gjaldtaka í lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og það er rétt sem kemur fram í máli þingmannsins að hér er um að ræða mikilvæga atvinnugrein fyrir okkur en jafnframt atvinnugrein sem er töluvert umdeild. Þess vegna hefur ekki bara í ráðherratíð þeirrar sem hér stendur heldur undanfarin ár verið unnið að uppfærslu og umgjörð heildarlaga um lagareldi, enda hafa núgildandi lög töluvert verið gagnrýnd, m.a. og ekki síst af ríkisendurskoðanda sem fann þessari löggjöf flest til foráttu. Þess vegna var lagt af stað í þessa vegferð og málið unnið í miklu samráði og samtali við greinina.
Í þessu frumvarpi er að finna margt sem lýtur að rekstrinum í heild sinni. Það er auðvitað mikil og þétt umhverfisvernd, náttúruvernd, miðað við núverandi löggjöf. En það er jafnframt verið að treysta og auka skilvirkni stjórnsýslunnar og það er verið að lækka skattbyrði. Með öðrum orðum: Býsna gott fyrir alla aðila, að við töldum. Hv. þingmaður þekkir það síðan vel að það var settur sandur í hjólin á lokametrunum og nú ætla ég ekki að leggja mat á það hvort það hafi verið réttmæt ástæða einhverra aðila en seint kom það fram. Það er óumdeilt.
Þetta mál tekur gríðarlegt súrefni, ekki bara frá ráðuneytinu sem er með gríðarlega mörg önnur mikilvæg mál heldur líka frá þinginu eins og hv. þingmaður þekkir. Það er ekkert svigrúm til þess að fara aftur með mál í gegnum þennan pakka ef síðan er ætlunin að reyna að stöðva það á lokametrunum þegar menn greinir á um eitthvert smávægilegt atriði í heildarlöggjöf eins og hér var verið að leggja til. Það kom ítrekað fram að við gerðum okkur grein fyrir því að þegar verið er að búa til heildarlöggjöf um jafn viðamikla og umdeilda atvinnugrein þá er eðlilegt að ýmsir aðilar sjái málum betur fyrir komið á einhvern annan hátt. Við náum aldrei utan um þetta ef við eltumst við þau atriði öll á sama tíma. Þess vegna var sett inn í greinargerð að lögin yrðu endurskoðuð á ákveðnum tíma. Þetta er staðan og ég vona virkilega að við náum utan um þetta en hún er svona akkúrat núna.
Varðandi síðan spurningu hv. þingmanns um hvort ég telji fyrirtækin ráða við það að hafa ekki fengið sínar skattalækkanir (Forseti hringir.) þá ætla ég einfaldlega að svara því: Ég myndi telja það, miðað við að það voru þau sem stöðvuðu málið og stöðvuðu skattalækkunina.