158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[13:42]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er gert ráð fyrir því í 6. gr. frumvarps til fjárlaga fyrir næsta ár, í lið 5.8, „að auka við hlutafé innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. í því skyni að auka fjárfestingargetu félagsins til að standa undir fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja“, sbr. lög um innviðafélag, nr. 70/2026. Það stendur í greinargerðinni, á bls. 163, minnir mig, að þetta hlutafé geti verið í formi reiðufjár eða þá seljanlegra eigna. Það er þá komið eigið fé til að standa að framkvæmdum strax á næsta ári.

Vaðlaheiðargöngin eru þegar komin inn í innviðafélagið sem tekjuberandi eign, þ.e. þegar fólk fer í gegnum Vaðlaheiðargöng þá borgar það og peningurinn rennur til innviðafélagsins. Við ætlum að setja Hornafjarðarfljót núna í haust inn í innviðafélagið líka og það er fyrirhugað að setja líka, það er reyndar síðar, 2028 eða fyrir þann tíma, Ölfusárbrú. Það eru tvær tekjuberandi eignir og svo eigið fé. Þá getur félagið tekið lán út á það eða farið að borga framkvæmdir á næsta ári. Við stefnum ótrauð að því að það verði byrjaðar framkvæmdir og innviðafélagið mun standa að útboði á Fljótagöngum, segjum í janúar, febrúar, mars. Þá verður það með heimildina og getur samið við verktakann um það þannig að við stefnum að því að það verði farið í framkvæmdir á haustmánuðum á næsta ári. Þetta er eigið fé.