útlendingar.
Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína sem og þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni til þessa. Mér finnst hún upplýsandi og gagnleg. Það er af ýmsu að taka í þessu máli. Í grunninn held ég að það sé nú ríkur meiri hluti fyrir málinu hér á þingi og þessu uppleggi að við búum þannig um hnútana að lagaumgjörðin og regluverkið er viðkemur móttöku flóttafólks sé eins og gerist annars staðar á Norðurlöndunum og í Evrópu.
Það er samt auðvitað ekki fortakslaust heldur og þess vegna fannst mér fróðlegt að heyra í hæstv. ráðherra er hún gerði grein fyrir því í andsvörum við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson að það hafi verið þungbær ákvörðun að taka er varðar þá skyldu eða skilyrði að úkraínskir karlmenn á herskyldualdri hafi afplánað þá skyldu sína af því að þetta er risastór siðferðileg spurning sem er þar að baki. Það kom mér í sjálfu sér á óvart að það væri hægt að breyta réttarstöðu þessa hóps með leiðbeiningum eða auglýsingu ráðherra. Frekar hefði maður haldið kannski að lögin sjálf settu einhver skilyrði hvað þetta varðar. Það er eitthvað sem þarf auðvitað að fara betur yfir í meðförum nefndarinnar. Ég skil það sem svo að þessar reglur, 44. gr. er við kemur móttöku fólks eða fjöldaflótta, séu í grunninn náttúrlega kannski heimildarákvæði frekar en annað. Eftir sem áður myndi maður ætla, án þess að ég viti það, að þessi venjulegu skilyrði er varða grundvöll alþjóðlegrar verndar, 37. gr., ættu hins vegar við og yrði ekki endilega breytt með leiðbeiningum ráðherra. Þetta er bara flókið úrlausnarefni. Ég ætla svo sem ekki að setjast í dómarasæti hvað þetta varðar en hef ríka samúð með ráðherranum þegar hún lýsir því að þetta hafi verið flókin eða mikil ákvörðun að taka og auðvitað eitthvað sem verður skoðað af allsherjar- og menntamálanefnd þegar málið kemur þangað inn.
Þetta er í annað skipti sem þetta frumvarp er til skoðunar. Það bárust umsagnir frá hinum og þessum aðilum hér áður fyrr, einmitt um einstaka þætti, til að mynda hvort það eigi að fella út þetta ákvæði um að þessir aðilar geti fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Aftur er þetta atriði sem verður einfaldlega skoðað í meðförum nefndarinnar.
Hér erum við með þetta mál. Ég hef áhuga á því að rekja og ræða stuttlega kannski þessa breytingu um að færa þetta verkefni er viðkemur móttöku flóttafólks úr félagsmálaráðuneytinu, eða skipulagið hvað það varðar, til dómsmálaráðuneytisins. Ég þekki svo sem ekki og veit ekki hvernig þessu er hagað annars staðar. Í grunninn geri ég ráð fyrir að flóttamannanefndin hafi með að gera málefni er tengjast einmitt félagsmálum upp til hópa. Það má svo sem skilja, og kemur fram í 9. gr. útlendingalaganna, að hlutverk flóttamannanefndarinnar er skipulag móttöku flóttamannahópa og hún hefur yfirumsjón með þeirri móttöku. Þetta er hlutverkið en hér er verið að færa það frá félagsmálaráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins og ég er enn nokkuð hissa á umfjölluninni í greinargerð með frumvarpinu á bls. 3 þar sem segir, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórn Íslands ákvað 4. mars 2025 að málefni sem vörðuðu hlutverk og verkefni flóttamannanefndar skv. 9. gr. laga um útlendinga skyldu flutt til dómsmálaráðuneytisins frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti.“
Þetta er sem sagt ákvörðun ríkisstjórnarinnar 4. mars 2025. Svo erum við hér 18 mánuðum síðar að færa þessa ákvörðun í lög. Aftur átta ég mig ekki alveg á því hvað gerðist, ef þá eitthvað, við þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar 4. mars 2025.
En ljóst má vera að verkefnið er ærið og ég átti hér orðastað við hæstv. ráðherra um áhyggjur sveitarfélagsins Borgarbyggðar til að mynda er varða hvernig það að taka á móti stórum hópi flóttafólks, sem eftir atvikum endar svo á sveitarstyrk, getur reynst litlum sveitarfélögum mikil byrði. Það þarf auðvitað að búa þannig um hnútana að þetta sé í einhvers konar jafnvægi. Það gengur ekki að opna svona úrræði eins og gert var á Bifröst þar sem tekið var móti mjög stórum hópi fólks og bíða svo bara og sjá til.
Mér þótti fróðlegt að heyra og hlýða á orðaskipti hæstv. ráðherra við hv. þm. Árna Helgason. Ég held að það sé prýðishugmynd að gera athugun á því hvernig gengur, á aðlögun að íslensku samfélagi, atvinnuþátttöku og öðru. Það má skilja af ummælum sveitarstjórans í Borgarbyggð að þar séu uppi áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu sem eiga erfiðara með að finna sér atvinnu þar sem náttúrlega atvinnusvæðið og atvinnumöguleikar kannski þessa hóps akkúrat í nágrenni Bifrastar eru takmarkaðir. Því virðist sem þessi hópur kannski sérstaklega sé að leggjast býsna þungt á sveitarfélagið. Það er auðvitað verkefni að leysa og ég set þetta bara því miður í samhengi við þessa umfjöllun í greinargerðinni um að ríkisstjórnin taki ákvörðun um að þessi málaflokkur fari til dómsmálaráðuneytisins en lögin gera ráð fyrir því að það sé ráðherra félagsmála sem sjái um það. Aftur verður bara fróðlegt að ræða það í nefndinni og heyra ítarleg rök fyrir því að það teljist skynsamlegt að færa þetta hlutverk til dómsmálaráðuneytisins vegna þess að magatilfinningin mín er frekar á þá leið að þetta sé nú þegar öllu er á botninn hvolft frekar einmitt félagsmálaúrræði sem ætti þá frekar heima hjá félagsmálaráðuneytinu, þ.e. að dómsmálaráðuneytið, dómsmálaráðherra eftir atvikum, tekur ákvarðanir á grundvelli 44. gr. um hvaða hópi er tekið á móti, hvaða svæði eru undir o.s.frv. en þegar hópurinn er kominn hingað til landsins þá sé það kannski frekar félagsmálaráðuneytið sem tæki við því. En aftur, ég ætla ekki að kveða upp neina dóma hvað þetta varðar. Ég hlakka bara til að hlýða á frekari sjónarmið hvað þetta varðar, akkúrat um hvar þessi málaflokkur og þessi hópur ætti heima.
Að endingu vil ég einmitt bara árétta það, eins og hefur komið fram hér í umræðum í þingsal, að það er auðvitað mikilvægt að reglurnar okkar séu sambærilegar því sem tíðkast erlendis og þá hvort heldur sem litið er til Evrópusambandsins, Noregs eða annarra ríkja. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál á þessu stigi en hlakka til að skoða það nánar í meðförum allsherjar- og menntamálanefndar.