158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[13:44]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið en verð bara að viðurkenna að ég er litlu nær. Ég veit ekki hvort það segir meira um mig eða flækjustigið vegna þess að við fórum mjög vel yfir þetta hér í umræðunni um innviðafélagið og þessi útfærsla hæstv. ráðherra núna er bara allt önnur en sú sem var rædd þar, bara allt önnur. Gott og vel, ef þetta er sú leið sem hæstv. innviðaráðherra ætlar að fara þá er það bara þannig. En ég sé ekki — vegna þess að ég veit að það hafa mjög margir lýst efasemdum sínum um lögmæti þess að gera þetta með þessum hætti.

Það sem mig langar að spyrja hins vegar um í restina, virðulegur forseti, af því að hæstv. ráðherra talar hér um Vaðlaheiðargöng, Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú, er: Hvað með Hvalfjarðargöng? Hvað hugsar hæstv. ráðherra sér að gera varðandi Hvalfjarðargöng? Á að setja þau inn í félagið og fara að rukka veggjöld af þeim?