158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra.

[14:05]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra kærlega fyrir gott svar. Ég vona að ráðherra hraði þeirri vinnu sem fram undan er og virðist eitthvað vera komin af stað. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti, burt séð frá því hverjir eru í ríkisstjórn og hverjir stýra þessu ráðuneyti, að verið sé að skoða hlutina eða velta því fyrir sér hvað hægt sé að gera. En ég held að lausnin felist fyrst og fremst í því að horft verði til þess að tryggja góð starfsskilyrði fyrir dýralækna sem eru t.d. á svæðum þar sem lítið er um þjónustu, t.d. við gæludýr og annað, að þeir hafi þá aðgang að bakvakt, afleysingu, en fyrst og fremst þurfa þeir að hafa einhver ákveðin laun. Það er lykilatriði. Við vitum líka varðandi þá dýralækna sem eru á þeim svæðum þar sem ekki er um þetta að ræða, þ.e. fá dýr og annað, þá verða menn að hafa uppbót frá ríkinu til að hafa í sig og á.