útlendingar.
Frú forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að þetta er stór ákvörðun og ég er sammála því líka að það er siðferðilegt álitaefni hvað rétt er að gera. Ég ætla að vera alveg heiðarleg með það. Mér fannst þetta ekki augljós ákvörðun að taka en hún er tekin með þessum hætti sem tilmæli ráðherra, sem leiðbeiningar ráðherra og í kjölfar ákvörðunar ESB frá 30. júlí í sumar sem voru leiðbeiningar um meðferð nýrra umsókna. Í meginatriðum eru þetta tvær breytingar: að tímabundin vernd sé almennt ekki veitt þeim sem eru þá þegar komnir með gilt leyfi á sambærilegum grundvelli í öðru Evrópuríki og ekki þeim sem hefur ekki verið heimilt að yfirgefa Úkraínu. Þetta hefur ekki áhrif á þann hóp sem þegar er kominn til landsins og breytir ekki almennum reglum um rétt fólks til að sækja um alþjóðlega vernd. En eins og ég segi, ég get verið alveg heiðarleg með það, þetta er stór ákvörðun að taka. Hitt blasti síðan við að þetta hafði Evrópusambandið gert, þetta hafði Noregur gert og það þarf ekki að hugsa það lengi hvað hefði gerst hér á Íslandi hefðum við ein staðið eftir.