158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra.

[14:02]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Mig langar að eiga orðastað við hæstv. atvinnuvegaráðherra er kemur að starfsskilyrðum dýralækna. Það er engin ný saga hvað það varðar að það hefur verið skortur á dýralæknum vítt og breitt um landið. Það einskorðast ekki bara við hinar dreifðu byggðir, þetta á sömuleiðis við um höfuðborgarsvæðið þegar kemur að hinni svokölluðu stórdýravakt. Í sumar sérstaklega held ég að steininn hafi tekið alveg úr hvað það varðar. Á þetta hefur verið bent undanfarið og sömuleiðis hafa dýralæknar og forystumenn dýralækna bent á að heildurendurskoðun á starfsskilyrðum dýralækna sé mjög mikilvæg. Það er ábyrgðarhluti að halda dýr. Það eru sömuleiðis miklar byrðar lagðar á dýralækna í hinum dreifðu byggðum. Við skulum segja að þeir séu kannski með einn fjórða af landinu undir þegar kemur að því að þjónusta dýr. Við þekkjum það sömuleiðis að t.d. á Austurlandi hefur verið starfandi dýralæknir á Suðurfjörðum, sem ætlaði að vísu að vera löngu hættur vegna aldurs en hefur ekki getað hætt, og sá dýralæknir hefur verið að þjónusta frá Egilsstöðum og alveg niður á Höfn í Hornafirði. Svona getum við talið áfram, þetta á við sömuleiðis um Vestfirði og fleiri svæði. Því beini ég spurningu, frú forseti, til hæstv. atvinnuvegaráðherra: Er heildarendurskoðun á vaktkerfi og starfsskilyrðum dýralækna til skoðunar í hennar ráðuneyti eða undirstofnunum ráðherra, þ.e. Matvælastofnun, sem heitir væntanlega núna Stofnun atvinnuveganna? (Forseti hringir.) Þetta er gríðarlega mikilvægt atriði upp á það að ná því fram sem við viljum þegar kemur að velferð dýra.