158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

mannanöfn.

81. mál
[17:38]
Horfa

Flm. (Jón Gnarr) (V):

Frú forseti. Ég ætla nú að fjalla hér aðeins um tillögu mína og ástæður þess að ég legg fram þetta frumvarp. Ég hef tekið eftir því að það gætir gjarnan mikils misskilnings, bæði hjá almenningi og jafnvel fjölmiðlum, um inntak þessara laga sem við höfum um mannanöfn. Kannski er mest áberandi sá misskilningur að mannanafnanefnd ráði lögum og lofum í þessum málum og ráði því hvað við megum og megum ekki heita, að það sé einhvern veginn háð einhverjum duttlungum þessarar nefndar. Það er ekki rétt því að þessi nefnd hefur vissulega ákveðið svigrúm en hún er samt að mestu leyti bundin lögum og vinnur í samræmi við þau.

Ég hef lengi verið áhugamaður um lögin og íslenskar mannanafnahefðir eins og íslenska þjóðhætti. Þessi lög eiga sér langa og nokkuð snúna og oft umdeilda sögu. Þau hafa tekið ákveðnum breytingum í gegnum tíðina. Ástæðurnar fyrir því að þessi lög voru sett í upphafi voru nokkrar en í hugum flestra Íslendinga í dag þá held ég að þessi lög séu álitin einhvers konar liður í að halda utan um og varðveita ákveðin sérkenni íslenskrar menningar, tungu og sögu. Það finnst mér sannarlega góður og göfugur tilgangur. En það eru samt alveg margar einstakar og þjóðlegar nafnahefðir sem falla algerlega utan laganna. Ég hef t.d. bent á viðurnefnahefðina sem hefur þekkst hér á landi frá landnámi og er bara nokkuð einstök, allt frá Hrafna-Flóka, Leifi heppna Eiríkssyni, Hallgerði langbrók til Gvendar dúllara og Bjarna móhíkana. Margir kannast við setninguna: „Mörður hét maður er kallaður var gígja. Hann var sonur Sighvats hins rauða.“ Viðurnefni hafa alltaf verið mjög stór hluti af mannanafnahefðinni hér á landi og vísa gjarnan til útlits eða persónuleikaeinkenna. Í grunninn eru lög um mannanöfn tvískipt; þau snúa annars vegar að fornöfnum og hins vegar kenninöfnum sem eru almennt þekkt sem sonar- og dótturkerfið, þetta hefðbundna íslenska kerfi, og svo hins vegar ættarnöfn. Hið opinbera gefur út skrá með svokölluðum samþykktum mannanöfnum. Ef við viljum gefa barni nafn sem er ekki á þessari skrá þurfum við að sækja um það til mannanafnanefndar. Upptaka nýrra ættarnafna er stranglega bönnuð. Samkvæmt lögum eru einungis leyfð tiltekin ættarnöfn sem voru til þegar lögin voru upprunalega sett. Þessi lög hafa margar hliðar og ýmsa galla sem ég mun kannski víkja nánar að síðar en að taka á þeim vanda finnst mér kannski seinni tíma mál.

Ævaforn íslensk munnmæli segja að fjórðungi bregði til föður, fjórðungi til móður, fjórðungi til fósturs og fjórðungi til nafns og er þar auðvitað átt við það úr hverju við erum gerð sem manneskjur og hvert sé hlutfall þess sem gerir okkur að þeim einstaklingum sem við erum, einstökum og ólíkum öllum öðrum. Við tökum slatta af genaglundri frá foreldrum okkar og hoppum jafnvel aftur yfir kynslóðir og erum kannski nauðalík afa okkar eða ömmu. Þetta á við um útlit, skapgerð, hæfileika og sérkenni eins og göngulag, hreyfingar og jafnvel einhverja svipi eða kæki. En að mestu leyti erum við auðvitað bara gerð úr okkar einstaka sjálfi. Við erum bara við sjálf, ófyrirséð og einstök. Við fæðumst með ákveðna eiginleika og svo setjum við okkar persónulega fingrafar á alla okkar lífsleið og sporin okkar verða orðspor. Sá sem vandar sig getur sér góðan orðstír. Nafnið okkar stendur fyrir eitthvað. Það er líka talað um að bera nafn með rentu, að standa fyrir eitthvað, standa undir nafni og að vera maður eða kona orða sinna. Að geta sér gott orð er eitthvað það dýrmætasta sem við Íslendingar getum eignast í lífinu. Með leyfi forseta:

Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama.

En orðstír

deyr aldregi

hveim er sér góðan getur.

Svo mælti Óðinn í einu þekktasta erindi Hávamála. Það er líka gamalt orðtak að tala um að skapa sér nafn og það þekkist í fleiri tungumálum en okkar. Með því skaparðu yfirleitt eitthvað einstakt og jákvætt úr nafninu þínu með því sem þú býrð til, segir og gerir. Ég get nefnt sem dæmi Mozart. Mozart er gæði og það er framleitt sælgæti sem heitir Mozart og það er líka ágætt og samt er ég ekki mikið fyrir sælgæti. Jú, og kannski Jesú. Jesú var í upphafi frekar svona hversdagslegur alþýðumaður sem skar sig ekki mikið út úr fjöldanum að miklu leyti en náði að skapa sér nafn og virðingu með því sem hann sagði og gerði. Í hans nafni varð til hreyfing sem er byggð á hugmyndafræði hans og fleiri sem átti eftir að leggja grunninn að menningu Vesturlanda. Merkið hans, krossinn, stendur fyrir ákveðin grunngildi sem hægt er að byggja á og táknar traust, virðingu og vináttu. Enginn einn maður, líklega enginn, hefur haft jafn mikil áhrif á Ísland án þess að hafa nokkurn tímann komið hingað. „Blessað sé nafn þitt blíða,“ sagði Hallgrímur Pétursson í Passíusálmunum.

Sá siður að skipta um nafn er vel þekktur í ýmsu sögulegu samhengi og á sér margar ólíkar ástæður. Stundum er fólk ósátt við það nafn sem því var gefið í frumbernsku, vill hnýta hnút á ákveðið lífstímabil eða leyna jafnvel ætterni sínu eða uppruna. Það er einnig algengt að fólk breyti um nafn þegar það flytur milli landa eða menningarsvæða og tekur sér gjarnan nafn sem fellur betur að því málsvæði og menningu. Það er líka ákveðin hefð hjá listamönnum að taka upp annað nafn en sitt eigið, svokallað listamannanafn; Halldór Laxness og Jóhannes Kjarval eru góð dæmi.

Við köllum nöfn oft skírnarnöfn, á ensku kallast það, með leyfi forseta, „christian name“. Það var víst algengur siður í árdaga kristni í Evrópu að fólk skipti um nafn þegar það skírðist til kristinnar trúar; það afsalaði sér þá gjarnan sínu gamla nafni sem tengdist þá einhverjum heiðnum sið, villutrú eða barbarisma, og tók sér kristilegt nafn, gjarnan úr Biblíunni, oft eftir einhverjum dýrlingi sem fólk treysti á. Þessi nafnabreyting hjálpaði fólki að aðlagast nýjum siðum og heimsmynd. Nafnið var persónuleg staðfesting á undirgefni við kirkjuna og trúna og þetta er gömul saga og ný. Við þekkjum mörg dæmi um Íslendinga sem hafa flutt t.d. til Kanada og Bandaríkjanna í leit að betra lífi; vesturfararnir á ofanverðri 19. öld tóku sér oft nöfn sem féllu betur að enskumælandi samfélagi enda þóttu nöfn á borð við Þorgrímur eða Hallgerður oft óþægileg í framburði í framandi menningu.

Einn frændi minn hét Jóhannes Gíslason en hann tók sér nafnið vestanhafs John Giles. Það er gaman að segja frá því t.d. að ættarnafnið Nordal, sem er nú þekkt ættarnafn á Íslandi, varð nákvæmlega til með þessum hætti þegar vesturfarinn Jóhannes Guðmundsson tók sér það nafn eftir Norðurárdal þaðan sem hann var ættaður og hélt svo nafninu þegar hann sneri aftur hingað heim til Íslands. Við þekkjum líka dæmi þess að fólk sem hefur verið dæmt fyrir glæpi skipti um nafn til að hreinsa sig, fá hreinan skjöld og jafnvel halda áfram virkri glæpastarfsemi sinni undir nýju nafni og jafnvel tveimur eða fleirum en einu. Nýlegt og vel þekkt dæmi var þegar glæpamaður breytti nafni sínu til háðungar fyrrverandi forseta Íslands og fulltrúa þjóðarinnar. Ég man líka eftir fréttum af veitingahúsaeiganda sem kallaðist þremur mismunandi nöfnum eftir því hvaða frétt maður var að lesa.

Við búum hér á landi þar sem gilda, miðað við mörg önnur lönd, frekar strangar nafnareglur og bönn og boð. Við höfum sérstaka nefnd sem fjallar um það hvort fólk megi heita ákveðnum nöfnum og hvort nöfnin samræmist menningarlegum áherslum, rithætti eða gætu jafnvel orðið nafnbera til ama. Þetta er mikil umhyggjusemi. Þessi nefnd tekur við umsóknum og svo birtir hún reglulega úrskurði sína; þá sjáum við fyrirsagnir í blöðum eins og: Má heita Nellý en ekki Sallý, eða eitthvað í þessum dúr. Ég held að flestir muni eftir svona fyrirsögnum.

Í ljósi þessarar nákvæmnisvinnu, sem er ákveðin samsuða þjóðfræði, siðfræði, málfræði og lögfræði, er samt líka alveg stórmerkilegt hvað glæpamenn virðast oft eiga auðvelt með nafnabreytingar á meðan heiðarlegt venjulegt fólk virðist þurfa að ganga í gegnum kostnaðarsama tímaeyðslu og jafnvel opinbera niðurlægingu áður en það nær fram rétti sínum. Við munum eflaust öll eftir máli Blævar sem vakti heimsathygli; máli stúlkunnar sem var meinað að heita því nafni sem henni var gefið í æsku og varð bara svona út um allan heim fyndna fréttin. Mannanafnanefnd neitaði Blævi um að bera nafnið Blær því samkvæmt þágildandi lögum var það karlmannsnafn. Það voru því einungis fyrir þrautseigju Blævar og fjölskyldu hennar að hún náði loks fram rétti sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 2013, þá 16 ára gömul. Dómurinn hnekkti úrskurði nefndarinnar og það var mat dómsins, með leyfi forseta, „að réttur stefnanda til að bera nafnið Blær sé ríkari en hagsmunir samfélagsins af því að hafna kröfunni.“

Þetta finnst mér bara fullkomið merki um svokallaðan salómonsdóm af því að þetta er bara satt og þetta hefur ekki skaðað nokkurn einasta mann. Hvernig getur staðið á því að við séum með lög í landinu sem mismuna fólki með þessum áberandi hætti þar sem ströng lög gilda fyrir fólk sem er fætt á landinu en önnur lög svo fyrir fólk sem flyst til landsins annars staðar frá? Innflytjendur mega nefna börn sín í samræmi við sína tungu og menningu, og það er líka bara sjálfsagður hlutur og réttur þeirra, en flestir aðrir Íslendingar hafa ekki þennan rétt. Hvaða réttlæti felst í lögum sem niðurlægja og níðast á stúlkubarni og fjölskyldu hennar með kuldalegum og smásmugulegum útúrsnúningum og hörku, yfirlæti og afskiptasemi af hennar persónulegu ósk um að fá að heita Blær en gefa síðan glæpamönnum nokkuð frjálsar hendur til að breyta nöfnum sínum eftir geðþótta?

Í hittiðfyrra fjallaði Heimildin t.d. um barnaníðing sem hlaut fimm ára dóm vegna kynferðisbrota gegn sex ungum drengjum. Eins og mjög margir dæmdir kynferðisglæpamenn er hann búinn að breyta nafninu sínu og heitir eitthvað allt annað þegar fréttin var skrifuð. Blaðamaður beinir einmitt athygli að því hversu algengar nafnabreytingar eru meðal einstaklinga sem hafa hlotið dóma fyrir alvarlega glæpi. Ævar Pálmi Pálmason, fyrrverandi yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, bendir á það í þessari grein að þetta veki spurningar. Hann segir orðrétt, með leyfi forseta: „Ég bara skil ekki af hverju dæmdum barnaníðingi er gert það auðvelt að breyta um nafn.“ Ég skil það ekki heldur.

Árið 1913 vildi Alþingi koma böndum á nafngiftir landsmanna og jafnvel banna ættarnöfn með öllu. Í ljós kom ákveðinn vandi því margir Íslendingar sem báru ættarnöfn höfðu tekið þau upp þegar þeir voru við nám í Danmörku. Nöfnin voru því orðin ákveðið stöðutákn, gáfu til kynna menntun og stöðu, og flestir sem báru þau voru í æðstu embættum á landinu. Í greinargerð með frumvarpi til fyrstu mannanafnalaga var talað um að það þyrfti að koma í veg fyrir að börnum væru gefin hneykslanleg og rangmynduð nöfn á borð við Kristjúlía, Katríníus og Samúelína.

Fyrstu lög um mannanöfn voru samþykkt 1914. Þetta var tími mikilla fólksflutninga. Fólk var að flytja úr sinni sveit og á mölina en kenndi sig við sveitina sína eða bæinn sinn. Þannig urðu til ættarnöfn eins og Kaldal, Eyfjörð, Vestmann, Breiðfjörð o.s.frv., allt alveg frábær nöfn. Skáld notuðu líka tækifærið þarna og tóku sér eftirnöfn. Dæmi um það eru Kamban og Kvaran; Einar Kvaran Hjörleifsson tók sér nafnið Kvaran árið 1916. Þetta fór síðan að skapa einhverja togstreitu en svo er það ekki fyrr en 1991 að lögin eru tekin til gagngerrar endurskoðunar og Alþingi samþykkir ný lög þar sem er stranglega bönnuð upptaka nýrra ættarnafna. Þá var líka sú nýjung kynnt að öllum innflytjendum sem flyttust til landsins yrði framvegis gert skylt að taka sér íslenskt nafn sem skilyrði fyrir ríkisborgararétti en svo kom í ljós að þessi krafa brýtur gegn alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og þess vegna var þetta ákvæði fellt úr gildi 1996.

Upp úr síðustu aldamótum byrjaði innflytjendum að fjölga mjög hratt á Íslandi og miklu hraðar en áður og þar sem ekki er lengur hægt að neyða fólk til að taka upp íslensk nöfn þá fær það að halda nöfnum sínum; sem sagt að þegar innflytjendur fá íslenskan ríkisborgararétt og verða fullgildir Íslendingar, þrátt fyrir að vera af einhverjum erlendum uppruna, þá ættu í rauninni ættarnöfn þeirra að fá sömu stöðu og hin hefðbundnu gömlu íslensku ættarnöfn. En svo er það ekki og þetta er einhvern veginn hið vandræðalegasta mál.

Upplýsingum um fjölda ættarnafna hefur verið haldið nokkuð leyndum. Þjóðfræðingar og fræðimenn hafa verið að rannsaka þessi mál og hafa átt í erfiðleikum með að fá aðgang að upplýsingum sem liggja fyrir. Árnastofnun heldur úti ákaflega sérkennilegri vefsíðu sem ég held að hafi verið síðast uppfærð árið 2010. Samkvæmt þeim tölulegu upplýsingum sem ég fékk frá Þjóðskrá er algengasta eftirnafnið á Íslandi — ég kann ekki að bera það fram en ég ætla að reyna það — Nguyen, það er langalgengast. Mér skilst að það sé ættað frá Víetnam og það kemur ekki á óvart því að fólk frá Víetnam var með fyrsta flóttafólkinu sem kom til Íslands. En þetta kemur mér samt á óvart. Ég verð að viðurkenna að miðað við það sem komið hefur fram um framkvæmd gagnaöflunar og að stofnunin segist blygðunarlaust styðjast við lista sem síðast var uppfærður 2010 þá tek ég þessum gögnum samt með ákveðnum fyrirvara. Samkvæmt tölum frá Hagstofu eru innflytjendur á Íslandi nú rúmlega 18% íbúa og langfjölmennastir eru innflytjendur frá Póllandi. Rúmlega 22.000 Pólverjar búa á Íslandi og mér finnst sérkennilegt að eftirnöfn þeirra skuli ekki vera á þessum lista.

Ég hef nú gert aðeins grein fyrir uppruna og hugmyndafræði mannanafnalaganna og ætla nú að reyna að hlaupa fljótt yfir sögu. Með þessu frumvarpi er ég ekki að leggja til að við leggjum niður lög um mannanöfn. Ég legg heldur ekki til að mannanafnanefnd verði lögð niður. Þvert á móti vil ég heimila einstaklingum að taka upp ný ættarnöfn í frekara mæli en í núgildandi lögum sem og veita heimild til að taka upp svokölluð eftirnöfn sem kenninöfn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum sem eru skilgreind betur í frumvarpinu. Með því að bæta þessum lið, eftirnafni, við sem möguleika er einstaklingum gert kleift að taka upp nýtt kenninafn án þess að eiga eiginlegt eða huglægt tilkall til einhvers sérstaks ættarnafns og fyrir því geta legið ótal persónulegar og menningarlegar ástæður. Þannig geta einstaklingar sem vilja kenna sig við sérstakan stað á landinu eins og fordæmi eru fyrir, svo sem Fossberg, Reykfjörð, Vestmann eða Laxness, komið með ný nöfn.

Önnur tillaga frumvarpsins snýr að heimild mannanafnanefndar til samþykktar eigin-, milli-, og kenninafna sem óskað er eftir. Til viðbótar þeim skilyrðum sem tiltekin eru nú í 5. gr. mannanafnalaga verður nefndinni heimilt að samþykkja nöfn eða nafnbreytingar sem jafnvel samræmast ekki íslenskri málhefð séu fyrir því persónulegar eða menningarlegar ástæður. Með breytingum á lögunum sem urðu 1996, þar sem bann við nýjum ættarnöfnum var fellt niður í tilvikum útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt, varð til tvöfalt kerfi og það var aldrei ætlunin í upphafi. Það var til tvöfalt kerfi og eins fáránlegt og það kann að hljóma þá hafa aldrei í sögu landsins verið hér jafnmörg ættarnöfn eins og eftir að þau voru bönnuð. Þetta er stórmerkilegt.

Með því að leyfa upptöku eftirnafna samkvæmt þessu frumvarpi, að uppfylltum skilyrðum og rökstuðningi, myndi ég telja að lögin væru loksins komin á nokkuð viðunandi stað. Með þessari skynsamlegu breytingu myndum við slá mjög margar flugur í einu höggi. Íslenskum ríkisborgurum yrði heimilt að taka aftur upp hinn gamla góða sið að kenna sig við einhvern stað eða heimasveit, íslensk kennileiti, menningararf eða sögu. Breytingin yrði mikil réttarbót fyrir trans fólk sem myndi með þeim öðlast möguleika á að taka upp nafn sem fæli ekki endilega í sér að viðkomandi væri augljóslega trans manneskja, eins og lögin gera svolítið núna. Síðan erum við líka að gefa innflytjendum sem langar að taka sér nafn sem fellur betur að íslenskum málvenjum, eins og Vestur-Íslendingarnir gerðu gjarnan þegar þeir fluttu til Norður-Ameríku, við erum að gefa þeim möguleika á að gera það með einföldum og skýrum hætti. Við erum líka að losa fjölda fólks sem situr fast í svona lagatæknilegum snörum og ratar ekki út úr þeim og um það er fjöldi dæma.

Ég sjálfur var nefndur Jón Gunnar Kristinsson 1967. Ég er nefndur Jón í höfuðið á móðurafa mínum Jóni Einarssyni sem fæddur var 30. desember 1878 á Eystri Loftstöðum í Gaulverjabæjarsókn og starfaði sem múrari í Reykjavík. Ég er mjög stoltur af því en ég skildi ekki hvaðan Gunnar kom og mamma sagði: Jú, það er í höfuðið á Gunnu frænku, en hún hét Guðrún. Með leyfi forseta, spurði ég: En af hverju heiti ég þá ekki Jón Gunna? Mamma sprakk úr hlátri við þessa spurningu og útskýrði fyrir mér að það gengi aldrei því bæði væri það annars vegar gælunafn og hins vegar kvenmannsnafn og það væri bannað með lögum að karlmaður gæti heitið kvenmannsnafni og öfugt. Mér fannst þetta bara strax, ég hef verið átta ára kannski, eitthvað svoleiðis, ósanngjarnt og asnalegt. Ég hefði stoltur viljað heita Jón Gunna. Gunna frænka mín heitin var einhver allra mesti töffari sem ég hef kynnst.

Þetta breyttist síðan 2019 með lögum um kynrænt sjálfræði. Þá vakti það töluverða athygli hér á landi þegar Sigurður Hlynur Snæbjörnsson, bóndi á Öndólfsstoðum í Reykjadal, tók sér nafn ömmu sinnar Sigríðar og heitir nú Sigríður Hlynur. Það getur vel verið að einhverjir kunni að hafa einhverjar skoðanir á því en það kemur þeim hreinlega ekkert við því þetta er einkamál Sigríðar. Með leyfi forseta:

„„Þetta er sigur fyrir einstaklingsfrelsið,“ segir Sigríður og er þess fullviss að á komandi tímum muni margir leita réttar síns vegna breytinganna og fá að heita það sem þau heita. „Þessi lög eru auðvitað ekki sett fyrir mig heldur aðra hópa eins og transfólk og kynsegin fólk og mín breyting er hliðarverkun af þessu. Hitt er náttúrulega stærsta málið í þessu, að fjöldi manns fær nú að heita sínum nöfnum,“ segir hann.“— Fyrir þetta ku hann hafa greitt 9.000 kr.

Ég sem barn skrifaði mig yfirleitt Jón G. Kristinsson. Ég var kallaður Jónsi, seinna Jónsi pönk, og sem unglingur tók ég mér listamannsnafnið Jón Gnarr og örlögin hafa hagað því þannig að það nafn hefur fest við mig. Ég vildi fá það viðurkennt en lögin bönnuðu mér það. En eins og oft vill verða með lög, með boð og bönn, þá eru oft svo merkilega margar krókaleiðir í kringum þau. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum 2015 sótti ég um nafnabreytingu og í héraðsdómi í Harris-sýslu í Houston í Texas fór ég fyrir dómara sem fann ekkert að umsókn minni og samþykkti hana. Þjóðskrá Íslands neitaði í fyrstu að viðurkenna þennan gjörning en áttaði sig fljótt á því að þetta var algerlega löglegur gjörningur og þau drógu höfnunina til baka og nafnið Jón Gnarr var fært í þjóðskrá og ég heiti það síðan.

Auðvitað hét ég það alltaf. Börnin mín og barnabörn bera þetta nafn og við erum nú orðin 13 og það hefur enginn, ekki nokkur maður, orðið fyrir neinum skaða af þessu, nema kannski ég sjálfur. Við hjónin skírðum yngsta son okkar Jón Jónsson. Okkur fannst það fallegt og íslenskt. Mér fannst líka svolítið fyndin tilhugsun að geta sagt ef einhver spyrði mig: Hvaða drengur er þetta? Þá gæti ég sagt: Æ, þetta er bara einhver Jón Jónsson. Með breytingunni varð hann síðan Jón Gnarr þannig að þetta var svona misheppnaður brandari hjá mér en hann er sem betur fer fyrirmyndarpiltur, eins og öll mín börn. Ég hef notið góðs af því t.d. þegar hann tók þátt í maraþoninu í Róm í vor og náði þar ágætum tíma. Ég hef fengið hrós fyrir það og ég hef ekki séð ástæðu til að leiðrétta það.

Ég vil líka getak annars möguleika sem þessi lagabreyting mun opna fyrir. Með breytingunni mun fjöldi fólks með framandi erlend nöfn sem það telur vera sér til trafala gefast þess kostur að taka sér nöfn sem hljóma íslenskar. Það getur þá bara sótt um að vera t.d. Guðmundsson án þess að eiga föður sem hét Guðmundur. Það bara fellur mjög vel að íslenskum hefðum. Fólki getur fundist nafnið sitt einhvern veginn standa sér fyrir þrifum á ýmsan hátt, t.d. verður fólk oft fyrir einhverri stríðni í æsku út af nafninu sínu og það er bara eitthvað sem situr gjarnan í fólki alla ævi. Og það má nefna aðrar persónulegar ástæður — það hafa komið upp tilfelli fólks t.d. sem hefur ekki alist upp hjá foreldrum sínum og hefur aldrei þekkt foreldra sína og er kannski ekkert sérstaklega hlýtt til þeirra en er neytt til að kenna sig við foreldra sína.

Þetta er flókið en fyrst og fremst persónulegt mál sem snertir sjálfsmynd okkar og hver við erum í innsta kjarna. Ef ég vil heita Sigríður, það bara kemur ekki nokkrum manni við. Ég legg til að málið fari til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Ég þakka þeim sem hlýddu. — Ég hef lokið máli mínu.