útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir spurninguna. Breytingin er þessi: Að fara úr fimm árum í sex, að lengja þessa tímabundnu heimild fólks sem kom hingað á grundvelli fjöldaflótta um eitt ár. Það er gert í samræmi við stefnu Evrópusambandsins, ákvarðanir og nálgun Evrópusambandsins í þessum efnum og hefur verið t.d. til umræðu á fundum sem ég hef sótt í fyrirheitna landinu um hvaða skref skyldi þar stíga. Þannig að það er verið að lengja þarna um eitt ár. Svo eru þarna nokkur önnur atriði til viðbótar sem ég geri ráð fyrir að þingmaðurinn ætli að spyrja um í seinni spurningu.