útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir heiðarlegt og gott svar. Ég skil hæstv. dómsmálaráðherra mætavel þegar hún segir hér í ræðupúlti að þetta hafi ekki verið auðveld ákvörðun. Ég skil sömuleiðis mætavel þær ástæður sem liggja að baki því að þessi breyting er gerð. Og ég skil mætavel þá stöðu sem Ísland hefði verið í ef Ísland væri eina ríkið sem hefði ekki gert slíkt hið sama og þá væntanlega varðandi ásókn flóttamanna hingað til lands.
Það sem ég er hins vegar einfaldlega að benda á, virðulegur forseti, er sú staðreynd að þetta kemur hér víða fram í greinargerð með þessu frumvarpi. Það er ekki breyting í lagatextanum. Vegna þess að, eins og ég kom hér inn á áðan, þetta er stórt atriði. Þetta er siðferðileg spurning sem mér hefði fundist eðlilegra að Alþingi tæki ákvörðun um, (Forseti hringir.) að Alþingi ræddi frekar en að hæstv. ráðherra tæki upp einhliða og án umræðu hér við þingið einhvers konar kópíu af Evrópusambandslöggjöfinni.