varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Viðreisnar um að Sigmar Guðmundsson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Diljá Mist Einarsdóttir geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, og 5. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Júlíus Viggó Ólafsson, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.
Valdimar Breiðfjörð Birgisson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.