hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Fyrst vil ég segja að það er ljóst að eftirlitsstjórnvaldi er falin eftirfylgni með lögum og ég sem ráðherra vil ekki, og það er ekki við hæfi, að ég sé að skipta mér af störfum eftirlitsstofnana. Það þurfa að vera armslengdarsjónarmið og þetta er mjög viðkvæmt, ekki síst þegar um er að ræða fjölmiðla. En þegar það er sagt þá átta ég mig á því að þetta er markaður í hraðri þróun og við þurfum auðvitað að hreyfa okkur hratt líka. Spurningin er: Hver er munurinn á hlaðvarpi og myndskeiði á Instagram t.d.? Svo ég svari nú einni af spurningunum þá eru Norðurlöndin ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa og það eru auðvitað fleiri miðlunarleiðir innan lands, svo sem YouTube, sem er ekki verið að skrá sem fjölmiðil, þannig að þetta eru vangaveltur sem er alveg þess virði að skoða.
Okkar fjölmiðlalög eru hins vegar víðtækari en víða annars staðar og eitt af því sem kemur til skoðunar er einmitt að endurskoða lögin þannig að þau taki mið af breyttum tíma og eftirliti með auglýsingum sem er allt of dreift eins og það er í dag. Það er vinna í gangi núna í nokkrum ráðuneytum, þar með talið mínu, um aukið samstarf og mögulega sameiningu eftirlitsstofnana sem undir þessi ráðuneyti fara, þannig að við getum vonandi sýnt á þau spil sem fyrst. Í tengslum við þetta hef ég einmitt boðað að núna sé góður tími til að staldra við og taka stöðuna á fjölmiðlalögunum í heild og hlaðvörp, skráning þeirra og mögulegt eftirlit verða einmitt meðal þess sem verður skoðað. Við erum núna að heyra í aðilum, bæði þeim sem halda úti hlaðvörpum og þeim sem eru hinum megin á endanum, og vonumst til þess að geta hraðað þessari vinnu af því að hún er skemmtileg. En ég held líka að umræðan um það í þingsal gæti orðið býsna fjörug og skemmtileg.