fjármögnun Fljótaganga.
Virðulegur forseti. Mig langar að eiga hér orðastað við hæstv. innviðaráðherra og beina sjónum mínum, alla vega í fyrri fyrirspurn, að stofnun innviðafélagsins og Fljótagöngum. Það var nefnilega þannig í umræðunni hér sem við áttum um stofnun innviðafélags að það var alveg ljóst að Fljótagöng myndu ekki falla undir skilgreininguna sem þar var gefin á verkefnum sem myndu falla beinlínis undir innviðafélagið, einfaldlega vegna þess að þau göng eru ekki hugsuð á markaðslegum forsendum. Það kom fram, og hæstv. ráðherra held ég að hafi tekið undir það þá, að ríkið þyrfti að koma með fjármagn inn í göngin til að þau gætu orðið að veruleika. Nú liggur fyrir að í samgönguáætlun, sem er samþykkt, voru umrædd göng stjörnumerkt, þ.e. það var ekki áætlað neitt fjármagn í þau sérstaklega, ekki heldur í fjármálaáætlun. Í umræðunni um fjármálaáætlun var okkur sagt að þetta myndi skýrast í fjárlögum. Nú liggja fjárlögin fyrir og það er ekki króna í þeim í Fljótagöng. Ef það er þannig að þetta hefur ekki breyst frá því að við ræddum hér um innviðafélag við hæstv. innviðaráðherra þar sem það var algerlega skýrt að ríkið þyrfti að koma með fjármagn sjálft til að hefjast handa og fara í uppbyggingu á Fljótagöngum þar sem þau eru ekki, eins og ég sagði áðan, á markaðslegum forsendum og falla því ekki að því að vera í innviðafélagi, hvernig ætlar hæstv. innviðaráðherra að fjármagna þessi göng? Hann hefur ítrekað sjálfur talað um það hér í þessum ræðustól og annars staðar að Fljótagöng verði á dagskrá á næsta ári.