skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra.
Frú forseti. Aftur tek ég undir með hv. þingmanni og þetta eru auðvitað málin sem við erum að skoða. Í einhverju stærra samhengi má bera þetta saman við þær áskoranir sem við búum við þegar kemur að heilbrigðisþjónustu við fólk á landsbyggðinni í hinum dreifðari byggðum. Ekki eingöngu eru það launin, sem auðvitað skipta máli; það eru líka starfsskilyrðin, þetta vaktafyrirkomulag og þessar eilífu bakvaktir. Menn og dýr eiga það til að veikjast og þurfa læknisþjónustu hvenær sem er sólarhringsins, hvaða dag ársins sem er. Þessu þarf bara að mæta á sama tíma og við finnum þessa tilhneigingu fólks til að staldra aðeins við og vera ekki tilbúin í þessa miklu viðveru. Við sem hér stöndum, framkvæmdarvaldið í dag en ekki síður löggjafinn, þurfum einhvern veginn að finna leiðir til að svara þessum áskorunum ef við ætlum að tryggja það sem við erum öll sammála um að við viljum gera, að tryggja hér byggð í landinu. Þá þarf að leysa þetta og ég treysti bara á áframhaldandi gott samstarf um þetta mál.