gjaldtaka í lagareldi.
Frú forseti. Mig langar mest til þess að halda áfram umræðu um hlaðvörpin og fjölmiðlanefndina óþörfu en ég ætla að halda aftur af mér. Mig langar til að eiga orðastað við hæstv. atvinnuvegaráðherra er varðar auðlindanýtingu og þá sérstaklega ætla ég að byrja á lagareldinu. Frumvarp hæstv. ráðherra var rætt hér í rúma þrjá klukkutíma á þinginu í fyrra við 1. umræðu, engin umræða var við 2. umræðu og takmörkuð efnisleg umræða í hv. atvinnuveganefnd. Málið var lagt fram um miðjan mars og þótti mörgum sérstakt að svona umfangsmikið mál, heil bók, heildarlöggjöf um margþætt eldi, kæmi fram svo seint innan ársins. Nú háttar svo til að hæstv. ráðherra hefur upplýst, og það kom svo sem í ljós við framlagningu þingmálaskrár þessa þings, að hæstv. ráðherra hefði ekki uppi áform um að leggja fram frumvarp um lagareldi í heild sinni aftur og þá er kannski sérstaklega verið að horfa til sjókvíaeldisins í þessum vangaveltum mínum. Nú hefur eldið uppsafnað tapað gríðarlegum upphæðum á undanförnum árum, gríðarlega mikil fjárfesting sem þarna er undir og er nauðsynleg áfram til þess að sá árangur náist sem ríkisstjórnin flaggar í atvinnustefnu sinni og stjórnarsáttmálanum raunar, með tilliti til mikilvægis eldisins.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að ráðherrann fór ekki í neinar grafgötur með að það væri mikilvægt að endurskoða gjaldtöku hluta eldisins með tilliti til rekstrarforsendna þeirra fyrirtækja sem þessa starfsemi stunda. Spurningin er einföld í ljósi þess að hæstv. ráðherra hefur nú tilkynnt að málið verði ekki lagt fram á þessu þingi: Telur hæstv. ráðherra að greinin ráði við að vera undirorpin þeirri skattlagningu sem núverandi löggjöf skammtar henni? Ég minni á tapið og fjárfestingarþörfina en telur hæstv. ráðherra að laxeldið í sjókvíum, lagareldið í sjó, ráði við óbreytta löggjöf hvað gjaldheimtu varðar?