hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Þegar talið berst að hinu bagalega efnahagsástandi sem nú ríkir hér á landi er það fyrsta og að jafnaði það eina sem hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar nefna að þetta sé nú allt saman einhverjum öðrum um að kenna. Þau benda yfirleitt á útgjöld síðustu ríkisstjórnar, sem voru reyndar mun minni en þau hefðu verið ef hlustað hefði verið á kröfur núverandi ríkisstjórnarflokka um enn meiri útgjöld á þeim tíma. Það vekur furðu að á sama tíma og núverandi ríkisstjórn fussar og sveiar yfir hallarekstri fyrri ríkisstjórnar í miðjum heimsfaraldri og náttúruhamförum ákveður hún að auka hallann í sinni stjórnartíð. Það hefði verið hægt að skila ríkissjóði réttum megin við núllið strax árið 2025 með styrkri efnahagsstjórn en ríkisstjórnin ákvað að bæta enn frekar á hallann. Áætlun ársins 2026 gerir svo ráð fyrir töluverðri framúrkeyrslu; það sem fyrst átti að verða 15 milljarða halli stefnir nú í 68 milljarða halla. Þá var ekkert Covid, þá voru engar náttúruhamfarir.
Því vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvers vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkisfjármálunum þannig að verðbólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram að lækka? Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á bakið eins og enginn sé morgundagurinn þegar verðbólgan er aftur á uppleið og vextir hækka á ný?