158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

útlendingar.

97. mál
[14:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil aftur nefna að þessi tilmæli breyta ekki almennum reglum um rétt til alþjóðlegrar verndar. Einstaklingar hafa eftir sem áður þann valkost að sækja um á þeim grundvelli en þetta er tekið í kjölfar svokallaðrar framkvæmdarákvörðunar ESB. Mér fannst ekki augljóst að gera þetta. Ég held að síðan megi segja úr hinni áttinni að það hefði kannski verið enn þá harðari nálgun að fara með þetta inn í lög en að gera þetta með þessum hætti. Það er á grundvelli þessarar 44. gr. sem við virkjum þennan fjöldaflótta og í því sambandi, þótt það sé meira verklag en þessi siðferðilega spurning sem hv. þingmaður nefnir, er ekki óeðlilegt að þessi ákvörðun komi þá frá ráðherra líka. En ég get ekki sagt annað en að ég skilji mjög vel þau sjónarmið að þetta þyki ekki augljóst. Þetta eru þá tvær breytingar í þessu og sá gluggi stendur eftir sem áður áfram opinn að geta sótt um á einstaklingsbundnum grundvelli. En ég horfði á þetta, ég get líka viðurkennt það, kalt þegar ég tók þessa ákvörðun.