gjaldtaka í lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Einhver hefði nú vafalaust tekið til sín þau skilaboð að það væri býsna margt í frumvarpinu eins og það lá fyrir á síðasta þingi sem væri athugavert og alvarlegt fyrir þá sem stunda þennan rekstur í ljósi þess að mál þróuðust með þeim hætti sem þau gerðu. En ég minni á að heildarumræða hér í þingsal, af því að hæstv. ráðherra segir að þetta hafi tekið mikið súrefni frá ráðuneytinu og Alþingi, var rúmar þrjár klukkustundir. Það tekur ekki mikið súrefni frá Alþingi. En mig langar til þess, í ljósi þess að nú hefur hæstv. ráðherra ákveðið að taka hafeldið út fyrir þann ramma sem lagður var fram í fyrra. Mér heyrist vera kallað eftir því að landeldið fái sambærilega meðferð. Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að mögulega skipta upp þeim hluta er varðar sjókvíaeldið þannig að gjaldtakan, skattheimtan, verði hanteruð sérstaklega og síðan allt hitt mjög svo flókna, sannarlega flókna, (Forseti hringir.) regluverk skoðað þannig að við í þinginu, þingnefnd, ráðherra, ráðuneyti, hagaðilar, eldisfyrirtæki, sveitarfélög og aðrir hafi tíma til að glöggva sig á því, því ég bara minni á tímalínuna: Málið kom fram hér um miðjan mars (Forseti hringir.) á síðasta þingi. Það virtust engin raunveruleg áform hafa verið uppi um að þetta mál yrði klárað á síðasta þingi miðað við framlagningardag málsins. En er hæstv. ráðherra tilbúinn til að skoða það að skipta upp skattalega hlutanum og síðan hinum tæknilega?
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að gæta að ræðutímanum.)