158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í ríkisfjármálum.

[13:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Nú er það svo að hér er nokkuð frjálslega farið með staðreyndir vegna þess að hv. þingmaður, sem var ráðherra í síðustu ríkisstjórn, veit að síðasta fjármálaáætlun þeirrar ríkisstjórnar gerði ráð fyrir hallarekstri fram til ársins 2028. Þessi ríkisstjórn hefur endurskoðað þær áætlanir og flýtt því að ná jafnvægi í útgjöldum ríkisins um eitt ár. Það er mjög áhugavert að hv. þingmaður geri framúrkeyrslu að umræðuefni í þessum ræðustól. Hv. þingmanni láðist hins vegar að taka fram að framúrkeyrsla á kostnaði ríkisins var mun meiri og hefur farið minnkandi. Hún nefnir einungis nettóniðurstöðuna, þ.e. halla að frádregnum ófyrirséðum tekjum. Ófyrirséðar tekjur eru hins vegar ekki eitthvað sem reikna má með að séu að jafnaði og tilfellið er að það er einmitt á tíma þessarar ríkisstjórnar sem tekist hefur verið á við t.d. framkvæmd fjárlaga þannig að framúrkeyrsla ríkisins er mun minni hjá þessari ríkisstjórn en hún var að jafnaði hjá síðustu ríkisstjórn. Það er mjög athyglisvert með eftiráskýringar eins og þessar að kvartað sé yfir framkvæmd sem var umfram áætlanir á kosningaári hjá síðustu ríkisstjórn og ætlast til þess að fólk taki slíka gagnrýni trúanlega.