158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla.

[13:46]
Horfa

Árni Helgason (S):

Frú forseti. Mig langar að fá að beina fyrirspurn til hæstv. ráðherra varðandi fjölmiðlalög og fjölmiðlanefnd, nánar tiltekið þann þátt sem kemur að hlaðvörpum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum upp á síðkastið þá virðast hlaðvarpsþættir hafa vakið mikinn áhuga hjá fjölmiðlanefnd sem hefur staðið í bréfaskriftum við ýmsa þáttastjórnendur og farið fram á að hlaðvörp verði skráð sem fjölmiðlar, sem við hljótum að geta verið sammála um að er í öllu falli umdeilanleg skoðun og varla í samræmi við tilgang laganna á sínum tíma. Þessu fylgir ýmislegt, það eru dagsektir boðaðar og sektarákvarðanir gagnvart þessum þáttum og þetta er svolítið þungt fyrir þau sem fyrir verða enda reksturinn í kringum þessa þáttagerð alla jafna ekki mikill að umfangi. Hlaðvörp eru, eins og flestir þingmenn þekkja vel, vinir eða vinkonur að tala um daginn og veginn, hvort sem það eru snyrtivörur, stjórnmál eða enski boltinn. Við getum ekki fellt þetta undir sama hatt og að reka fjölmiðil sem segir fréttir með skipulögðum hætti, með ritstjórnarstefnu o.s.frv. Það vekur líka upp ákveðnar spurningar um tilgang og forgangsröðun hins opinbera að heil ríkisstofnun sé að eltast við fólk úti í bæ fyrir það eitt að tala um daginn og veginn með það að markmiði að fá það til að skrá sig sem fjölmiðil. Þetta er auðvitað svolítið umhugsunarvert á tímum þar sem við erum öll að reyna að leggja áherslu á að ríkið sinni sínum kjarnaverkefnum og haldi þétt utan um budduna.

Hæstv. ráðherra steig fram fyrr á þessu ári í fjölmiðlum og boðaði breytingar á lögunum að þessu leyti þannig að hlaðvörp yrðu undanskilin þessari skilgreiningu laganna. Og ég vil nú fá að nota tækifærið og hrósa hæstv. ráðherra fyrir það. Ef ég hef skilið rétt þá er málið komið á þingmálaskrá. Þrátt fyrir þetta berast nú fréttir af því að fjölmiðlanefnd sé að hóta því að leggja dagsektir á tiltekna þætti þar sem skráning hefur ekki farið fram. Því vil ég fá að spyrja ráðherrann: Hvenær er umrædd lagabreyting væntanleg? Telur hann eðlilegt að gengið sé jafn fast á eftir þessari skráningu og raun ber vitni þegar fyrir liggur að breytingin er yfirvofandi? Með öðrum orðum: Telur hæstv. ráðherra að unnt sé að veita einhvers konar svigrúm í ljósi aðstæðna?