útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég rakti það í framsögu minni hvað gerist þegar þessum kafla, sem í eðli sínu er tímabundinn, lýkur. Þá verður þessi hópur fólks sem er hér á landi í þeirri stöðu, vilji hann vera hér áfram — maður heyrir auðvitað að fólk vilji mjög gjarnan geta snúið aftur til síns heima, en fyrir þau og fyrir þá sem verða hér áfram þá eru þeir einfaldlega í þeirri stöðu að sækja um dvalarleyfi á grundvelli einhverra einstaklingsbundinna þátta. Þeir þurfa þá að vera hér á grundvelli atvinnu, náms, sérstakra tengsla eða hvað það nú er. Það þýðir ekki að fólk muni ekki eiga kost á áframhaldandi dvöl en það verður á einstaklingsbundnum grundvelli. Svo er það auðvitað fyrir hvern og einn að ákveða til hvers hugur þeirra snýr.
Varðandi svæðisskiptingu er það samtal sem hefur átt sér stað víða og ákveðin ríki eru þá þegar farin að beita. Ég veit hins vegar að afstaða úkraínskra stjórnvalda er þessi: Það er ekkert svæði í Úkraínu alveg öruggt (Forseti hringir.) og við höfum ekki verið í markvissri vinnu í þeim efnum, en ég get sagt að önnur ríki hafa verið að stíga skref í þessa átt.