158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[13:30]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (U):

Virðulegur forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið lögfestur og hefur einnig viðauki hans verið fullgiltur. Með lögfestingu hans og fullgildingu viðaukans á að koma í veg fyrir hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og að fötluðu fólki sé tryggð árangursrík réttindavernd gegn mismunun á öllum sviðum. Þá er spurningin þegar maður les eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Félagsfólk sem hættir störfum á vinnumarkaði vegna örorku getur verið áfram félagsfólk, þó án þess að njóta kjörgengis í félaginu, gegn greiðslu félagsgjalds til VR …“

Þetta er í lögum hjá einu stærsta verkalýðsfélagi landsins, VR, og er ekkert annað en gróf mismunun og ótrúlegir fordómar. Það er komið á þriðja áratug síðan þessi lög voru sett. Lögin voru sett á mig á sínum tíma. Ég var í trúnaðarráði VR og bauð mig fram til stjórnar. Þeir fengu það út, ákveðnir aðilar, að með því að ég kæmist í stjórn VR, það munaði örfáum atkvæðum að ég kæmist inn, þá væru öryrkjar að yfirtaka félagið. VR er með VIRK — Starfsendurhæfingarsjóð og VIRK á að endurhæfa fólk. Er VIRK að endurhæfa fólk til allra starfa nema hjá VR? Ég má bjóða mig fram til þings. Ég má gera eiginlega allt og sækja um alls staðar en ég má ekki fara í stjórn VR. Það megum við öryrkjar ekki. Ég segi: Þetta virkar bara alls ekki og þessu á að breyta. Er ekki kominn tími til að bera virðingu fyrir öllum, elska náungann eins og hann er, því að þá loksins mun okkur farnast vel?