158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

útlendingar.

97. mál
[15:37]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, það er alveg öruggt að örugglega margt af því fólki hefur einhverjar réttmætar væntingar um að fá að vera hérna áfram og verður það örugglega. En ég veit ekki einu sinni, ég hef ekki lesið þetta svo grundigt eða svo ítarlega, hvort frumvarpið komi í veg fyrir að fólk sem hingað er komið nú þegar geti ekki hoppað á milli landa. En ég sé að það er verið að reyna að koma í veg fyrir að hópflóttavernd í einu landi veiti ekki réttindi í öðru landi það var t.d. eitt sem ekki var hugað að í upphafi. Þetta kemur í ljós og auðvitað vonar maður það að Úkraína hressist og það verði þvílík uppbygging þar að það laði að fólkið sem á rétt á að búa þarna til þess að byggja upp landið. Ég vona það og það verði fyrr en seinna.

Hitt atriðið sem ég ætla að spyrja hv. þingmann um er nú kannski flóknari spurning og siðferðilegri, af því að hv. þingmaður nefndi það að hermenn gætu sótt um á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga Íslendinga og verið að vísa í alþjóðaflóttamannareglur væntanlega. Hann var reyndar ekki að tala um hermennina kannski en ég ætla að spyrja sérstaklega um hermennina, þá sem skulda herskyldu í Úkraínu. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér afgreiðslu slíkra mála? Þeir koma þá ekki núna í gegnum hópflóttaverndina af því það verður útilokað fyrir þá að fá hópflóttavernd, en þeir gætu hins vegar sótt um vernd á Íslandi með vísan til þeirra þátta sem hv. þingmaður nefndi, sem eru ógn og stríð og annað. Telur hv. þingmaður hermenn eða einstaklinga á herskyldualdri geta fallið þar undir?