega fallist á að það sé rétt að meitla það í stein með stoð í skýrri lagaheimild að eðlilegt sé og rétt að systkini eigi í þessum tilfellum óumdeilanlegan forgang að fyrsta vali umfram börn sem lítið eldri eru og eiga ekki systkini í skólanum? Er ekki eðlilegra að þau stöku börn bíði átekta eftir milliflutningi í stað þess að foreldrar systkinanna hendist á milli tveggja skóla? Það líður alltaf einhver fyrir forgangsröðun. Það geta ekki allir notið forgangs, það liggur í hlutarins eðli, en þarna stendur borgin frammi fyrir því og önnur sveitarfélög að forgangsraða pólitískt. Hér er sá möguleiki á silfurfati.

Forseti. Það er ekki hægt að fara með lagafrumvarp hér inn í þennan sal án þess að taka litla tölfræði. Samkvæmt upplýsingum skóla- og frístundasviðs borgarinnar frá 18. mars á þessu ári voru 909 systkinahópar með fleiri en eitt barn í leikskólum borgarinnar. Í 702 tilfellum voru öll systkinin á sama leikskóla en í 207 tilvikum, nær 25%, voru systkinin á tveimur leikskólum. Þetta þýðir að fjórðungur barna sem eru systkini er á sitthvorum leikskólanum. Er þetta aðstaða sem við viljum sætta okkur við? Flest börnin eru í þessari aðstöðu gegn eigin vilja þó að ég reyndar bíði eftir umframtölfræði frá borginni til að staðfesta þessa ályktun mína.

Í stóru úthlutuninni 2025 fengu 84% barna fyrsta eða annað val sitt. Þar fengu 52 börn þó ekki pláss á sama leikskóla og eldri systkini. 31 sameinaðist systkinum sínum síðar áður en vistun hófst. 21 barn hafði þá ekki enn fengið pláss með systkini sínu. Þetta eru ekkert einhverjar stjarnfræðilegar tölur en við eigum samt að eyða þessu. Þetta fer líka mjög mikið eftir stærð árganga. Stundum er þetta minna vandamál á öðrum árum en ég held að við ættum bara að eyða þessu. Formlegu systkinatilliti var faktískt aðeins beitt í fjórum tilfellum svo því sé haldið til haga.

Ég held að hér megi ganga lengra. Ég hef oft fengið þær ábendingar að það sé hreinlega óþarfi að leggja svona frumvarp fram. Lögin heimili þetta hvort sem er, það þurfi bara pólitískt hugrekki. Nú hafa orðið hér skipti í pólitískri stjórn borgarinnar og ég veit að það voru þrír flokkar sem höfðu þetta mál, þ.e. eiginlegan systkinaforgang, á stefnuskrá sinni fyrir síðustu kosningar: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn. Ég vil bara benda öllum þessum stjórnmálaflokkum á að þetta er ekki hægt að útfæra með skýrum hætti í ljósi lagalegrar óvissu nema með skýrri lagaheimild. Ég er bara komin hingað til þess að færa þá gjöf til Reykjavíkurborgar og allra sveitarfélaga í landinu og fjölskyldnanna í landinu vegna þess að ég lagði þetta frumvarp ekki fram í þágu Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég er ekki að reyna að bregða fæti fyrir borgarstjórnina í Reykjavík sem nú er leidd af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Framsóknarflokki. Ég er að leggja þetta fram fyrir fjölskyldurnar í landinu.

Reykjavíkurborg skilaði ítarlegri og gagnlegri umsögn um frumvarpið á 157 . löggjafarþingi, þ.e. því síðasta, sem ég vil taka stuttlega afstöðu til áður en lengra er haldið. Ég ákvað að fara ekki þá leið að taka afstöðu til hennar í nýrri almennri greinargerð vegna þess að ég held að það nægi hreinlega að byrja upp á nýtt og árétta þessa hluti hér í ræðu minni í dag. Í stuttu máli styður borgin meginmarkmið frumvarpsins en setur fram nokkrar mikilvægar ábendingar og ætla ég að taka afstöðu til þeirra stuttlega. Í fyrsta lagi bendir borgin á að velferð og hagur barna skuli vera leiðarljós og aldur barna sé eðlilegasta og óumdeilanlegasta meginreglan við innritun. Ég er því sammála. Undantekningar þurfi að styðjast við veigamikil sjónarmið, líka sammála. Aldur er hlutlægt, einfalt og fyrirsjáanlegt viðmið. Ég tek undir þá ábendingu að hagsmunir barnsins eigi að vega þungt og alltaf þyngst. En mat á hagsmunum barna er bara miklu víðtækara en samanburður á fæðingardögum þeirra. Styttri ferðatími, rólegri morgnar, samvera systkina, tengsl við nærumhverfið og meiri tími með foreldrum — það varðar líka daglegt líf og velferð barna. Og hagsmunir foreldra eru ekki dregnir fram sem eitthvert umframviðmið í þessu mati mínu. Það sem er gott fyrir börnin er í meginatriðum mjög gott fyrir samfélagið. en athugum samt að það má ekki gleyma því að þreyttir foreldrar eru ekki bestu útgáfurnar af sjálfum sér og þar af leiðandi ekki eins góðir foreldrar og þeir geta orðið. Þar tala ég og leyfi mér að tala af persónulegri reynslu og veit ég að allir foreldrar geta tekið undir það með mér.

Ég vil forðast að fullyrða það, líkt og gert er í umsögn Reykjavíkurborgar frá fyrra löggjafarþingi, að við séum hérna að forgangsraða hagsmunum foreldra umfram barna. Við erum samfélag. Hérna getum við hjálpast að. Eitt barn getur liðið fyrir forgang annars og hérna skuldum við fólki að vera skýr um það sem við viljum gera til þess að búa til fjölskylduvænni og betri borg og betri sveitarfélög. En ég vil að fólk um allt land sem er að huga að því að eignast sitt annað barn geti gengið að því vísu að barn þess verði gripið í tæka tíð af leikskólakerfinu, hvort sem það á eldri systkini eða ekki. Og þar þurfum við einnig öll að hjálpast að. En þetta er verkefni okkar hér í dag. Við þau sem eru í þeirri stöðu að eiga ekki eldra barn á leikskóla og munu hugsanlega finna fyrir hinni hliðinni á þessum peningi og er ég alveg hreinskilin með það, þá verð ég að segja að við erum að hugsa þessi mál í heildarsamhengi. Það er krefjandi að eiga tvö börn á tveimur leikskólum. Það er hreinskilið samtal sem ég veit að sveitarstjórnir þessa lands geta átt við þessa foreldra, velji þær að fara þá leið vegna þess að það er engin skylda lögð á hendur neinna sveitarfélaga í þessu tilliti. Jafnræðisreglan krefst þess að málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum sé beitt í hverju tilfelli og skýrum lögbundnum viðmiðum sem ég er að leggja hérna fram. Skýr lagaheimild styrkir bara þennan grundvöll.

Í öðru lagi gerir Reykjavíkurborg mikilvægan greinarmun á því hvenær barn fær leikskólapláss og í hvaða leikskóla það fær pláss. Þetta er líka ákveðinn kjarni í málinu. Aftur kem ég að því sem varðar þessi svokölluðu stöku börn, yngra barn sem á systkini í leikskólanum getur gengið fram fyrir eldra barn sem á þar ekkert systkini. Hérna er bara verið að draga línu í sandinn. Aftur ætla ég að ítreka og ég treysti mér til að segja — og er ég nú ekki að tala fyrir hönd þeirra sem hafa tögl og hagldir í Reykjavíkurborg eða öðrum sveitarfélögum, þau þurfa ekki endilega að vera sammála mér og er það algjörlega undir þeim komið hvort þau nýta þessa reglu í þessum tilgangi sem lögin heimila að gera. En aftur, þegar framboð á leikskólavist er takmarkað þá á fjölskylda sem á yngra barn að eiga kost á leikskólavist á undan barni sem á þar ekki systkini. Það er a.m.k. heimilt samkvæmt þessu. Þetta er mín pólitíska skoðun. Svo má tempra þessa reglu og hafa hana meira í átt við það sem er núna t.d. í borginni þannig að ég ætla að eftirláta öðrum en mér að ákveða hvernig þetta á að vera í Reykjavík eða Kópavogi eða Árneshreppi. Ákvörðun um að beita systkinaforgangi er, eins og ég segi, á ábyrgð sveitarstjórnar hverju sinni.

Svo vil ég auðvitað líka draga fram að þetta fjallar ekki bara um systkinin. Þetta fjallar líka um fjarlægð frá heimili. Það er umræða sem hefur kannski ekki farið mikið fyrir í tengslum við þetta frumvarp. Við erum með þá stöðu sem er að skapast hérna víða um bæ að foreldrar sem búa mögulega miðsvæðis, í lítilli kjallaraíbúð t.d. í Teigunum eða í Túnunum, eiga oft ekki alveg sömu væntingar til þess að fá leikskólapláss í því hverfi vegna þess að foreldrarnir búa mjög nálægt stórum vinnustöðum, t.d. í Borgartúni, og þar af leiðandi hefur verið viss ásókn frá foreldrum sem búa t.d. í úthverfi að velja sér leikskóla þar. Ég vil meina að það sé eitthvað bogið við það að fjölskyldan í kjallaraíbúðinni í Túnunum sem býr á móti leikskóla þar geti ekki gengið að þeim leikskóla vísum og þurfi að kaupa sér bíl til þess að keyra með barn upp í Seljahverfi, á meðan fjölskylda í Seljahverfi sem á barn sem er fætt fyrr á árinu getur fengið þetta sama leikskólapláss í Túnunum vegna þess að foreldrarnir eru báðir að vinna í Borgartúni. Ég legg þetta fram bara sem svona raundæmi sem hefur skapast, reyndar ekki oft, en ég held að við getum öll fallist á það að það sé eitthvað bogið við þetta. Aftur: Ég er ekki að segja Reykjavíkurborg að taka afstöðu til þessa. Það er algjörlega undir þeim hjá borginni komið en hér er lagaheimild til þess að vinna betur með þetta ef þau vilja stuðla að minnkandi umferð í borginni.

Forseti. Ég er að segja margt miðað við það hvað frumvarpið er stutt og hnitmiðað en ég tel mjög mikilvægt að koma því á framfæri að ég treysti hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að skerpa betur á orðalagi frumvarpsins í sinni vinnu, telji hún það nauðsynlegt. Ég geri ráð fyrir því að frumvarpið fari þangað. Ef markmiðið er að eyða allri lagalegri óvissu þarf hugsanlega að taka beinlínis fram að sveitarstjórn sé heimilt að veita forgang vegna systkinatengsla eða búsetu þó að það leiði til fráviks frá aldursröð.

Í þriðja lagi bendir Reykjavíkurborg réttilega á stöðu barna í skiptri búsetu. Systkini geta vissulega átt sitthvort lögheimilið þó að þau búi saman hluta tímans, eigi sameiginlegt heimilislíf og foreldrar þeirra beri sömu ábyrgð á daglegu skutli. Þetta er mjög algeng staða í borginni og bara um land allt. Hér vil ég segja að sveitarfélagið hefur, með vísan til þessarar heimildar, verði hún að lögum, svigrúm til þess að veita mismunandi þáttum ólíkt vægi meðal þessara umsækjenda á forsendum pólitískrar forgangsröðunar. Ég ætla ekki að segja hvort eigi að vega þyngra. Það er alfarið ákvörðun sveitarfélagsins. Þannig getur Reykjavíkurborg ákveðið hvort skuli vega þyngra í innritunarreglum, annars vegar fjölskylduaðstæður og hins vegar nálægð heimilisins við leikskólann sem um ræðir. Mér skilst að Reykjavíkurborg hafi kallað eftir skýrri heimild til að taka mið af nálægð við heimili og skýrri afstöðu til þess hvort systkinaforgangur eða nálægð eigi að ganga framar. Nú er þetta bara fyrstur kemur, fyrstur fær. Fjölskyldan í Árbæ og mögulega í Seljahverfi hefur í rauninni sama rétt og fjölskyldan í kjallaraíbúðinni í Túnunum til þess að gera tilkall til þessa vals. Ég verð að segja, miðað við það hvað framboð á leikskólavist er takmarkað, að ég held að við þurfum að kalla á skýrari ramma hvað varðar rétt þeirra sem búa mjög langt frá leikskólanum til að velja leikskólavist í þeim leikskóla. Nú er ég alfarið að lýsa eigin afstöðu í þessu máli. Þeir sem eru ósammála mér geta þakkað fyrir það að ég á ekki sæti í borgarstjórn og mun ekki ráða þessu. Ég get ekki svarað fyrir pólitíska afstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar í borgarstjórn eða annarra þeirra sem þar kunna að sitja. Þessu er ég hreinlega að velta upp vegna þess að við vitum, og ég ætla að vera alveg sanngjörn með það, að það getur skipt sköpum fyrir fólk sem býr langt frá vinnustað sínum að geta verið með leikskóla í nágrenni við vinnustaðinn. Mér finnst ekkert úr vegi að velta því upp hvort það eigi hreinlega að hafa þetta í óbreyttu ástandi eða mögulega heimila aðilum sem eru í svokölluðum viðbragðsstörfum, eru kannski í heilbrigðisgeiranum, eru í mikilvægri almannaþjónustu, að fá forgang á leikskóla sem eru nálægt slíkum vinnustöðum. Aftur: Þetta er alfarið borgarstjórnar eða sveitarstjórna hverju sinni að taka afstöðu til. Brýnt er að þessi viðmið séu lögmæt og málefnaleg. Þá stenst þetta jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og væntanlega stjórnarskrárinnar líka. Ég myndi segja að það væri hins vegar almennt gott fyrir hverfi borgarinnar og barnið sjálft að fara í leikskóla nálægt sínu heimili.

Ég ætla bara aftur að ítreka: Það eru ýmsir þættir sem koma inn í þetta mat: nálægð við vinnustað, ömmu og afa og kannski bara sú staðreynd að fjölskyldan er ekki í öruggu langtímahúsnæði og gæti séð fram á flutninga innan skamms og stefnir kannski jafnvel markvisst að því. Ég vil leggja áherslu á þá sýn mína að hagsmunir foreldra og barna fara hér saman og það er erfitt að henda reiður á því hvor aðilinn, barnið eða foreldrið, nýtur góðs af skýrari forgangsröðun. Ég vinn út frá þeirri möntru í mínu lífi sem móðir að maður setur alltaf fyrst súrefnisgrímuna á sjálfan sig, ætli maður að hlúa vel að barninu sínu. Það eru reglurnar í flugvélunum og ég tek þetta með mér oft út í lífið þegar ég stend frammi fyrir erfiðum ákvörðunum.

Sveitarfélög — skyldan er ykkar til þess að útfæra þetta vel. Það er hægt að mæla vegalengd frá heimili til skóla og gera ráð fyrir raunhæfum ferðatíma. Það vill nú þannig til að ég er bara lögfræðingur og ég kann ekki að reikna. Það er hins vegar hægt að reikna þetta út og ég treysti sérfræðingum sveitarfélaga til þess að gera það með lögmætum og skipulögðum hætti. Ávinningurinn gæti verið sá að það sé hægt að styðja verulega við myndun hverfissamfélaga. Það er óumdeilt að þetta myndi draga úr umferð og auðvelda börnum að mynda tengsl við börn sem eru líkleg til þess að fara í sama grunnskóla. Það er nefnilega mjög margt í þessu, virðulegi forseti. Það er mögulega tilefni fyrir nefndina að kanna hvort í lögunum eigi einnig að heimila sveitarfélögunum að líta til vinnustaða foreldra. En, eins og ég segi, það er ekki undir mér komið að útfæra þetta með endanlegum hætti.

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á að Reykjavíkurborg lagði blessun sína yfir markmið frumvarpsins og ég vil vinna málið í eins nánu samráði og mögulegt er við Reykjavíkurborg, hvort sem um er að ræða stjórnsýsluna eða þann meiri hluta sem nú er í borginni. Ég vil eiginlega bara kalla formlega eftir því hér í ræðustól í dag. Það stendur ekki á mér að ryðja þeim hindrunum úr vegi sem skipta máli til þess að láta systkinaforgang verða að veruleika í Reykjavíkurborg. Þetta frumvarp var, eins og ég segi, ekki lagt fram fyrir Samfylkinguna í borgarstjórn. Þetta er lagt fram fyrir fjölskyldur í landinu. Stundum hefur því verið lýst sem óþörfu og hef ég heyrt það af hægri væng stjórnmálanna hér á Alþingi. En á sama tíma verð ég að benda á að stjórnsýsla Reykjavíkurborgar hefur talið fullan systkinaforgang kalla á mun skýrari lagaheimild. Þannig að ég spyr: Eigum við að vaða áfram í blindni og eigum við að koma á þessum systkinaforgangi með þeim hætti sem ég er að ræða um hér í dag án þess að skerpa betur á lagaheimildinni og láta reyna á það, hér komi bara annað prófmál, hér fari fjölskyldur sem telja sig hafa liðið fyrir beitingu slíkra systkinaforgangsreglna í mál við Reykjavíkurborg með tilheyrandi kostnaði til að sækja sinn rétt og mögulega yrði borgin dæmd skaðabótaskyld í ljósi skorts á reglum? Mögulega ekki. Ég vil bara spara okkur þessa leiðangra og veita Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum, eftir því sem á við, lagalegan grundvöll til þess að gera þetta pólitískt.

Ég ætla að reiða mig á samstarfið og ég lýsi mig reiðubúna til þess að vera hér til staðar fyrir sveitarfélögin í landinu, hjálpa allsherjar- og menntamálanefnd til þess að gera mögulega einhverjar breytingar á smáatriðum sem kunna að skipta máli. Ég ætla samt hins vegar að segja það að þetta frumvarp fjölgar auðvitað ekki leikskólaplássum. Það tryggir ekkert hverju barni pláss þegar fæðingarorlofi lýkur. Það leysir bara afmarkaðan lagalegan vanda um það hvernig heimilt er að úthluta plássum. Vandinn er auðvitað miklu stærri og hann er miklu, ja, hvað segir maður, kerfisbundnari en við kannski viljum sætta okkur við. Ég fagna öllum þeim áherslum sem lagðar eru í pólitík til þess að leysa þennan vanda með einum eða öðrum hætti, þótt ég sé auðvitað mismikið sammála fólki sem leggur til leiðir að settu marki.

Í skýrslu aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að brúa bilið kemur fram að á Íslandi er enginn skilgreindur réttur til leikskóla á vegum hins opinbera og Ísland sker sig þar alfarið úr í norrænu samhengi. Ég legg til að við skoðum það alvarlega að breyta þessu og ég veit að það stendur yfir vinna til þess að leggja fram þingsályktunartillögu um að skoða hvort og hvenær unnt sé að gera leikskólann lögbundinn og fagna ég því. Það þarf að lögfesta þetta skólastig rétt eins og grunnskólann. Bókasöfn eru lögbundin þjónusta sveitarfélaga. Ég skil ekki hvernig við höfum skilið leikskólann eftir í þessu samhengi. En við getum tekið saman, og ég óska eftir samvinnu, eitt skýrt skref í rétta átt. Þessi óvissa, hvað sem öðru líður, er staðreynd og við ættum að sjá hag af því að rísa aðeins upp fyrir flokkslínur í þessu litla en mikilvæga máli og eyða henni fyrir fullt og allt. Ég veit að fjölskyldan í Laugardalnum og margar fjölskyldur um alla borg og mögulega í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg í framtíðinni myndu kunna okkur miklar þakkir fyrir. Það er erfiður tími að eiga tvö lítil börn og það er dýrt að vera til. Fólk er oft ekki komið í það húsnæði sem það ætlar sér að búa í til langs tíma, er með lítið á milli handanna og er í svona erfiðum og krefjandi tíma á sínum atvinnuferli, það er að vinna sig upp og vinnur langa vinnudaga eða er í námi. Þið þekkið þetta. Þetta er bara steinn í götu fólks sem við getum svo auðveldlega sparkað í burtu án þess að vera að þrefa um einhverja stjórnsýslu. Gerum þetta saman og einföldum fólki lífið.

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að fá að flytja þetta mál hér í dag og hlakka til þess að vinna með nefndinni. Ég vona heitt og innilega að á næsta löggjafarþingi þurfi ég ekki að flytja þetta mál og að fyrir næsta stóra úthlutunardag í mars 2027 þá séum við bara búin að redda þessu.