158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

útlendingar.

97. mál
[15:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu þessa máls og ræðu um hana. Mál þetta er reyndar endurflutt, eins og hún kom inn á, og núna með þeirri breytingu sem leiðir af tilmælum Evrópusambandsins, sem Ísland er alls ekki bundið af en hæstv. ráðherra kýs að taka upp hér a.m.k. inntak þeirra skilaboða eða þeirra tilmæla sem koma fram í reglu Evrópusambandsins.

Svona heilt yfir get ég í sjálfu sér tekið undir einhvers konar tilraun sem hér er gerð til þess að draga úr eða koma í veg fyrir þá þróun að sú vernd sem menn fá hér á grundvelli fjöldaflótta, eins og Úkraínumönnum hefur verið veitt hér — sem er mjög sjaldgæft úrræði, hefur kannski einu sinni verið tekið upp á Íslandi áður en var gert sérstaklega hér vegna ástandsins í Úkraínu — að sú vernd sem menn fái þar, sem er tímabundin vernd, geti ekki leitt til ótímabundins dvalarleyfis sem slík. Ég get alveg tekið undir það. Hins vegar óttast ég að önnur lagaákvæði geri þessa lagabreytingu í rauninni að engu vegna þess að eftir sem áður geta þessir einstaklingar sótt um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli ýmissa annarra sjónarmiða, m.a. þeirrar staðreyndar að þeir séu búnir að vera hér í fimm ár, og eftir að þessi breyting hér nær fram að ganga, í sex ár, og séu þannig komnir með þvílík tengsl við Ísland að ekki verði annað gert en að veita þeim ótímabundið dvalarleyfi óski þeir eftir því. Hvað varðar þessa breytingu sem er lögð til varðandi að lengja þetta tímabil úr fimm árum í sex, þ.e. hina tímabundnu vernd eða tímabundna dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta, þá sýnist mér hún eingöngu vera í þeim tilgangi að fresta hinu óumflýjanlega sem er það að afgreiða stöðu þessa fólks þegar þessu tímabundna úrræði vegna fjöldaflótta sleppir. Það verði þá ekki gert núna á næstu mánuðum eða misserum heldur frestist um eitt ár. Það finnst mér bagalegt, sérstaklega í ljósi þeirra umsagna sem málið hefur fengið eftir samráðsgáttina, m.a. umsagnir frá sveitarfélögum sem benda á að það er auðvitað að skapast ófremdarástand vegna þessa hóps í sumum sveitarfélögum. Þessi sveitarfélög bera reyndar ábyrgð á því sjálf, þau buðu Úkraínumönnum að koma til sín. Ég nefni hérna Borgarbyggð sérstaklega og held meira að segja að það sé sérstaklega vísað til Borgarbyggðar í greinargerð með frumvarpinu — nei, það er nú reyndar ekki gert. En í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er bent á að að þetta fólk sem sveitarfélögin tóku á móti, sum hver, falli ekki undir gildissvið laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða og þurfi því að reiða sig á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga við 67 ára aldur. Fréttir hafa verið um einmitt þetta, sérstaklega fréttir frá Borgarbyggð sem hefur talið sig sérstaklega hlunnfarna af hálfu ríkisins vegna þessa. Þannig að ég sé í sjálfu sér ekki ástæðu fyrir því að lengja þetta áratímabil úr fimm árum í sex nema til þess einhvern veginn að ýta vandanum á undan sér. En gott og vel, menn þurfa þá einhvern tímann að horfast í augu við þetta.

Þá langar mig líka að nefna sérstaklega það sem hæstv. ráðherra nefndi í framsögu sinni um málið um að tilgangur tilmæla Evrópusambandsins hefði verið öðrum þræði sá að koma til móts við óskir úkraínskra stjórnvalda. Að mínu mati hefði nú ekki þurft óskir úkraínskra stjórnvalda til heldur leiðir það svolítið af eðli máls að menn hefðu þurft að huga að þessu í upphafi. Í upphafi skyldi endinn skoða. Ég gerði reyndar athugasemdir við það á sínum tíma þegar Evrópusambandið tók þá ákvörðun, og Ísland hljóp í kjölfarið á eftir því, algjörlega umfram alla skyldu, að veita öllum Úkraínubúum heimild til þess að fara og fá tímabundið dvalarleyfi í öllum ríkjum Evrópusambandsins. Þá vakti ég athygli á því að það væri ekki endilega víst að það væri til hagsbóta fyrir Úkraínu að gera það án nokkurra skilyrða. Aðallega hef ég haft áhyggjur því að með þessu væri vikið svo stórkostlega frá alþjóðlegum reglum um aðstoð við flóttamenn og fólk í stríðshrjáðum löndum, með því að veita öllum á grundvelli ríkisfangs rétt í öðrum ríkjum óháð því hvar viðkomandi hefur búið í landinu. Nú er Úkraína stórt land og ég treysti mér alveg til að fullyrða, þótt ég sé ekki kunnug staðháttum í Úkraínu, að öll Úkraína var alls ekki undir, var ekki stríðssvæði, og margir af þeim sem hafa komið hingað til Íslands hafa búið alla sína ævi fjarri stríðsátökum í Úkraínu. Á sama tíma búa Íslendingar í Úkraínu og hafa komið hingað í frí en snúa aftur til Úkraínu og búa þar. Þetta var að mínu mati svolítið gönuhlaup á sínum tíma sem er nú að koma mönnum í koll.

Hinn anginn af þessu sem menn hefðu líka þurft að skoða er þessi spurning um það í landi þar sem ríkir herskylda, þar sem er her og menn eru í stríði og ríkið undir árás, hvort ríkinu sé einhver þægð í því að taka á móti mönnum og eftir atvikum konum, ég þekki ekki hvernig þetta er í Úkraínu, sem þurfa augljóslega samkvæmt eigin lögum að uppfylla herskyldu og hvort það hafi verið þessu ástandi til framdráttar að öll Evrópusambandsríkin tóku sig saman um að taka á móti hverjum þeim sem vildi fara frá Úkraínu. Þetta er ákvörðun sem er líka að koma mönnum í koll. Ég vil nefna þetta sérstaklega hér vegna þess að þegar þetta hefur verið nefnt þá hafa þeir örfáu sem hafa gert það frá upphafi stríðsins nánast verið úthrópaðir sem einhvers konar óvildarmenn Úkraínumanna, fyrir að benda á að það séu margar hliðar á þessum málum og að hagsmunum jafnvel Úkraínubúa sjálfra sé ekki endilega haldið á lofti með þessum aðgerðum. Og ég, virðulegur forseti, vil auðvitað frábiðja mér slíkan málflutning. Ég er hvorki pútínisti né styð Rússa og hef aldrei gert. Ég hef langan feril innan stjórnmála og utan enn lengri í baráttu gegn kommúnistunum í Sovétríkjunum og Rússlandi og hef stutt sjálfsákvörðunarrétt þessara þjóða sem hafa verið fyrrum fylgitungl Sovétríkjanna og Rússlands til sjálfstæðis. Það þarf hins vegar að vera eitthvert vit í vitleysunni og þess vegna hef ég ekki talið það eftir mér að benda á að viðbrögð Evrópusambandsins, og því miður Íslands líka á þessum tíma, voru arfavitlaus, arfaslök. Því miður bætir þetta frumvarp ekki í bætifláka fyrir það þótt hér sé reynt að gera það að einhverju marki, m.a. með auglýsingu sem hæstv. ráðherra hefur birt sem kveður á um það að menn fái hér ekki tímabundið dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta nema sýna einhverja pappíra frá úkraínska hernum. Eftir stendur auðvitað spurningin: Geti menn ekki framvísað slíkum pappírum, geta þeir þá fengið hér alþjóðlega vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða, á grundvelli annarra reglna í útlendingalöggjöfinni? Það er algjörlega óleyst vandamál. Hæstv. ráðherra fannst mér, a.m.k. í andsvari við einn hv. þingmann hér fyrr, reyna svona að skjóta sér á bak við þá staðreynd að útlendingalögin heimila auðvitað öllum að sækja um alþjóðlega vernd. Mér fannst hæstv. ráðherra svolítið vísa til þeirra úrræða vegna þeirrar ákvörðunar sinnar að auglýsa það að menn fengju ekki vernd hér á grundvelli fjöldaflótta hafi þeir ekki sinnt herskyldu.

Ég bara nefni þetta vegna þess að eftir stendur samt sem áður spurningin sem úkraínsk stjórnvöld hljóta líka að spyrja: Ætlaði land eins og Ísland að fara að veita úkraínskum karlmönnum á aldrinum 18–60 ára alþjóðlega vernd hér á grundvelli mannúðarsjónarmiða? Það er spurningin. Ég hef ekki svar við því. Menn þurfa að spyrja hvað sé best fyrir Úkraínu en menn þurfa auðvitað líka að spyrja hvað sé best fyrir einstaklinginn, og ég er nú kannski þekktari fyrir það að taka frekar upp hanskann fyrir einstaklinga heldur en ríkin sjálf. En þetta er spurning sem ég tel að hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem fær þetta mál til umfjöllunar, þurfi aðeins að skoða þótt það sé ekki hluti af þessu frumvarpi vegna þess að nái þetta frumvarp fram að ganga og auglýsingin, sem hefur tekið gildi að mér skilst, mun reyna á önnur ákvæði útlendingalaganna sem getur haft margvíslegar afleiðingar. Annars vegar fyrir Úkraínu og herinn þar í landi en hins vegar fyrir íslenska hagsmuni og álag á innviði hér, eins og í samræmi við það sem bent er á í samráðskaflanum hér frá samtökum sveitarfélaga og fleirum. Þetta þarf allt að skoða.

Mig langar síðan að lokum, eða næstum því að lokum, að nefna tvennt annað. Annars vegar er það, af því að mönnum er tíðrætt að segja að við þurfum að vera með sömu reglur á Íslandi og löndin í kringum okkur, að staðreyndin er sú að löndin í kringum okkur hafa ekki öll sömu reglur. Noregur hefur ekki sömu reglur og Evrópusambandslöndin. Noregur hefur ekki einu sinni sömu reglur og Danmörk eða Svíþjóð. Menn sníða sér stakk eftir vexti og menn búa til þær reglur í þeim löndum sem landið þarf og sem þjóna best efnahagslífi og hagsmunum þess ríkis. Þannig eiga reglurnar að vera. Ef þær eru í samræmi við eitthvað sem Evrópusambandið er að gera eigum við að sjálfsögðu að taka upp slíkar reglur. Og ég árétta það að ég er ekki á móti reglum frá Evrópusambandinu eða tilmælum frá Evrópusambandinu bara af því að þær koma þaðan. Ef þær henta hagsmunum Íslands þá eigum við sannarlega að taka þátt í eða nýta okkur það að einhver er búinn að upphugsa einhverjar reglur og innleiða þær hér. En ef ekki eigum við að sníða okkar eigin reglur. Noregur er það ríki í Evrópu sem hefur í rauninni leitt ákvarðanatöku þegar kemur að þessum úkraínsku farendum með breytingum fyrir einu ári síðan og Evrópusambandið er í raun að fylgja í kjölfarið á því sem Noregur innleiddi fyrir ári.

Að lokum vil ég nefna það að ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd líka til þess að skoða sérstaklega það sem virkar kannski saklaust hér í þessu frumvarpi sem er flutningur á málaflokknum um flóttamannanefnd frá félagsmálaráðuneytinu yfir í dómsmálaráðuneytið. Það eru engin sjónarmið að baki því sérstaklega rakin. Það eru ríkar ástæður fyrir því að þessi málaflokkur var settur undir félagsmálaráðuneytið á sínum tíma sem varða auðvitað innviðina hér og félagsmálin almennt. Ég ætla ekki að fullyrða að það gæti verið óhagstætt að flytja þetta í dómsmálaráðuneytið en þetta þarf að skoða sérstaklega. Þetta er ekki bara lítil lagatæknileg breyting heldur þarf efnislega að skoða það.