gjaldtaka í lagareldi.
Frú forseti. Það má til sanns vegar færa að sú sem hér stendur beri nú ábyrgð á ýmsu en hún getur ekki borið ábyrgð á því ef þingmenn taka ekki til máls í þeim málum sem hún leggur hér fyrir þingið (Gripið fram í.) og þriggja klukkutíma umræða er ekki á ábyrgð ráðherra, svo það sé sagt. Hafeldið, eins og hv. þingmaður kemur inn á, er tekið út vegna þess að þar er um að ræða nýjung. Það er ekki að finna neitt um hafið í núgildandi lögum. Þetta er mikilvægt nýsköpunarmál fyrir okkur Íslendinga og ég tel mjög mikilvægt að það komi lagarammi um þetta skemmtilega tækifæri og að við sitjum ekki eftir vegna þess að nágrannalönd okkar, sem við erum alla jafna í samkeppni við þegar kemur að lagareldi, eru farin að hreyfa sig hratt í þessum málum og við þurfum lagaramma um þetta mál.
Hvað varðar spurningu hv. þingmanns um það hvort ég sé til í að taka einhvern hluta — hann nefnir sérstaklega skattalækkun — út úr frumvarpinu, þá er svarið nei. Hugmyndin er að til þess að tryggja vöxt þessarar atvinnugreinar í sátt við umhverfið og í sátt við fyrirtækin, sátt við samfélagið, þurfi heildarramma. Um leið og við förum að tína út úr þá er sú hugmynd farin.